bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Hugmyndir AGS um stórfellda hækkun eldsneytisskatta
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=45885
Page 1 of 1

Author:  Benz [ Thu 15. Jul 2010 16:19 ]
Post subject:  Hugmyndir AGS um stórfellda hækkun eldsneytisskatta

Fékk þetta sent til mín í pósti áðan þar sem ég er félagsmaður í FÍB

FÍB wrote:
Hugmyndir AGS um stórfellda hækkun eldsneytisskatta
-bensín og dísilolía hækka um 16 krónur á lítra!

Í skýrslu um íslenska skattakerfið sem Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn (AGS) vann að beiðni Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra er meðal annars að finna hugmyndir um stórfellda hækkun eldsneytisskatta. Hækkun eldsneytisskatta á samkvæmt skýrslunni að skila ríkissjóði um 3,8 milljörðum króna árlega.

Næðu þessar skattahækkanir fram að ganga hefði það í för með sér um 16 krónu hækkun á hvern lítra af bensíni og dísilolíu. Bifreiðakostnaður vísitölufjölskyldu myndi aukast um meira en 50.000 krónur yfir árið - bara vegna nýrra eldsneytisskatta. Bensínlítri myndi hækka úr 193,40 krónum á lítra, sem er verðið í dag, upp í 209,40 krónur á lítra. Dísillítri færi úr 190,40 krónum á lítra í 206,40 krónur. Tankfyllingin (50 l.) myndi hækka um 800 krónur.

Til viðbótar við þessi beinu áhrif á ráðstöfunartekjur heimilanna skilar hækkun eldsneytisgjalda sér beint út í verðlagið með tilheyrandi verðbólgu og hækkun á lánaskuldbindingum heimila og fyrirtækja.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda er alfarið á móti hækkun eldsneytiskatta í anda tillagna AGS fyrir fjármálaráðherra. Hugmyndirnar eru lagðar fram í kjölfar áforma um vegtolla á meginvegi út frá höfuðborgarsvæðinu. Eldsneytisgjöld og vegtollar eru auknar álögur á heimilin og koma verst niður á þeim sem eru með lægri ráðstöfunartekjur og þurfa að sækja þjónustu um langan veg. Tengingin við Noreg kemur spánskt fyrir sjónir enda ljóst að meðal Norðmaðurinn þarf að vinna mun styttri vinnudag til þess að eiga fyrir sínum bensínkostnaði; samanborið það sem við þekkjum hér á landi í núverandi skattaumhverfi.

Kveðja,
stjórn og starfsfólk FÍB


Á meðan þessi ríkisstjórn er við völd má reikna með því að skattar hækki, og hækki og hækki og hækki....

:burn:

Author:  SteiniDJ [ Thu 15. Jul 2010 16:26 ]
Post subject:  Re: Hugmyndir AGS um stórfellda hækkun eldsneytisskatta

Nú eru topparnir hjá AGS dólgarnir okkar og geta ráðskast með okkur eins og þeir vilja. Svo eru vinstrimenn algjörar gungur og geta ekkert gert nema að hækka skatta og refsa þeim sem hafa staðið sig vel og neitað að binda sig í einhverri lánagildru.

:thup: :thup: Fyrir þeim. :thup: :thup:

Author:  ValliFudd [ Thu 15. Jul 2010 22:27 ]
Post subject:  Re: Hugmyndir AGS um stórfellda hækkun eldsneytisskatta

Svona skattahækkanir skila ekki krónu, MUN færri keyra bíla í dag, eða nota þá mun minna.

Eins og með hækkun á sköttum í ÁTVR. Sala minnkaði um 35%.. Sem hlítur að skila minni hagnaði. Svo það var sem dæmi þvílíkt fail hjá þessum aulum. Virðist ekki vera hugsað langt þegar skattar eru hækkaðir. Salan helst ekkert óbreytt...

Author:  Wolf [ Sat 17. Jul 2010 02:09 ]
Post subject:  Re: Hugmyndir AGS um stórfellda hækkun eldsneytisskatta

Mjög þægilegt fyrir þessa aula að geta bent á AGS sem vonda kallinn í þessum hækkunum....

Þessir snillingar hjá AGS vilja líka flatan 25% VSK á ALLT sumsé hækka matvörur sem eru í 7% uppí 25% á einu bretti... hvað haldið þið að það geri fyrir verðbólguna okkar og lánin....í beinu framhaldi??

Get some one else to do your dirty work!!

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/