bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=48305 |
Page 1 of 2 |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 25. Nov 2010 09:26 ] |
Post subject: | Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
einhver hérna sem hefur heyrt eitthvað um þetta frumvarp eða veit hvenar það verður tekið fyrir? orðinn frekar þreittur á að bíða eftir þessu, langar að fara komast á BMW. minnir það sé Árni páll sem eigi að sansa það |
Author: | Zed III [ Thu 25. Nov 2010 09:37 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Það er búið að leggja frumvarpið fram en það verður væntanlega eitthvað í að það verði afgreitt. Þetta er verulega hættulegt frumvarp fyrir ríkið þar sem það myndar sér skaðabótaábyrgð fyrir þau lán sem eru lögleg en verða færð niður. |
Author: | drolezi [ Thu 25. Nov 2010 12:45 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Það er búin fyrsta umræða og það er núna til afgreiðslu í efnahags- og skattanefnd. Það bað allskonar stofnanir og samtök um umsagnir og frestur til að senda inn umsagnir rann út í dag. Líklegast kemur nefndin saman á þriðjudag til að komast að niðurstöðu. |
Author: | Twincam [ Thu 25. Nov 2010 12:49 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Hvernig er það, nú var konan með bíl sem hún yfirtók lán fyrir á sínum tíma... svo borgaði hún af þessu á meðan lánið hækkaði, frysti það og svona... en svo til að losna við lánið, þá þurfti ég að borga alveg milljón inn á það. Halda þeir, sem vita, að einhver séns sé að fá einhvað af þessum pening til baka? Væri alveg til í milljónina mína aftur.. ![]() |
Author: | drolezi [ Thu 25. Nov 2010 15:05 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Já, það á að vera hægt að fá einhvern pening af því til baka. Verður samt að hafa í huga að þú ert í hópi þá með þeim seinustu sem verða útreiknaðir út af auknu flækjustigi. Þetta frumvarp setur svo tímamörk á það sem betur fer. |
Author: | gulli [ Thu 25. Nov 2010 15:07 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Ég var að heyra af því að fólk hefur verið að koma virkilega vel útur þessum breytingum á lánum sem hafa verið síðustu misseri,, til að mynda sagði frænka mín mér það að kona sem hún er að vinna með hafi bara átt bílinn sinn skuldlausan eftir breytinguna og átt inni hjá fjármögnunarfyrirtækinu nokkur hundruðþúsund ![]() |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 25. Nov 2010 15:59 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
ok gott að heyra að þetta sé allt að koma. ég þakka skjót svör ![]() svona er þegar maður er hvorki með net, sjónvarp né útvarp heima hjá sér, ansi erfitt að fylgjast með þannig |
Author: | íbbi_ [ Thu 25. Nov 2010 16:01 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
hef séð suma fá allt að þí að geta kallast leiðréttingu, en marga sitja í sömu súpuni og áður |
Author: | Orri Þorkell [ Thu 25. Nov 2010 16:17 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
já þessir nýju vextir eru alveg útúr kortinu, himinháir miðað við gömlu vextina sem maður var BÚIN að borga. ætli það séu ekki aðalega þessir vextir sem eru að koma í veg fyrir að þessi lán lækki eitthvað af viti |
Author: | Zed III [ Thu 25. Nov 2010 16:28 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Pappas 730i wrote: já þessir nýju vextir eru alveg útúr kortinu, himinháir miðað við gömlu vextina sem maður var BÚIN að borga. ætli það séu ekki aðalega þessir vextir sem eru að koma í veg fyrir að þessi lán lækki eitthvað af viti ekkert "ætli", þeir eru að gera það. Einnig að það sé heimilt að reikna vexti á van/ofgreiðslum. |
Author: | Hrannar E. [ Thu 25. Nov 2010 16:56 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
hjá fólki sem ég þekki kom þetta illa út.. ef þau halda áfram að borga lánið eins og það var endurútreiknað þá eru þau að tvíborga bílinn |
Author: | Thrullerinn [ Thu 25. Nov 2010 18:49 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Hrannar E. wrote: hjá fólki sem ég þekki kom þetta illa út.. ef þau halda áfram að borga lánið eins og það var endurútreiknað þá eru þau að tvíborga bílinn Prófaðu að reikna verðtryggt lán hjá ÍLS til 40 ára ![]() miðað við 5% verðbólgu Afborgun 20.000.000 kr. Vextir 26.290.874 kr. Verðbætur 97.265.283 kr. Greiðslugjald 36.000 kr. Samtals greitt 143.592.156 kr. http://ils.is/index.aspx?GroupId=975 |
Author: | Kristjan [ Thu 25. Nov 2010 18:52 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Þetta er svo mikil geðveiki að það nær engri átt. |
Author: | bimmer [ Thu 25. Nov 2010 18:59 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
Kristjan wrote: Þetta er svo mikil geðveiki að það nær engri átt. Já og svo er talað um að þeir sem dirfðust til að reyna að sleppa undan þessari geðveiki væru áhættufíklar og óráðsíufólk ![]() |
Author: | Kristjan [ Thu 25. Nov 2010 21:54 ] |
Post subject: | Re: Frumvarp um ólögleg myntkörfulán, sem voru tekin yfir |
bimmer wrote: Kristjan wrote: Þetta er svo mikil geðveiki að það nær engri átt. Já og svo er talað um að þeir sem dirfðust til að reyna að sleppa undan þessari geðveiki væru áhættufíklar og óráðsíufólk ![]() Það er alveg sama hvernig lán maður velur sér hér á landi, það er alltaf fubar. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |