Sælir limir,
Ég er að vinna að smá verkefni og vantar nokkrar gamlar fartölvur. Tegund eða árgerð skiptir ekki máli, hvaða pentium vélar sem eru duga. Þær mega vera með ónýtum batteríum, hleðslutækjum og stýrikerfum, vélbúnaðurinn þarf bara að "detta í gang."
Þannig að ef á heimilum kraftslima leynast úreldar vélar sem hætt er að nota skal ég glaður koma og fjarlægja þær.
Þetta er fyrir gott, mótorsporttengt málefni
ég veit þetta ætti eiginlega að vera í flóamarkaðnum en mér veitir ekki af aukaathyglinni