bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Mazda RX-8
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=4879
Page 1 of 5

Author:  Moni [ Sun 07. Mar 2004 15:40 ]
Post subject:  Mazda RX-8

Fór í ræsi í gær og var að skoða þennan magnaða grip... Man að bebcar var alltaf að tala um þennan bíl, sem mér fannst þá ekkert merkilegur, en ég er mjög sammála honum núna, mér finnst þessi bíll ALGJÖR snilld!!! Vægt til orða tekið :D

Ég spjallaði aðeins við sölumanninn og hann sagði mér að þegar þeir fá næstú sendingu af RX8 þá ætla þeir að reyna að hafa bíl til að reynsluaka, og ég væri til í að prófa þetta kvikindi...

Það var nú orðrómur um að gömlu RX7 vélarnar entust ekki nema rétt rúmlega 100 þús kílometra, en þeir segjast vera búnir að endurhanna rotorana og eigi þessi að endast í allavega 200 þús...
Þetta er náttúrulega ekki túrbó vél þessi nýja, þannig þeir ná betri endingu... En hins vegar gefur Mazda upp að þessi vél brenni mikilli olíu, ég fékk ekki að vita hversu mikið en það er eðlilegt að glænýr bíllinn hreyfi olíuna slatta...

Author:  fart [ Sun 07. Mar 2004 15:45 ]
Post subject: 

eins og fyrstu árin af E39 M5 framleiðslunni, c.a. líter á hverja 2 tanka af bensíni.

Author:  Kristjan [ Sun 07. Mar 2004 19:09 ]
Post subject:  Re: Mazda RX-8

Moni wrote:
Það var nú orðrómur um að gömlu RX7 vélarnar entust ekki nema rétt rúmlega 100 þús kílometra, en þeir segjast vera búnir að endurhanna rotorana og eigi þessi að endast í allavega 200 þús...


Hver var gallinn við mótorana í RX7?

Author:  Jón Ragnar [ Sun 07. Mar 2004 21:25 ]
Post subject: 

slitnuðu og svona

Author:  bebecar [ Sun 07. Mar 2004 21:27 ]
Post subject: 

Þetta er bara stórsnjöll hönnun.

Ég er ekki enn búin að kíkja á þennan bíl en er á leiðinni.

Author:  Kristjan [ Sun 07. Mar 2004 22:36 ]
Post subject: 

Jón Ragnar wrote:
slitnuðu og svona


Gæti einhver hérna gefið mér aðeins greinabetra svar.. elaborate please.

Author:  Jss [ Sun 07. Mar 2004 22:49 ]
Post subject: 

Gömlu mótorarnir slitnuðu sökum þess að olíuverkið var ekki nógu vel hannað þannig að oft vantaði olíu efst á "rotor-ana" þannig að það var lítið um smurningu á þeim, en þetta er endurbætt á nýja mótornum þannig að þeir ættu að vera komnir með lausn á þeim vanda.

Málið með RX7 bílana hér á landi er væntanlega léleg umhirða um vélina, enda gæjabíll mikill og væntanlega þrykkt mikið og hugsanlega minna hugsað um viðhald. :?

Author:  Kristjan [ Sun 07. Mar 2004 23:08 ]
Post subject: 

Málið er að það var verið að bjóða með nýlega uppgerðan RX7

Author:  Jss [ Sun 07. Mar 2004 23:13 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Málið er að það var verið að bjóða með nýlega uppgerðan RX7


Ég hef heyrt að þetta séu allsvakalega skemmtileg aksturstæki en síðan er alltaf spurningin með ástand vélar drifbúnaðar og þess háttar, en ef bíllinn er nýuppgerður þá er alltaf spurningin sú hvort allt hafi verið gert eftir kúnstarinnar reglu og hversu vel hafi verið farið í vélina, ég yrði ekki hissa ef ég á Buyer's guide fyrir svona bíla einhvers staðar í blaðaflóðinu hjá mér.

Hvaða árgerð af bíl er þetta og hversu mikið er hann ekinn og hvernig á litinn?

Author:  uri [ Sun 07. Mar 2004 23:14 ]
Post subject:  Re: Mazda RX-8

Kristjan wrote:
Hver var gallinn við mótorana í RX7?


Þríhyrningurinn slitnar hratt og þá verður mórotinn óþéttur

Author:  Kristjan [ Sun 07. Mar 2004 23:32 ]
Post subject: 

Jss wrote:
Kristjan wrote:
Málið er að það var verið að bjóða með nýlega uppgerðan RX7


ég yrði ekki hissa ef ég á Buyer's guide fyrir svona bíla einhvers staðar í blaðaflóðinu hjá mér.

Hvaða árgerð af bíl er þetta og hversu mikið er hann ekinn og hvernig á litinn?


Svartur, skráður á bilasolur.is 94 þúsund, 94 árgerð.

Author:  Jss [ Mon 08. Mar 2004 00:03 ]
Post subject: 

Lítur mjög vel út, lakk og innrétting, en það fer ekkert á milli mála að hann er með háan spoiler, þarf varla að taka það fram í sölulýsingunni. :?

Ég hafði mikinn áhuga á því að eignast svona bíl fyrir ekki svo löngu síðan en vélamálin hræddu mig frá því, en ef þessi vél er nýupptekin þá ætti þetta að vera mikið gaman fyrir peninginn ("a lot of bang for your buck"). ;)

Author:  Svezel [ Mon 08. Mar 2004 00:35 ]
Post subject: 

Það er nokkuð sem þarf að athuga áður en þú kaupir RX7 sem þú kannski veist fyrir.

Þessir bílar eyða miklu og alveg svaklegu þegar verið er að þrykkja þessu. Kunningi minn átti svona bíl fyrir nokkrum árum og bensínkostnaðurinn var skuggalegur.

Yfirbyggingin er úr áli þ.a. þeir eru oft illa dældaðir á víð og dreif sem er dýrt og leiðinlegt að laga.

Lakkið á þeim er ekki merkilegt, og er fljótt að mattast. Skoðaðu það vel og ef hann hefur verið sprautaður aftur athugaðu hvort það hefur verið gert almennilega.

Svo er náttúrlega þetta með vélarviðhaldið sem allir vita en ný upptekin vél ætti að vera gott mál.

Fáðu bara að prófa og skoðaðu hann vel, maður er fljótur að finna búðingslyktina ef hún er til staðar. Ef þetta er svo góður bíll þá segi ég bara go for it 8)

Author:  ///MR HUNG [ Mon 08. Mar 2004 01:25 ]
Post subject: 

Ef þetta er svarti með haldfanginu þá ætti að vera búið að mála hann því hann valt innannbæjar fyrir nokkrum árum síðan.

Author:  Kristjan [ Mon 08. Mar 2004 09:39 ]
Post subject: 

Eigandinn vinnur á réttingar/sprautuverkstæði Hölds.

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/