bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 31. May 2025 12:46

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 13 posts ] 
Author Message
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 17:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/1082835/?t=1281022744

Quote:

5.8.2010 | 15:39
"...ekki dísil..." "Snýst um ímyndina."

Tilsvar Jóns Gnarr borgarstjóra um nýja borgarstjórabílinn, sem reyndar er nú aðeins í þriggja mánaða láni, þess efnis að það sé nú munur að þetta sé "ekki dísil..." minnir á það að hér á landi og í Bandaríkjunum ríkir merkileg afstaða gagnvart dísilvélum.

Aðeins 2,5% bílaflotans ameríska eru dísilbílar en helmingur allra bíla í Evrópu og athyglisvert er hvernig menn skauta yfir kosti dísilbíla í umræðunni.

Sem dæmi nefni ég forsetabílinn okkar en mér gafst einnig tækifæri til að ræða það mál stuttlega við forsetann þegar ég hitti hann nýlega.

Ég rakti fyrir honum að Lexus-tvinnbíll forsetaembættisins eyddi ekki minna eldsneyti en sama stærð af BMW 7 dísilbíl sem væri jafn hraðskreiður, jafn viðbragðsfljótur og gerði alla hluti jafnvel, hvað snerti þægindi og notagildi.

Hins vegar væri tvinnbíllinn undanþeginn gjöldum vegna þess að hann teldist vistvænn og væri hann þó með mun flóknari og dýrari vélbúnaði en samsvarandi dísilbíll og að því leyti til dýrari.

Þegar við bætist afslátturinn á opinberum gjöldum af tvinnbílinn væri hann þar með í raun mun dýrari fyrir ríkissjóð en samsvarandi dísilbíll.

"Já, en þetta snýst um ímyndina" svaraði forsetinn og hitti naglann á höfuðið með svo snjöllu og hreinskilnu tilsvari sem ég gef honum stórt prik fyrir. Með þessu átti forsetinn við að íslensk stjórnvöld hafa viðurkennt tvinnbíla sem vistvæna en ekki dísilbíla.

Jón Gnarr viðurkennir í viðtalinu við mbl. is að hann hafi ekki farið yfir allt dæmið og er að því leyti jafn hreinskilinn og forsetinn.

Það vantar margt inn í dæmið svo sem það að tveggja tonna bíll er næstum því tvöfalt dýrari í viðhaldi og fjármagskostnaði en helmingi léttari bíll, hvort sem knúinn er á vistvænan hátt eða ekki.

Jón Gnarr er sjálfum sér samkvæmur að því leyti til að hann lýsti því yfir að hann byði sig fram í borgarstjóraembættið á þeim forsendum að fá þægilegt, skemmtilegt og vel borgað starf.

Að því leyti til lá það í orðum hans að hann viðurkenndi það sem aðrir leyndu fyrir kjósendum meðal annars það að honum finnst flott að láta aka sér um á sem stærstum og dýrustum bíl.

Það væri því úr takti við ummæli hans í kosningabaráttunni ef hann færi að láta sjá sig á "hallærislegum" minni bíl.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 19:09 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 18. Mar 2006 17:17
Posts: 898
nema að lexusinn er svona 1000000000000 sinnum fallegri en 7línan

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 19:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Lexusinn hjá Óla er virkilega flottur bíll 8)

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 19:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Það er nú ekki alveg pointið í þessu.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 19:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Turbo- wrote:
nema að lexusinn er svona 1000000000000 sinnum fallegri en 7línan


Mér finnst það akkúrat öfugt, finnst Lexusinn afar óspennendi bíll.

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 20:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
SteiniDJ wrote:
Turbo- wrote:
nema að lexusinn er svona 1000000000000 sinnum fallegri en 7línan


Mér finnst það akkúrat öfugt, finnst Lexusinn afar óspennendi bíll.

x2

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 21:26 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
það er nú alveg óþarfi að ræða eitthvað þennan blessaða forsetabíl.............og því síður þetta hybrid system yfir höfuð!

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 05. Aug 2010 21:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
hybrid dótið mengar náttúrulega mun meira en bensín eða dísel þegar allt er tekið með.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 06. Aug 2010 08:21 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Posts: 5509
Location: 108 Reykjavík
Bjarkih wrote:
hybrid dótið mengar náttúrulega mun meira en bensín eða dísel þegar allt er tekið með.



Jebb, rafgeymarnir eru algert eitur

_________________
Ódýrir OEM Bosch súrefnisskynjarar til sölu!

Vantar þig aðstoð við að panta af ebay eða annarstaðar á netinu? Sendu mér PM.

1994 BMW E36 332i sedan
1991 Chevrolet Camaro Z28
1982 Toyota Carina A60
2005 Ford Fiesta ST


Svezel wrote:
Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 06. Aug 2010 11:16 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jul 2004 13:39
Posts: 1099
Location: Sønderborg, Danmark
verð eiginlega að, vera sámmála turbo.. mér finnst 7 an alveg hrikalega óspennandi hönnun, hins er þessi lexus alveg vel töff, skoðaði hann einu sinni almennilega, og þetta er vel svalur bíll

_________________
Merkur(sierra) xr4ti


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 06. Aug 2010 11:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Veit einhver hvað svona hybrid system er að virka lengi áður en það þarf að endurnýja það?

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 06. Aug 2010 15:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10
Posts: 2220
///MR HUNG wrote:
SteiniDJ wrote:
Turbo- wrote:
nema að lexusinn er svona 1000000000000 sinnum fallegri en 7línan


Mér finnst það akkúrat öfugt, finnst Lexusinn afar óspennendi bíll.

x2


x3, ég myndi aldrei borga háa upphæð fyrir Lexus því að ég sé aldrei neitt annað en Toyota í sparifötum í hausnum á mér þegar ég sé Lexus.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 10. Aug 2010 03:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég ætla ekki að láta nappa mig við að segja að lexus sé drasl.. eða e-h álíka því það eru þeir ekki, þvert á móti,

en það er svo hinsvegar annað mál að þeir hafa aldrei náð að kveikja í mér, mér finnst þeir eldast afar illa flestir hverjir útlitslega.. og bara ekki með "it"
ég skoðaði bíl sambærilegan forseta bílnum, og það vantar ekki tæknina eða búnaðin í þetta, og stórir lexusar eru með afar smooth ride..

en ég tæki S bíl eða 7 línu frekar hands down..

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 13 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 2 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group