bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Enn einn símaþráðurinn
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=50385
Page 1 of 2

Author:  Einsii [ Tue 05. Apr 2011 12:25 ]
Post subject:  Enn einn símaþráðurinn

Er ekki annars búið að ræða svipuð mál hér oft áður?

Ég er kominn í þann pakka að fynna mér nýjann síma, Hef verið með iPhone síðustu 4 ár, núna síðast iPhone 4 sem fór í gólfið og dó nýlega.

Ég sé þrjá möguleika í stöðunni:
1. fá mér aftur iPhone 4 og lífið óbreitt.
2. fá mér sambærilegann android til að prófa eitthvað nýtt, tildæmis Sony ericsson Xperia Arc eða Samsung Galaxy s 2
3. fá mér sirka 50þúsund króna síma og iPad einsog ég ef verið að spá í lengi.

Nú væri gaman að fá álit á, ef maður er vanur iPhone getur maður þá skipt yfir í Android og veri sáttur?
eða hvaða síma ætti maður að skoða fyrir sirka 50k sem er samt með góðann web browser, gott mail forrit, og almenilega svörun. Semsagt ódýr en GÓÐUR snjallsími.

Author:  Aron Fridrik [ Tue 05. Apr 2011 12:30 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

http://www.youtube.com/user/jon4lakers

þessi gæi er með endalaust af android vs. iPhone reviews

mjög vel gerð hjá honum prófin á símunum :thup:

Author:  Misdo [ Tue 05. Apr 2011 12:31 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

er sjálfur bara með 30 þúsund kr sony ericsson walkman núna eftir að iphone-in datt í gólfið og dó
ætla ekki að eyða í yfir 100 þús fyrir iphone þegar þetta þolir ekki að detta úr vasanum á gólfið

Author:  Jónas [ Tue 05. Apr 2011 13:12 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Ekkert mál að kaupa t.d. HTC Desire og setja upp MIUI rom, þannig að síminn líti alveg út eins og að hann sé með iOS.

Skil samt ekki hvaða vitleysingur lætur sér detta það í hug :roll:

Author:  Einsii [ Tue 05. Apr 2011 20:31 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Ég var svo viss um að ég fengi fullt af sterkum skoðunum á svona hlutum hér :)

Author:  zazou [ Tue 05. Apr 2011 21:30 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Ég hef sjálfur verið að pæla í þessu eftir að S-inum mínum var stolið af dusilmenni í lok janúar. Veit ekki hvort ég á að velja á milli að fara aftur í gamla S-inn (sem ég fílaði í ræmur) eða að fara í marginally hraðvirkari HTC HD.
Apple dótið er bara of dýrt fyrir minn smekk og kannski sterkari rök gegn er að þetta fólk sem kaupir þannig vörur virkar oft eins og frelsaðir alkahólistar (eða Thor Energy true believers) svo maður er ekki viss hvort maður vilji fara í þær herbúðir.

Author:  Svezel [ Tue 05. Apr 2011 21:39 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Eftir að hafa verið með ýmsar kynslóðir af snjallsímum og núna síðast HTC Desire-Z þá held ég að ég myndi velja síðasta valkostinn.

Nema hvað ég myndi eflaust fá mér ennþá ódýrari síma sem gerði bara það sem sími á að gera og það vel í stað þess að gera milljón hluti illa....

Author:  jon mar [ Tue 05. Apr 2011 22:28 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Ég er með N8 og finnst hann bara ágætur.

Ég er hinsvegar ekki með neinar svaka kröfur, þetta er bara sími fyrir mér með þolanlegri myndavél og nokkrum sniðugum fídusum :D

Author:  kalli* [ Tue 05. Apr 2011 22:37 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

jon mar wrote:
Ég er með N8 og finnst hann bara ágætur.

Ég er hinsvegar ekki með neinar svaka kröfur, þetta er bara sími fyrir mér með þolanlegri myndavél og nokkrum sniðugum fídusum :D


Fengið að sjá þessi N8 hjá vini mínum sem að eiga svoleiðis og satt að
segja þá er fjaaandi góð myndavél í þessu, engin Canon 550D en verulega
góð.

Author:  Jón Ragnar [ Wed 06. Apr 2011 08:36 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Málið er að Nokia framleiða alveg ÖMURLEGT OS :thdown:

Gerir Nokia síma automaticly ónothæfa :lol:

Author:  Einsii [ Wed 06. Apr 2011 09:06 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Svezel wrote:
Eftir að hafa verið með ýmsar kynslóðir af snjallsímum og núna síðast HTC Desire-Z þá held ég að ég myndi velja síðasta valkostinn.

Nema hvað ég myndi eflaust fá mér ennþá ódýrari síma sem gerði bara það sem sími á að gera og það vel í stað þess að gera milljón hluti illa....

Ég hallast að iPad og ódýrari síma leiðinni en ég fer samt í síma með góðann netbrowser og góðann tölvupóst
Já og auðvitað nenni ég ekki í síma með hægt og lélegt viðmót einsog Nokia.

Ætli HTC Wildfire sé ekki bara líklegastur

Author:  Viggóhelgi [ Wed 06. Apr 2011 09:26 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Iphone hefur alltaf staðið uppi sem sigurvegarinn að mínu mati - það EINA sem að android hefur yfir IOS er í raunu frýju appin. en það er svosem hægt að gera það sama í iphone með að cracka símann

pros
Skjárinn er mun skærari
Skjárinn er þægilegri í notkun
síminn er traustari í smíði að mér finnst oftast en android símarnir
hönnunin er mjög flott
Video out


Cons
Flash... ekkert flash hata það
svo er hann brothættari en aðrir símar



bíddu með að kaupa þér iphone 4.. 5 á að koma í sumar :)

Author:  Jón Ragnar [ Wed 06. Apr 2011 09:56 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Kemur auðvitað ódýr iphone líka

verður gaman að sjá prís á þannig

Author:  Einsii [ Wed 06. Apr 2011 10:20 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Það er spurning hvort nokkuð gerist í nýjum iPhone í sumar.
http://iphoneguide.is/iphone/apple-sta%C3%B0festir-wwdc-i-juni-en-sennilega-an-ios-5-og-iphone-5/

Annars er ég alveg viss um að ef ég fæ mér ekki iphone þá mun mig bara langa í svoleiðis eftir næstu kynningu :)

iPad leiðin er heit aðalega því þá þarf ég ekki að punga út fyrir honum sjálfur :)
Er spenntur sérstaklega útaf þessu hér
http://www.youtube.com/watch?v=N83kfz-vbkI

Author:  HAMAR [ Wed 06. Apr 2011 17:14 ]
Post subject:  Re: Enn einn símaþráðurinn

Svo má alltaf gera svona við iPad


Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/