bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Toyota Pickup https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=4649 |
Page 1 of 1 |
Author: | gunnar [ Fri 20. Feb 2004 18:33 ] |
Post subject: | Toyota Pickup |
Jæja, Ég var að horfa á þátt úr 3 Seríu af Top Gear þáttunum með honum Jeremy Clarkson. Í þessum þætti þá tóku þeir sig til og ákváðu að prufa hversu toyota pickupar væru sterkir. Þeir fóru og keyptu á eitthver 1.000 pund eldgamlann hilux held ég, og ætluðu nú aldeilis að leika sér að rústa honum greyinu. En jæja, þeir byrjuðu á að keyra honum á tré, svo ákváðu þeir að keyra á honum í gegnum timburhús, lömdu í hann með stálkúlu, en allt kom fyrir ekkert, helvítis toyotan gekk alltaf ennþá og virkaði alveg fínt. Þá tóku þeir upp á því að keyra honum út í sjó og láta hann vera þar þegar kæmi flóð, flóðið kom og tók bílinn og þau tók eitthverja 5 tíma að finna hann aftur, þeir héldu nú að kagginn væri dauður en nei nei, smá WD 40 og brúmm brúmm í gang með hann. Þannig að þeir ákvaðu að færa þetta yfir á aðeins annað level, þeir létu hann falla úr ca 5-10 metra hæð, og létu hjólhýsi falla ofan á hann! Hann gekk enn og virkaði fínt! Allur beyglaður en það er allt í lagi. Síðasta tilraun þeirra var sú að það átti að fara sprengja frekar há hús í london þannig þeir settu bílinn ofan á húsið áður en það yrði sprengt, þetta var geðveikt stór blokk, tugi hæða. Þegar húsið var sprengt þá féll bíllinn niður með því (of course) og fór allur í skrall, EN!!!!! með skítamixi og teipi þá fór hann aftur í gang og þeir gátu keyrt hann, núna eru þeir búnir að reisa minnisvarða fyrir þennan eldgamla útureyðilagða toyota pickup ![]() ![]() |
Author: | Haffi [ Fri 20. Feb 2004 18:38 ] |
Post subject: | |
hehe ég á einmitt þessa þætti... þetta er MERKILEGUR DJÖFULL! ![]() ![]() |
Author: | Chrome [ Fri 20. Feb 2004 18:58 ] |
Post subject: | :) |
hehe nett...sko svo eru menn ekki að fatta þessa Toyotu dýrkun íslendinga ![]() ![]() |
Author: | Jss [ Fri 20. Feb 2004 20:12 ] |
Post subject: | |
Þetta er þáttur sem ég verð að sjá, nú þarf maður að fara í gegnum Top Gear safnið. ![]() |
Author: | gunnar [ Fri 20. Feb 2004 23:52 ] |
Post subject: | |
Get ef það er eitthver áhugi er fyrir sett þessa tvö þætti, (er eiginlega á tveimur) á 100 mb server, hver þáttur reyndar 600 mb ![]() |
Author: | benzboy [ Sat 21. Feb 2004 14:27 ] |
Post subject: | |
Sá þennan þátta - þvílíkt og annað eins en hann var líka frekar druslulegur í lokin |
Author: | Bjarkih [ Sat 21. Feb 2004 18:09 ] |
Post subject: | |
Er þessi server opinn okkur hér á kraftinum og ef svo, hver er þá addressan? Hvað heita þættirnir eða númer hvað eru þeir? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |