bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Er hringvegurinn malbikaður?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=46318
Page 1 of 2

Author:  SteiniDJ [ Tue 10. Aug 2010 06:15 ]
Post subject:  Er hringvegurinn malbikaður?

Var bara að velta því fyrir mér, er hægt að keyra hringinn (með góðu móti) án þess að enda með ónýtt lakk?

Author:  gjonsson [ Tue 10. Aug 2010 07:54 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Þetta er allt malbikað nema einhverjir spottar á austurlandi.
Ef þú fylgir þjóðvegi 1, þá þarftu að fara yfir Breiðdalinn og Breiðdalsheiði og þeir vegir eru báðir ómalbikaðir.
Getur samt losnað við þessa kafla með því að fara í gegnum Fáskrúðsfjörð og Reyðarfjörð. Þá eru þetta ekki nema um 15 km sem eru ómalbikaðir.
Sú leið lengir hinsvegar hringinn um nokkra kílómetra.
Svona var þetta a.m.k. þegar ég keyrði þetta síðast, gæti vel verið að menn hefðu tekið sig til og gert eitthvað í þessu.

Author:  FrikkiGaur [ Tue 10. Aug 2010 11:09 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

http://www.vegagerdin.is/vegakerfid/slitlog/
hérna er það sem vegagerðin gefur út =]

Author:  Einzi [ Tue 10. Aug 2010 11:59 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Það er smá spotti innst í Berufirðinum sem er ennþá möl. Annars getur þú keyrt hringinn á malbiki.
Það segir samt ekki að þú fáir ekki steinköst. Það eru vegaviðgerðir víða og svoleiðis.

Author:  bimmer [ Tue 10. Aug 2010 12:01 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

SteiniDJ wrote:
Var bara að velta því fyrir mér, er hægt að keyra hringinn (með góðu móti) án þess að enda með ónýtt lakk?


Ef þú vilt halda lakkinu perfect þá skaltu sleppa hringnum :wink:

Author:  oddur11 [ Tue 10. Aug 2010 12:15 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

tape-aðu bara framendan

Author:  Lindemann [ Tue 10. Aug 2010 12:24 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

ég fór hringinn um daginn, þetta er bara örlítill spotti sem er eftir af malarvegi þarna fyrir austan....það er ekkert til að tala um.

aftur á móti fékk ég nokkur slæm steinköst, þó svo að ég væri að passa mig.

Author:  arnibjorn [ Tue 10. Aug 2010 12:25 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Keyra hringinn. Mála allan bílinn.

Problem solved.

Author:  dolgur [ Tue 10. Aug 2010 16:32 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

fljuga bara hringin, odyrara og fljotlegra og ekkert steinkast

Author:  IngóJP [ Tue 10. Aug 2010 17:21 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Tók hringinn á 16 tímum fyrir nokkrum mánuðum mjög fínt sá helling. Stoppaði fyrst á Reyðarfirði fékk mér pizzu og kíkti aðeins niðra bryggju og lagði svo í hann aftur mæli hiklaust með þessu

Author:  Hemmi [ Tue 10. Aug 2010 17:57 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

færð þér bara svona haldara :D

Image

Author:  urban [ Tue 10. Aug 2010 18:41 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

IngóJP wrote:
Tók hringinn á 16 tímum fyrir nokkrum mánuðum mjög fínt sá helling. Stoppaði fyrst á Reyðarfirði fékk mér pizzu og kíkti aðeins niðra bryggju og lagði svo í hann aftur mæli hiklaust með þessu


ekki mundi ég fyrir mitt litla líf nenna því

Author:  SteiniDJ [ Tue 10. Aug 2010 20:04 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Þakka öll svör! Það væri gaman að keyra hringinn og skoða landið sem maður býr á, sérstaklega ef maður fær sér eitthvað nýtt í haust. Annars sé ég á myndinni sem þú gafst mér gjonsson að þetta ætti nánast allt að vera malbikað, fyrir utan smá smá spöl á austurlandi. Held að þetta yrði bara gaman. 8)

Author:  urban [ Tue 10. Aug 2010 20:14 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

SteiniDJ wrote:
Þakka öll svör! Það væri gaman að keyra hringinn og skoða landið sem maður býr á, sérstaklega ef maður fær sér eitthvað nýtt í haust. Annars sé ég á myndinni sem þú gafst mér gjonsson að þetta ætti nánast allt að vera malbikað, fyrir utan smá smá spöl á austurlandi. Held að þetta yrði bara gaman. 8)



ein góð regla
reiknaðu með 25% meiri tíma en þú gerir núna
já og ábiggilega 50% meira af peningum :)

Author:  SteiniDJ [ Tue 10. Aug 2010 21:40 ]
Post subject:  Re: Er hringvegurinn malbikaður?

urban wrote:
SteiniDJ wrote:
Þakka öll svör! Það væri gaman að keyra hringinn og skoða landið sem maður býr á, sérstaklega ef maður fær sér eitthvað nýtt í haust. Annars sé ég á myndinni sem þú gafst mér gjonsson að þetta ætti nánast allt að vera malbikað, fyrir utan smá smá spöl á austurlandi. Held að þetta yrði bara gaman. 8)



ein góð regla
reiknaðu með 25% meiri tíma en þú gerir núna
já og ábiggilega 50% meira af peningum :)


Haha, hef það í huga. :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/