bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hyundai Accent https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=49583 |
Page 1 of 1 |
Author: | IngóJP [ Tue 15. Feb 2011 03:51 ] |
Post subject: | Hyundai Accent |
Sælir félagar núna er litla hóran í fjölskyldunni að stríða mér lýsir þér þannig að þegar litla rellan er sett í gang á morgnana eða eftir langt stopp kemur sterk lykt úr pústinu eins og bíllinn sé að fá ofmikið bensín. Svo þegar það kemur að því að keyra úff þetta er nú kraftlaust fyrir en jesús þráinn það varla gerist neitt. Kokar eins og hann gangi ekki á öllum svo allti í einu vúmm kemur afl. Svo nær "bíllinn" eðlilegum vinnsluhita og þá er hann svona þokkalega til friðs eins mikið og accent sem er ekinn 185.000 getur verið. Ég er svona að skjóta á loftflæðiskynjara, eitthvað skynjaradót í pústinu tel mig vera búinn að útiloka falkstloft. Fire away þetta er svo gamalt er hægt að setja svona druslur í tölvu? |
Author: | Mazi! [ Tue 15. Feb 2011 10:45 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
þú getur allaveganna lullað honum útá hauga ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Wed 16. Feb 2011 01:00 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
Hugsa það sé ekki hægt að tengja tölvu við hann, en ég myndi byrja á basic hlutum eins og að þrífa upp kveikjulok og hamar, skipta um kerti, ath loftsíu. ![]() |
Author: | Ásgeir [ Thu 17. Feb 2011 00:12 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
Já mér dettur í hug kveikja, kertaþræðir eða kerti. Annars erum við aaaalltaf að fá svona bíla í Vöku. Ætli þessi komi ekki bráðlega.. ![]() |
Author: | Axel Jóhann [ Thu 17. Feb 2011 01:05 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
Getur líka bjallað á mig og ég get kíkt á þetta hjá þér Ingó minn ![]() |
Author: | IngóJP [ Thu 17. Feb 2011 04:15 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
Já ég þakka boðið bjalla á þig ef ég finn ekki útúr þessu verst að ég er ekki með neitt húsnæði bara boring að gera svona úti hendi mér í þetta um helgina höfum átt þennan síðan 2007-8 aldrei verið skipt um kerti frekar basic svo þetta kæmi mér ekkert á óvart hehe |
Author: | HPH [ Fri 18. Feb 2011 16:02 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
25.000kall í seðlum fyrir bílinn. |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 18. Feb 2011 17:59 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
HPH wrote: 25.000kall í seðlum fyrir bílinn. ég á lancer handa þér sem þarf nýja kúplingu og hluti fyrir skoðun, hann fæst á 40k cash, ekkert prútt. |
Author: | slapi [ Fri 18. Feb 2011 20:28 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
Axel Jóhann wrote: Hugsa það sé ekki hægt að tengja tölvu við hann, en ég myndi byrja á basic hlutum eins og að þrífa upp kveikjulok og hamar, skipta um kerti, ath loftsíu. ![]() Jú það er hægt að setja Accent í tölvu og innra greiningarforritð í bílnum er frekar þróað og besta greiningartæki sem hef nokkurntímann komið í tæri við er Hyundai tæki Ekkert kveikjulok í Accent. Gaman væri að á tölfræði hversu oft loftsía væri að valda kvillum þessu líkt. |
Author: | Axel Jóhann [ Sat 19. Feb 2011 16:07 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
ok vissi það ekki, hef voða lítið átt við svona eðal bifreiðar. ![]() |
Author: | IngóJP [ Sun 20. Feb 2011 19:31 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
slapi wrote: Axel Jóhann wrote: Hugsa það sé ekki hægt að tengja tölvu við hann, en ég myndi byrja á basic hlutum eins og að þrífa upp kveikjulok og hamar, skipta um kerti, ath loftsíu. ![]() Jú það er hægt að setja Accent í tölvu og innra greiningarforritð í bílnum er frekar þróað og besta greiningartæki sem hef nokkurntímann komið í tæri við er Hyundai tæki Ekkert kveikjulok í Accent. Gaman væri að á tölfræði hversu oft loftsía væri að valda kvillum þessu líkt. Akkurat pabbi á Terracan hann hefur 3 sinnum hringt allt bilað kokar afllaus leiðinlegur alltaf er sían stífluð |
Author: | Benz [ Mon 21. Feb 2011 10:03 ] |
Post subject: | Re: Hyundai Accent |
IngóJP wrote: Akkurat pabbi á Terracan hann hefur 3 sinnum hringt allt bilað kokar afllaus leiðinlegur alltaf er sían stífluð Er það diesel-bíll?? Á diesel Terracan sem hefur verið nánast viðhaldsfrír fyrir utan hefðbundna slithluti - og jú svo fóru helv... spíssarnir í vélinni núna fyrir jól og það var bara 250 þús. kall í varahluti ![]() Fann annars fullt af fínum upplýsingum tengt Hyundai á: http://www.hyundai-forums.com/ |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |