bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

3D E30 + Jens Edition
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=50692
Page 1 of 2

Author:  Danni S [ Fri 22. Apr 2011 17:32 ]
Post subject:  3D E30 + Jens Edition

Sælir ég hef verið að dunda mér að gera 3d model af E30 upp á síðkastið og mér datt í hug að henda nokkrum myndum hérna inn og leyfa ykkur að fylgjast með.
Þetta er allt enn í vinnslu þannig það vantar fullt af smáatriðum en þau koma seinna.

Image


Image


Image

og hérna er ein spes útgáfa fyrir Jens.
Image

Author:  Astijons [ Fri 22. Apr 2011 17:37 ]
Post subject:  Re: 3D E30

ekki amalegt... ekki amalegt...

Author:  Jón Ragnar [ Fri 22. Apr 2011 17:42 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Efsti er geggjaður :thup: :thup:

Author:  kalli* [ Fri 22. Apr 2011 17:43 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Virkilega flott !

Author:  bimmer [ Fri 22. Apr 2011 17:50 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Virkilega flott hjá þér.

Hvaða forrit notarðu?

Author:  Danni S [ Fri 22. Apr 2011 17:57 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Takk kærlega.

John Rogers: já ég er líka lang hrifnastur af efsta.

Bimmer: ég nota Blender til að módela og textura og V-Ray fyrir render.

Author:  bimmer [ Fri 22. Apr 2011 18:03 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Er ekki svolítið óþjált að nota Vray með Blender?

Hefurðu prufað að nota 3dsmax & Vray?

Author:  Danni S [ Fri 22. Apr 2011 18:11 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Nei það er alls ekki slæmt það er meira að segja komin spes útgáfa af blender sérstaklega til að nota með V-Ray.

Ég hef voða lítið notað Max, bara þegar ég hef þurft eitthvað spes plug in eins og Fume eða eitthvað, mér finnst viðmótið í Blender mikið þægilegra en maður þarf að venjast því.

Author:  ppp [ Fri 22. Apr 2011 18:16 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Stingur svolítið hvað það vantar alla þykkt/dýpt á framljósin og grillið, en þetta er WIP þannig að looking good.

Endilega settu inn wires næst. Ertu að subD módela þetta?

Author:  gunnar [ Fri 22. Apr 2011 19:15 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Kann ekkert á svona 3dmodel stöff en þetta er alveg sóðalega töff! :thup:

Author:  ppp [ Fri 22. Apr 2011 19:36 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Þú rukkar svo bara E30 plebbana hérna fyrir að pre-viza útlits/felgu/litabreytingar á 3d módelinu þínu.

Author:  jens [ Fri 22. Apr 2011 21:12 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Þetta er fáránlega svalt 8) hef aldrei séð neitt svons cool.
Endilega skelltu Borbet A felgum, M Tech I spoiler og IS lip á einn Silbersterling-metallic 244 :roll:

Finnst neðsta myndin geðveik.

Author:  Alpina [ Fri 22. Apr 2011 21:20 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Sérlega vel gert .. aðeins of slammaðir finnst mér

Author:  SteiniDJ [ Fri 22. Apr 2011 21:24 ]
Post subject:  Re: 3D E30

Alpina wrote:
Sérlega vel gert .. aðeins of slammaðir finnst mér


Einmitt. Flott módel, of mikið slam!

Author:  Atli93 [ Sat 23. Apr 2011 00:07 ]
Post subject:  Re: 3D E30

fkn vel gert en það eru 5 bolta felgur á myndunum

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/