bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur gangsettur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=49977 |
Page 1 of 3 |
Author: | aronjarl [ Sun 13. Mar 2011 16:19 ] |
Post subject: | Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur gangsettur |
Sælir, Ég er búinn að vera dútla seinustu mánuði með þetta. Minn annar bíll þegar ég var 17 ára var Peugeot 205 GTi 1.9, keypti hann úrbræddan og keypti svo annan klesstan. þetta var allt 2004. ![]() 205 gti var sá bíll sem maður lærði mesta ''car control'' enda að mínu mati skemmtilegasti framdrifsbíll sem ég hef nokkurtíman prófað.! Oversteer dúnkaði oft upp í ýmsum beygjum og lærði maður að höndla þetta litla ''drápstæki'' ![]() Ef svo að orði má komast. September núna 2010 keypti ég 205 GTi bíl sem ég var búin að vera reyna kaupa svolítið lengi. Ég er búin að vita um þennan bíl síðan 2003 og langaði alltaf í hann. ![]() Planið var að reyna gera 16v swap í hann, eitthvað sem mig langaði alltaf að gera þegar ég átti minn. Eftir leitir hér heima af mótor og pælingar að keyra mótor með standalonekerfi sem ég átti fyrir þetta bauðst mér mótor hér heima sem var búinn að standa mjög lengi og hefði þurft að taka í gegn. Ég ákvað að kanna markaðin útí bretlandi þar sem þetta er mjög vinsælt swap hjá þeim. Endanum fann ég mótor á Ebay í UK og verslaði þar mótor sem kom úr 205 bíl. Þar sem búið var að stytta soggreinina og fylgdi með vélarloom mem búið var að víra fyrir 205 bíl. Þessi mótor kom upphafi úr 405 Mi16 Peugeot. 1905cc 16v 160 hö, ál blokk. En orginal 205 GTi vélin er 130 hö 8v 1905cc Þessir bílar (pre-facelift) komu fyrst með álblokk og stalslífum, eftir mörg slys sem örsökuðu að fólk væri að missa þessa bíla útaf vegna þess hve mikið tourqe var í vélinni og þeir léttir að framan spóluðu sig útur beygju var ákveðið að þyngja vélina og setja stálblokk sem gerði þá mun '' leiðnlegri'' og þyngri. pre facelift eins og ég á núna er 875 kg seinni bílarnir voru 920kg ef ég man rétt. Hér er nýja vélin. ![]() ![]() ![]() ![]() Þetta keypti ég um áramótin núna. Ný tímareim og leiðarahjól, nýlegir Group N mótorpúðar og nýleg kúpling á þessu. ![]() ![]() ![]() Innrétting langleiðina úr til að komast í rafkerfið fyrir vélina! ![]() nýja vélin komin með kassa og rafkerfi á. ![]() Þarna er ég að taka fit-ings fyrir olíukæli af 8v vélinni og setja á 16v vélina. Ég ætlaði að nota rafkerfið sem ég fékk með vélina og rétt ECU með henni þar að leiðandi run-a hægagansrofa líka. en þetta rafkerfi passaði enganvegina! ég vil hafa alla rofa og mæla í lagi. (olíuhita í mælaborði - olíuþrýsting - hæðaskynjara f/ vatnið). Ég ákvað að run-a 8v orginal rafkerfið á þessa vél þeir gera það líka úti. Þá þarf ég að mixa kveikjuna á þennan mótor þar sem stöðuskynjarinn fyrir allt er í henni. Orginal Mi16 vélin er með nýrri innspítingu, sveifarásskynjara. ![]() ![]() ![]() fit-ar bara fint ofaní ![]() hér er búið að hlaupa yfir smá vinnu, búin að koma flest öllu fyrir og smíða slöngur og dót. ![]() ![]() ![]() Hér er ekki mikið pláss fyrir loftsíuna!" Eftir dágóða leit fann ég eina sem passaði með smá dundi.! ![]() Til að fá þessa vél til að virka með 8v rafkerfinu þarf að koma kveikjuni á mótorinn. Stöðuskynjarinn fyrir allt er í henni. Menn geta ímist keypti converter brakket á 20 þús úti í UK. Earl Grey fékk einstakling sem er á milli tannana á fólki og er að koma sterkur inn í drift menningu hérna á Íslandi. Quote: Hann breytti beygjuradíus helling hjá sér fyrir 0 kall, hann er komin með þvílíkt lock á bílinn sinn. Hann ætlar að keppa í drifti næsta sumar. Hann er mikið fyrir að rust-a húdd og sprengdi næstum upp sundahverfið. Hann er mikið fyrir landspeed run og sérleiðir. Hann er með besta drift kennaran (og er kennari sjálfur), hann gengur um í convert skóm og hefur mikið álit á OREBLU. Eina sem ég veit er að hann er kallaður Hulio Compact! ![]() ![]() ![]() Núna er eftir að fá þetta stykki smíðað til að koma kveikjuni á vélina. Þá á eftir að koma pústinu fyrir (með smá breytingu). Þá er þetta komið í gang vonandi! hér er video á samskonar bíl, virðist þetta vinna nokkuð skemmtilega svona orginal ![]() (en eru tune plön í gangi síðar) ![]() Planið er að eiga þennan bíl þar sem það eru alls ekki margir eftir hérna í lagi heima.! Þessir bílar hækka og hækka í verði með tímanum og verður erfiðara og erfiðara að finna góða bíla. Fyrir mér er þetta með meiri kúlfactor sem menn aka á miðað við aurinn og annað. Þessir bílar hafa vakið mikla athygli hjá mér síðan ég byrjaði að hafa áhuga á bílum. Það stefnir allt í það að þetta keyri og verði notað til mikillar skemmtunar í sumar! ![]() Mig langaði bara að búa til þráð um þetta þar sem ég efast ekki um að margir áhugamenn gætu haft gaman að þessu hjá mér ![]() edit... komið í gang ... video kv. |
Author: | ///MR HUNG [ Sun 13. Mar 2011 16:49 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Gaman að einhver sé að halda þessum old school græjum við ![]() Líklega ekki margir eftir. |
Author: | F2 [ Sun 13. Mar 2011 16:53 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Þetta er ekkert nema snilld |
Author: | jens [ Sun 13. Mar 2011 17:14 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Glæsilegt að þú sér að koma þessum saman, elska þessa bíla og get deilt þeirri skoðun með þér að þetta er uppáhalds framdrifsbíllinn minn. |
Author: | ingo_GT [ Sun 13. Mar 2011 17:36 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Hef alltaf fundist þessir bílar flottir, Öruglega skemtilegt að keyra þetta annars flott hjá þér ![]() |
Author: | Kristjan PGT [ Sun 13. Mar 2011 17:41 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Það er nú meira dundið í þér alltaf drengur ![]() Þetta á eftir að verða þrælskemmtileg græja með þessum mótor! Verður svo bara í bandi ef það þarf að stilla þykktina á kúplingunni eitthvað ![]() |
Author: | IvanAnders [ Sun 13. Mar 2011 18:05 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
HUUUULIIIOOOOOOOO........ Þetta verður fyndinn bíll ![]() |
Author: | fart [ Sun 13. Mar 2011 18:15 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Mjög svalt project ![]() |
Author: | Einarsss [ Sun 13. Mar 2011 20:52 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Flott project ![]() ![]() |
Author: | IvanAnders [ Sun 13. Mar 2011 21:19 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Óneitanlega gaman að sjá drenginn fjölventlavæða flotann, hver veit nema við fáum að sjá Hillerz rönna vanos einn daginn ![]() |
Author: | Kristjan [ Sun 13. Mar 2011 21:20 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Æðislegur bíll. Vel gert með 1.9. ![]() |
Author: | IvanAnders [ Sun 13. Mar 2011 21:39 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
Kristjan wrote: Æðislegur bíll. Vel gert með 1.9. ![]() Hann er að taka 1.9 úr og setja 1.9 í ![]() |
Author: | Kristjan [ Sun 13. Mar 2011 21:49 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
IvanAnders wrote: Kristjan wrote: Æðislegur bíll. Vel gert með 1.9. ![]() Hann er að taka 1.9 úr og setja 1.9 í ![]() Bleh, smá þreyta hérna, fattarinn ekki í gangi, er þetta þá 16 ventla í stað 8... |
Author: | aronjarl [ Sun 13. Mar 2011 22:01 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
planið er svo að reyna ná þessu í tæp 200 hö síðar.! ![]() |
Author: | íbbi_ [ Mon 14. Mar 2011 19:51 ] |
Post subject: | Re: Peugeot 205 GTi 1.9 ---- Mi16 swap, 7 ára draumur. |
brill! fundist þetta sniðugt síðan kunningi minn fór í svona swap |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |