bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
stýri stíft í lexus https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=49727 |
Page 1 of 1 |
Author: | ellipjakkur [ Thu 24. Feb 2011 20:53 ] |
Post subject: | stýri stíft í lexus |
sælir,, ég er að spá hvort eitthver hér geti hjálpað mér s.s. pabbi er á lexus rx330 2005 og þegar maður beygir í botn þá stífnar stýrið alltaf smá kafla af hringnum og verður svo aftur mjúkt aftur í smá kafla og stífnar aftur í smá o.s.f.r.v. fyrir nokkrum vikum fann ég að hann var orðinn stífur í stýri og kannaði stýris vökvann og þá vantaði upp á,, ég rúllaði með hann á pitstop og þeir bættu á hann fyrir mig og bíllinn var þá orðinn helvíti góður bara alveg þangað til núna en núna er þetta svo undarlegt því stýrið er ekki alltaf stíft heldur bara smá kafla alltaf það er nægur stýris vökvi og reimin á stýris dælunni snýst mjög vel,, og hún snerist alveg jafnt þótt ég prufaði að beygja einhver hér sem hefur lent í svipuðu veseni eða veit kannski hvað er að ? Kv. Elli |
Author: | IngóJP [ Thu 24. Feb 2011 21:19 ] |
Post subject: | Re: stýri stíft í lexus |
Þekki ekkert þessa bíla en ef það vantar vökva þá er leki einhverstaðar í kerfinu fáðu einhvern til að snúa stýrinu á meðan þú skoðar ofaní húddið ættir að sjá smit einhverstaðar. Ekki langt síðan að ég gerði við svona í einum bíl þá var bara smá gat á annari lögninni frá dælu í maskínuna spottaði það þegar það var lagt alveg á hann. |
Author: | fart [ Fri 25. Feb 2011 08:24 ] |
Post subject: | Re: stýri stíft í lexus |
Spurning um að drífa sig í ræktina ![]() |
Author: | Johnson [ Fri 25. Feb 2011 09:36 ] |
Post subject: | Re: stýri stíft í lexus |
það kemur stýrisstöng úr stýristúbunni og fer í gegnum hvalbakinn. Á stönginni er liður og hann gæti verið byrjaður að stirðna. lýtur ekki ósvipað út og þessi mynd sýnir ![]() |
Author: | ellipjakkur [ Fri 25. Feb 2011 10:47 ] |
Post subject: | Re: stýri stíft í lexus |
ætla að prófa þetta á eftir,, takk fyrir hjálpina ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Fri 25. Feb 2011 10:49 ] |
Post subject: | Re: stýri stíft í lexus |
Lenti í þessu á jeppanum, liðurinn liggur nálægt mótornum og hitinn þurrkaði hann upp. Var búinn að láta skipta um vökva og yfirfara allt, síðan fór ég í DogC og hann sprautaði bara olíu á liðinn og brosti bara. |
Author: | ellipjakkur [ Fri 25. Feb 2011 20:07 ] |
Post subject: | Re: stýri stíft í lexus |
þetta alveg svínvirkaði ![]() ![]() takk kærlega fyrir hjálpina Johnson og Thruller ! ![]() |
Author: | GudmundurGeir [ Sun 27. Feb 2011 11:07 ] |
Post subject: | Re: stýri stíft í lexus |
Sama vesen með avensisinn okkar... bara luba þetta vel ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |