bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 30. May 2025 19:45

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 22. Nov 2010 13:10 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Posts: 2725
Location: Hafnarfjörður
Hérna er umræða á stjörnunni varðandi xenon og þar kemur þetta meðal annars fram:

Quote:
Ég kannaði þetta með xenon ljósgjafa í halogen ljósum hjá Umferðarstofu.
Það verður tekið á þessu í skoðunum, send verða tilmæli til skoðunarstöðva og löggan kemur til með að gera út með "Boðun í Skoðun" hjá þeim sem þráast við að nota þetta.

Bling mennirnir með bláu ljósin verða bara að setja bláar díóður undi sílsinn eða splæsa í krómaðan trompett aftast á pústið til að fullnægja skreytiþörfinni....

... r_embedded

Þetta er nýlegt komment af f4x4:

"Ég setti Xenon perur í 4runnerinn minn, en gafst upp á þeim í sumar eftir tveggja vetra notkun. Þær virtust alls ekki henta fyrir luktirnar í bílnum. Dreifingin á lága geislanum var slæm og háu ljósin virtust aðallega beinast upp á við. Að minnsta kosti fannst mér ég alls ekki fá góða lýsingu nema vera með kveikt á kösturum líka. Þeir eru ekki í dýrari kantinum en lýsa þó ágætlega fram á veginn.
Ég fékk ekki athugasemdir við Xenon ljósin í skoðun, en menn, sem ég var að mæta blikkuðu iðulega á mig vegna þess að lágu ljósin hjá mér virtust blinda þá. Einnig kvörtuðu samferðamenn mínir, sem lentu fyrir framan mig í bílalest undan því að lágu ljósin hjá mér skinu í augun á þeim um baksýnisspegilinn.
Ég fór með bílinn í ljósastillingu en það breytti engu. Ég reif því Xenon búnaðinn úr í sumar og setti aftur hefðbundnar H4 perur í.
Má segja að þarna hafi 25 þúsund kall farið fyrir lítið".

Í fyrsta innleggi mínu er undirhlekkur þar sem fram kemur að seljendur ólöglegra xenon kitta í USA voru skkkaðir til að endurgreiða kaupendum að fullu fyrir þenna ólöglega búnað. Ég á ekki von á að menn sæki krónur til þeirra sem hafa verið að selja þetta undir borðið hérlendis.
Neytendavernd er enþá á steinaldarstigi hér.


Hafa menn ekkert verið að lenda í vandræðum hjá skoðunarstöðvunum hingað til með þessi kerfi?

_________________
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Nov 2010 13:26 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 30. Dec 2004 14:16
Posts: 429
Jú kerfið sem ég keypti passaði klárlega ekki og einhver millistykki sem ég fékk með líka fyrir e39 pössuðu ekki heldur, náði að skítmixa þessu einhvernveginn í og fékk svo endurskoðun því þetta lýsti bara í allar aðrar áttir en það átti að gera, endaði með að rífa þetta úr og setja gömlu bara aftur í.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Nov 2010 14:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
málið er að xenon er ekkert hægt að setja í ljós sem hafa bara spegil. Þá ertu með ljós sem eru hönnuð fyrir ákveðið "lítið" ljósmagn. aftur á móti ef þú ert með projector eins og er á myndinni fyrir neðan þá sker hann geislann fullkomlega og allt í góðu..

þessvegna eru flestir bílar sem eru með OEM xenon með projector ljós. Einu undantekningarnar sem mér dettur í hug er Volvo XC90 prefacelift og Lexus IS gamla.

Image


ég fór með minn í skoðun í sumar og skoðunarmaðurinn sagði að ljósgeislinn væri alveg perfect :thup:

ég er með 6000k xenon


*EDIT*
las stjörnuþráðinn eftir á og þetta stendur allt þar :lol:

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Nov 2010 18:50 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Aron Fridrik wrote:
málið er að xenon er ekkert hægt að setja í ljós sem hafa bara spegil. Þá ertu með ljós sem eru hönnuð fyrir ákveðið "lítið" ljósmagn. aftur á móti ef þú ert með projector eins og er á myndinni fyrir neðan þá sker hann geislann fullkomlega og allt í góðu..

þessvegna eru flestir bílar sem eru með OEM xenon með projector ljós. Einu undantekningarnar sem mér dettur í hug er Volvo XC90 prefacelift og Lexus IS gamla.

Image


ég fór með minn í skoðun í sumar og skoðunarmaðurinn sagði að ljósgeislinn væri alveg perfect :thup:

ég er með 6000k xenon


*EDIT*
las stjörnuþráðinn eftir á og þetta stendur allt þar :lol:


Aldrei klikkað í skoðun og aldrei lent í blikki sjálfur, er með 8000k xenon og þetta lýsir svo geðveikt betur í gegnum projectorana heldur en halogen.

Ég hinsvegar myndi fara varfærnislega í að setja svona í hefðbundin ljós.

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 22. Nov 2010 19:49 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sun 03. Oct 2004 19:08
Posts: 645
Location: Akureyri
Ég var með Xenon í MK4 Golf sem ég átti, bæði í háa og lága geislanum, fannst alltaf góð lýsingin á báðum geislum en hugsa að þeir sem mættu mér hafi ekki verið mjög hrifnir af þessu. Ég svo sem passaði mig á að þegar að ég var innanbæjar að nýta ég mér að ljósin væru hæðarstillanleg og hafði þau í lægri stillingu. Átti hann ekki það lengi að ég þyrfti að fara með hann í skoðun með Xenoninu, svo sem feginn að ég slapp við það.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 25 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group