bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=49385
Page 1 of 4

Author:  gunnar [ Wed 02. Feb 2011 17:04 ]
Post subject:  Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

Jæja núna gaf sjónvarpsflakkarinn minn upp öndina..

Vantar nýtt box sem fyrst, þarf að styðja full hd og helst vera nettengdur..

Hverju eru menn að mæla með fyrir sem hagstæðastan pening?

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=23901

Hef notað svona tæki og viðmótið á þessu er mega þægilegt. Er svona að velta þessum alvarlega fyrir mér, en vildi athuga með krafts-infó fyrst.

Author:  Aron Andrew [ Wed 02. Feb 2011 17:16 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

Ég er með svona, finnst þetta algjör snilld!
Image

Author:  gunnar [ Wed 02. Feb 2011 17:22 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

Ehh.. Myndin virkar ei :lol:

Author:  Aron Andrew [ Wed 02. Feb 2011 17:28 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

gunnar wrote:
Ehh.. Myndin virkar ei :lol:


http://www.matthewsweet.net/2008/11/02/ ... ia-player/

Author:  gunnar [ Wed 02. Feb 2011 17:30 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

http://buy.is/product.php?id_product=1812

Svona græja?

Er þetta ekki svolítið dýrt miðað við að þetta er ekki hýsing ?

Author:  Aron Andrew [ Wed 02. Feb 2011 17:33 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

gunnar wrote:
http://buy.is/product.php?id_product=1812

Svona græja?

Er þetta ekki svolítið dýrt miðað við að þetta er ekki hýsing ?


Kannski frekar dýrt en mjög þægilegt, getur nettengt þetta, tengt uppí 3 flakkara í einu og spilar HD.
Svo er þetta bara alltaf tengt í sjónvarpið og þú pluggar síðan bara flakkara eða usb kubb þegar þú ætlar að fara að horfa á eitthvað.

Author:  gunnar [ Wed 02. Feb 2011 17:35 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

http://buy.is/product.php?id_product=867

Hver er munurinn á þessum hér og þessum sem ég póstaði ofar..

Frekar skrýtin verðlagning..

Author:  gunnar [ Wed 02. Feb 2011 17:43 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

Hringdi aðeins í þá og þeir segja þetta bara spurning um týpur , þessi dýrari er nýrri.

En þetta er samt frekar sniðugt Aron.

Ég er samt ekki alveg sannfærður að þetta henti mér betur. Argosy flakkarinn býður upp á 1tb geymslu vs Western Digital tækið. Og kostar ekki nema 5 kalli meira. En er auðvitað miklu stærri græja. USB lyklar er orðnir það stórir í dag að þetta er nú ekki neitt stórt vandamál, þ.e.a.s að WD tækið sé ekki með disk.

Einhver sem vill leggja orð í belg ?

Author:  sosupabbi [ Wed 02. Feb 2011 18:07 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

Ég er með ps3 tengda við sjónvarpið mitt og svo nota ég forrit sem heitir Vuze til að senda hvaða hd eða non hd efni sem ég vill yfir í ps3, Vuze er torrent forrit sem getur buið til Media server sem ps3 og sennilega flestar nýlegar leikjavélar geta lesið og það er að sjálfsögðu frítt. Tók samt eftir þvi hja mer þar sem ps3 er frekar langt frá routernum að hd efni sendist frekar illa efað ps3 er tengd þráðlaust við netið en það svínvirkar ef hún er tengd með snúru, fannst þetta sniðugri lausn en flakkari.

Author:  gunnar [ Wed 02. Feb 2011 18:58 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... _TViXSLIM1

Þessi lúkkar líka mjög vel, hafa flakkararnir frá Tvix ekki verið frekar góðir?

Author:  Þorsteinnlogi [ Wed 02. Feb 2011 19:35 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

gunnar wrote:
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=view&flo=product&id_top=3488&id_sub=4366&topl=&page=1&viewsing=ok&head_topnav=FLA_TViXSLIM1

Þessi lúkkar líka mjög vel, hafa flakkararnir frá Tvix ekki verið frekar góðir?

Pabbi var að kaupa svona fyrir sirka 4 dögum eða eitthvað svo það er frekar fljótt fyrir mig að fara að segja til um hvernig hann er til langtíma en hann er búinn að virka mjög vel og snar lúkkar líka :)

Author:  Hemmi [ Wed 02. Feb 2011 19:43 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

Ég mæli með Tvix.

Ég er eiginlega alveg hættur að nenna að setja á diskinn í honum, streama bara beint frá tölvunni, virkar mjög vel og líka í HD.

Author:  Astijons [ Wed 02. Feb 2011 19:47 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

http://reviews.cnet.com/blu-ray-players ... 71074.html

keypti þetta og ég get ekki verið glaðari í heiminum

spilar allt... mkv og shit
usb tengi.
með þráðlausu neti og fyrir netsnuru

svo keypti ég mér flakkara bara með usb ekki straumbreyti ef ég er að fá stuff hjá vinum...

þetta er það þægilegasta sem ég hef komist í...

hef aldrei fílað sjónvarpsflakkara og hef átt nokkra. bara vesen á þessu alltaf

edit: og já svo share-a ég bara download foldernum og spilarinn fann hann bara án þess að leita ... hef bara ekki lent í öðru eins hvað þetta var létt

Author:  Jón Ragnar [ Wed 02. Feb 2011 21:33 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

gunnar wrote:
http://buy.is/product.php?id_product=867

Hver er munurinn á þessum hér og þessum sem ég póstaði ofar..

Frekar skrýtin verðlagning..



Þessi dýrari er Plus

s.s eitthvað netflix shit sem virkar ekki hérna heima

Ekki kaupa köttinn í sekknum :lol:


http://www.wdc.com/en/products/homeente ... iaplayers/


Svona spilarar eru awesome og það er algjör óþarfi að hafa harðan disk með þessu líka, bara óþarfi sem bilar

Author:  Freyr Gauti [ Wed 02. Feb 2011 21:59 ]
Post subject:  Re: Hagstæðasti sjónvarpsflakkarinn...

Ég hef verið að nota AC Ryan Playon Mini, mjög sáttur við hann, síðan er hægt að kaupa þennan: http://tl.is/vara/20179
Munurinn á honum og Mini'num er að þú getur sett disk í hann og það er bittorrent client inn á honum. Reyndar eru þeir að fara gefa út seccond edition af þessum spilurum, myndi alveg skoða bíða eftir þeim.
Annars er ég núna með Dell Studio Hybrid tengda við sjónvarpið og XBMC inn á henni...það er klárlega málið! :P

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/