Page 1 of 1

Smá aulaspurning

PostPosted: Wed 03. Mar 2004 14:23
by Kristjan
Nú er ég að fara til danmerkur/hollands í sumar og ætlaði að koma við í þýskalandi.. bara svona í leiðinni. Langar að kaupa púst undir burrann. Gæti pakkað því niður í tösku og tekið það með mér? :lol:

PostPosted: Wed 03. Mar 2004 17:05
by Qwer
tjaa... já já.. ég gerði það með hníf..a afhverju ekki með púst... þetta er samt spurning um það hvort þú ert að tala um stút eða heilt pústkerfi... :wink:

PostPosted: Wed 03. Mar 2004 19:16
by Hulda
það er nú samt spikfeitur munur á hníf og pústi!!!
en afhverju ekki bara að skella því í kassa!!!
það er ekki einsog þú sért að fara að smygla þessu
til landsins!!

PostPosted: Wed 03. Mar 2004 22:57
by Kristjan
Ég vil bara sleppa við það að borga tolla. Er einhver möguleiki á því að sleppa við tollana?

PostPosted: Wed 03. Mar 2004 23:22
by jth
Hmm...sleppa við tollana segirðu? Fer allt eftir því hvað þetta er stór græja, ef hún er nógu stór gætirðu prófað að skríða upp í hana og labba í gegn: :lol:
Image

En að öllu gamni slepptu þá minnir mig að dýrasti einstaki hlutur sem þú megir taka með þér tollfrjálst inn í landið geti verið ~14þús kr., og heildarverðmæti varnings sem þú flytur með þér í kringum 21 þús kr.

Hitt er svo annað mál að með því að taka þetta í farangri sparðu þér góðan pening í flutningskostnað - sem skilar sér svo í lægri heildarálagningu!

PostPosted: Wed 03. Mar 2004 23:27
by Bjarkih
Tekið af http://www.dutyfree.is/front/tollareglur/
Ferðabúnaður og annar farangur
Við komu til landsins mega ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, hafa með sér tollfrjálst þann farangur, t.d. fatnað og annan ferðabúnað, sem þeir fóru með til útlanda.
Ferðamenn mega ennfremur hafa meðferðis tollfrjálst varning sem fenginn er í ferðinni eða í tollfrjálsri verslun hér á landi (við brottför eða heimkomu) fyrir allt að 46.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 23.000 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 23.000 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld miðað við verðmæti sem umfram er. Upplýsingar um innflutningsgjöld er í síma 425-0650.

PostPosted: Thu 04. Mar 2004 02:28
by saemi
Besta vonin um ad sleppa med pust inn, er ad dulbua tad sem golfsett. Eg hef komid i gegn med pustkerfi, en madur verdur ad vera tilbuinn ad turfa ad borga ef madur er ekki med kvittun sem er innan marka :o

PostPosted: Thu 04. Mar 2004 21:46
by Kristjan
Saemi: Hehe takk fyrir þessa fróðlegu ábendingu, prófa Golfsettið ;)