bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Mjög svo áhugaverðar umræður á stjörnu
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=4881
Page 1 of 2

Author:  Gunni [ Sun 07. Mar 2004 17:33 ]
Post subject:  Mjög svo áhugaverðar umræður á stjörnu

http://www.stjarna.is/forum/viewtopic.p ... sc&start=0

Ef þið nennið blaðiði þá í gegnum þetta ;)

Author:  GHR [ Sun 07. Mar 2004 17:53 ]
Post subject: 

Hehe mikið til í þessum umræðum..... Allavega þá ætla ég ekki einu sinni að reyna mótmæla að BMW bili meira en Benz :wink: Það er alltaf eitthvað smátterí að í okkar blessuðu bílum en ég kýs samt BMW :P

En ef ég væri leigubílstjóri þá myndi ég hiklaust velja BENZ :oops: En fíla ég Benz líka alveg hrikalega.....bara of dýrir bílarnir sem ég fíla verulega :wink:

Author:  hlynurst [ Sun 07. Mar 2004 18:00 ]
Post subject: 

Búinn að lesa þetta... magnað. :D

Author:  O.Johnson [ Sun 07. Mar 2004 18:25 ]
Post subject: 

Hvaða rugl er í gangi, það er verið að dissa bílinn minn þarna :evil:

Author:  Jss [ Sun 07. Mar 2004 22:47 ]
Post subject: 

Gaman að þessu, bara heilbrigður rígur milli fylgjenda helstu samkeppnisaðila hvors annars í lúxusbílaflokki. :D

Author:  bebecar [ Mon 08. Mar 2004 10:38 ]
Post subject: 

O.Johnson wrote:
Hvaða rugl er í gangi, það er verið að dissa bílinn minn þarna :evil:


Hvaða bíll er það?

Author:  iar [ Mon 08. Mar 2004 10:54 ]
Post subject: 

Renndi yfir þetta en nennti ekki að lesa lengra en þar sem fólk fór að stinga upp á að pósta hingað eingöngu til að æsa fólk upp. Barnalegra gerist það varla. :roll:

Gott samt að vita að það er ekki eingöngu hér sem umræða fer fljótt langt út fyrir upphaflegt umræðuefni og þá oft út í tóma vitleysu. :-)

Author:  arnib [ Mon 08. Mar 2004 11:09 ]
Post subject: 

iar wrote:
Renndi yfir þetta en nennti ekki að lesa lengra en þar sem fólk fór að stinga upp á að pósta hingað eingöngu til að æsa fólk upp. Barnalegra gerist það varla. :roll:


word :?

Author:  bebecar [ Mon 08. Mar 2004 11:39 ]
Post subject: 

Ef að þið eru að vitna í mig þar sem ég segi eftirfarandi
Quote:
Vill einhver fórna sér í að bauna á kraftsíðuna - það verður allt vitlaust. Þeir eru sko margir þar sem sjá EKKERT nema BMW og eru heittrúaðir...

þá megið þið lesa þetta í samhengi við svarið á undan.

Quote:
sveinn skrifaði:
...Hvað myndi t.d. gerast ef maður segði "BENZ ERU DRUSLUR!!!!". Ég er viss um að allir hefðu eitthvað um málið að segja.



Þetta sagði ég fyrr í þessum þræði og átti ég þá við að til þess að fá líf í spjallið, þá væri ágætt að stuða menn dálítið. Að segja að Benz væru druslur hefði örugglega tilætluð áhrif og spjallverjar færu á skrið. Vöknuðu til lífsins. Það er síðan skrítið hvað menn voru fljótir að grípa þessa hugmynd á lofti, aðlaga hana dálítið og segja að “BMW” væru druslur! Kasta sand yfir í næsta sandkassa.

Mér finnst reyndar alltaf betra að færa rök fyrir ágæti þess sem maður telur vera gott, en að skíta út eitt til að upphefja annað. Það er nefnilega ekkert mál í þessu tilfelli og óþarfi að draga BMW inn í þá umræðu. Ég legg til að menn skrái sig inn á BMW kraft og beri mál sitt þar á borð. Þeir hafa örugglega eitthvað um málið að segja og kannski er jafnvel hægt að leiðrétta einhvern misskilning.

Jæja, þetta varð þó reyndar til þess að menn vöknuðu dálítið.


Þið megið ekki gera mér upp aðrar skoðanir en þær sem ég hef. Svarið frá mér er til hið sama og hjá Sveini - að umræðan snúist strax í það að sverta hina (kasta sandi í hinn sandkassan). Nokkuð sem gerist bæði hér og á Stjörnunni.

Ég er afskaplega hrifinn af BÆÐI BMW og Benz og finnst sérlega leiðinlegt þegar rígur er á milli þessara klúbba. Eins þótti mér leiðinlegt hve margir tóku ílla í það á sínum tíma að þýsku eðalbílaklúbbarnir þrír myndu hittast.

Þessu svara ég semsagt - þ.e.a.s. ef það er verið að vitna í mig :wink:

Author:  Haffi [ Mon 08. Mar 2004 16:52 ]
Post subject: 

bebecar wrote:

Ég er afskaplega hrifinn af BÆÐI BWM og Benz og finnst sérlega leiðinlegt þegar rígur er á milli þessara klúbba. Eins þótti mér leiðinlegt hve margir tóku ílla í það á sínum tíma að þýsku eðalbílaklúbbarnir þrír myndu hittast.




:shock:

Author:  bebecar [ Mon 08. Mar 2004 16:53 ]
Post subject: 

Haffi wrote:
bebecar wrote:

Ég er afskaplega hrifinn af BÆÐI BWM og Benz og finnst sérlega leiðinlegt þegar rígur er á milli þessara klúbba. Eins þótti mér leiðinlegt hve margir tóku ílla í það á sínum tíma að þýsku eðalbílaklúbbarnir þrír myndu hittast.




:shock:


:lol: eins gott að leiðrétta þetta - gæti misskilist :lol:

Author:  Jói [ Mon 08. Mar 2004 16:55 ]
Post subject: 

bebecar wrote:

:lol: eins gott að leiðrétta þetta - gæti misskilist :lol:

Já, ég var farinn að halda að þú værir að tala um http://www.bwm.org :wink:

Author:  Haffi [ Mon 08. Mar 2004 16:55 ]
Post subject: 

hahaha nei hvur andskotinn :lol:

Author:  fart [ Mon 08. Mar 2004 17:49 ]
Post subject: 

bebecar tekin í "stjörnuna".. hehe

Author:  saemi [ Mon 08. Mar 2004 18:50 ]
Post subject: 

hehehe ááááiii... ááááíi...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/