bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vesen með aftermarket xenon (HID) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=48263 |
Page 1 of 1 |
Author: | Logi [ Mon 22. Nov 2010 13:10 ] |
Post subject: | Vesen með aftermarket xenon (HID) |
Hérna er umræða á stjörnunni varðandi xenon og þar kemur þetta meðal annars fram: Quote: Ég kannaði þetta með xenon ljósgjafa í halogen ljósum hjá Umferðarstofu. Það verður tekið á þessu í skoðunum, send verða tilmæli til skoðunarstöðva og löggan kemur til með að gera út með "Boðun í Skoðun" hjá þeim sem þráast við að nota þetta. Bling mennirnir með bláu ljósin verða bara að setja bláar díóður undi sílsinn eða splæsa í krómaðan trompett aftast á pústið til að fullnægja skreytiþörfinni.... ... r_embedded Þetta er nýlegt komment af f4x4: "Ég setti Xenon perur í 4runnerinn minn, en gafst upp á þeim í sumar eftir tveggja vetra notkun. Þær virtust alls ekki henta fyrir luktirnar í bílnum. Dreifingin á lága geislanum var slæm og háu ljósin virtust aðallega beinast upp á við. Að minnsta kosti fannst mér ég alls ekki fá góða lýsingu nema vera með kveikt á kösturum líka. Þeir eru ekki í dýrari kantinum en lýsa þó ágætlega fram á veginn. Ég fékk ekki athugasemdir við Xenon ljósin í skoðun, en menn, sem ég var að mæta blikkuðu iðulega á mig vegna þess að lágu ljósin hjá mér virtust blinda þá. Einnig kvörtuðu samferðamenn mínir, sem lentu fyrir framan mig í bílalest undan því að lágu ljósin hjá mér skinu í augun á þeim um baksýnisspegilinn. Ég fór með bílinn í ljósastillingu en það breytti engu. Ég reif því Xenon búnaðinn úr í sumar og setti aftur hefðbundnar H4 perur í. Má segja að þarna hafi 25 þúsund kall farið fyrir lítið". Í fyrsta innleggi mínu er undirhlekkur þar sem fram kemur að seljendur ólöglegra xenon kitta í USA voru skkkaðir til að endurgreiða kaupendum að fullu fyrir þenna ólöglega búnað. Ég á ekki von á að menn sæki krónur til þeirra sem hafa verið að selja þetta undir borðið hérlendis. Neytendavernd er enþá á steinaldarstigi hér. Hafa menn ekkert verið að lenda í vandræðum hjá skoðunarstöðvunum hingað til með þessi kerfi? |
Author: | DiddiTa [ Mon 22. Nov 2010 13:26 ] |
Post subject: | Re: Vesen með aftermarket xenon (HID) |
Jú kerfið sem ég keypti passaði klárlega ekki og einhver millistykki sem ég fékk með líka fyrir e39 pössuðu ekki heldur, náði að skítmixa þessu einhvernveginn í og fékk svo endurskoðun því þetta lýsti bara í allar aðrar áttir en það átti að gera, endaði með að rífa þetta úr og setja gömlu bara aftur í. |
Author: | Aron Fridrik [ Mon 22. Nov 2010 14:29 ] |
Post subject: | Re: Vesen með aftermarket xenon (HID) |
málið er að xenon er ekkert hægt að setja í ljós sem hafa bara spegil. Þá ertu með ljós sem eru hönnuð fyrir ákveðið "lítið" ljósmagn. aftur á móti ef þú ert með projector eins og er á myndinni fyrir neðan þá sker hann geislann fullkomlega og allt í góðu.. þessvegna eru flestir bílar sem eru með OEM xenon með projector ljós. Einu undantekningarnar sem mér dettur í hug er Volvo XC90 prefacelift og Lexus IS gamla. ![]() ég fór með minn í skoðun í sumar og skoðunarmaðurinn sagði að ljósgeislinn væri alveg perfect ![]() ég er með 6000k xenon *EDIT* las stjörnuþráðinn eftir á og þetta stendur allt þar ![]() |
Author: | jon mar [ Mon 22. Nov 2010 18:50 ] |
Post subject: | Re: Vesen með aftermarket xenon (HID) |
Aron Fridrik wrote: málið er að xenon er ekkert hægt að setja í ljós sem hafa bara spegil. Þá ertu með ljós sem eru hönnuð fyrir ákveðið "lítið" ljósmagn. aftur á móti ef þú ert með projector eins og er á myndinni fyrir neðan þá sker hann geislann fullkomlega og allt í góðu.. þessvegna eru flestir bílar sem eru með OEM xenon með projector ljós. Einu undantekningarnar sem mér dettur í hug er Volvo XC90 prefacelift og Lexus IS gamla. ![]() ég fór með minn í skoðun í sumar og skoðunarmaðurinn sagði að ljósgeislinn væri alveg perfect ![]() ég er með 6000k xenon *EDIT* las stjörnuþráðinn eftir á og þetta stendur allt þar ![]() Aldrei klikkað í skoðun og aldrei lent í blikki sjálfur, er með 8000k xenon og þetta lýsir svo geðveikt betur í gegnum projectorana heldur en halogen. Ég hinsvegar myndi fara varfærnislega í að setja svona í hefðbundin ljós. |
Author: | Freyr Gauti [ Mon 22. Nov 2010 19:49 ] |
Post subject: | Re: Vesen með aftermarket xenon (HID) |
Ég var með Xenon í MK4 Golf sem ég átti, bæði í háa og lága geislanum, fannst alltaf góð lýsingin á báðum geislum en hugsa að þeir sem mættu mér hafi ekki verið mjög hrifnir af þessu. Ég svo sem passaði mig á að þegar að ég var innanbæjar að nýta ég mér að ljósin væru hæðarstillanleg og hafði þau í lægri stillingu. Átti hann ekki það lengi að ég þyrfti að fara með hann í skoðun með Xenoninu, svo sem feginn að ég slapp við það. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |