bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Launakönnun
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=45512
Page 1 of 3

Author:  HAMAR [ Sat 26. Jun 2010 13:11 ]
Post subject:  Launakönnun

Í tilefni af menntunar umræðunni þá langar mig að gera smá launa könnun.
Ég er bara með sveinspróf og hef alltaf séð eftir því að hafa ekki menntað mig meira,
spurninginn hvort að maður sé endilega að græða á því launalega séð er svo allt annað mál.

En hvet ég samt alla til að mennta sig eins mikið og þeir mögulega geta,
fúllt að vera með eftirsjá í ellinni.

Author:  Jón Ragnar [ Sat 26. Jun 2010 13:27 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

Þetta verður leiðinlegur þráður :|

Author:  gstuning [ Sat 26. Jun 2010 13:48 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

:)

Djöfull kemur maður illa út að vera busy í háskóla :)

Author:  JonFreyr [ Sat 26. Jun 2010 14:11 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

Kemur bara frekar vel út að vera lærlingur hérna úti og fá borgað í öðrum gjaldmiðli en ISK :)

Author:  doddi1 [ Sat 26. Jun 2010 16:36 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

þetta kemur út á sirka 250-350 á mánuði

Author:  urban [ Sat 26. Jun 2010 16:43 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

Föstum mánaðar launum sem að gefa ca 4,6 - 4,7 millur á ári.

er að sækja um lænahækkun sem að hendir mér yfir 5 millur á ári

Author:  doddi1 [ Sat 26. Jun 2010 16:51 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

það væri fínt að fá líka starfssvið þeirra sem eru yfir 400þúsund kallinum

þ.e.a.s ef menn vilja tjá sig opinberlega um sín laun

Author:  urban [ Sat 26. Jun 2010 17:16 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

Ahh já.
Vinn á Fiskmarkaði Vestmannaeyja.
óhemju mikil vinna á bakvið þetta, sérstaklega feb - maí. þá er tímakaupið alveg skelfilegt, en á móti kemur að maður vinnur sér inn helling af hvíldartímum (sem að eru ekki innifaldir í þessum tölum þarna að ofan)

og svona úr því að þetta tengist mentunarþræðinum.

pungapróf, Vélavörður, meirapróf, vinnuvélaréttindi, eins sem að ég nota í vinnunni er lyftara réttindi

Author:  Jónas Helgi [ Sat 26. Jun 2010 17:18 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

Pípari í noregi með 37-40.000Kr.- NOK á mánuði (Fyrir skatt *30-36%*)

Author:  burger [ Sat 26. Jun 2010 18:51 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

1200 dagvinna

1700 yfirvinna

fiskvinnsla FTW :thup:

Author:  urban [ Sat 26. Jun 2010 19:06 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

burger wrote:
1200 dagvinna

1700 yfirvinna

fiskvinnsla FTW :thup:


voðalega er það furðulegur munur á milli dagvinnu og yfirvinnu.

þar sem að yfirvinnulaun eiga að vera 180% af dagvinnulaunum ef að ég man rétt

Author:  sh4rk [ Sat 26. Jun 2010 19:09 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

yfirvinna á að vera 80% af dagvinnu

Author:  demi [ Sat 26. Jun 2010 19:15 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

sh4rk wrote:
yfirvinna á að vera 80% af dagvinnu


Þú meinar væntanlega 180% ;), 80% væri frekar leiðinlegt yfirvinnukaup :bawl:

Author:  elfar [ Sat 26. Jun 2010 19:15 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

sh4rk wrote:
yfirvinna á að vera 80% af dagvinnu


+ dagvinna

Author:  urban [ Sat 26. Jun 2010 19:23 ]
Post subject:  Re: Launakönnun

elfar wrote:
sh4rk wrote:
yfirvinna á að vera 80% af dagvinnu


+ dagvinna



sem að gerir akkurat 180%

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/