bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=45182
Page 1 of 2

Author:  jon mar [ Mon 07. Jun 2010 21:10 ]
Post subject:  Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

Ég var ekki alveg viss hvort þetta ætti eitthvað meira heima hér, fannst þetta ekkert passa inní flóamarkaðinn.


Ég er allavega með hérna 110 fermetra 4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum sem ég er til í að leigja sem orlofsíbúð út í sumar. Vel staðsett í rólegu hverfi á Akureyri, uppá brekku, stutt í sund og rækt, bónus verslun í næsta nágrenni sem og samkaup strax og 10-11 og miðbærinn er í sæmilegu göngufæri.

Eldhús með öllu þessu helsta, nema örbylgjuofni.

1 hjónaherbergi með vel stóru rúmi, 2 minni herbergi með 120cm rúmi hvort. Sumsé vel hægt að koma 6 manns í rúm.

Ágæt stofa með hornsófa, tv og tilheyrandi.

Baðherbergi með baðkari /m sturtu.

Gasgrill

Ég skaffa lök og rúmföt ef óskað er, ekki sængur né kodda.

Aðeins hóflega reglusamt fólk kemur til greina, vil ekki koma að kofanum svo til fokheldum. Eigum við ekki að setja aldurstakmarkið við ca 25 ára þroska.

Áhugasamir geta haft samband við mig í pm eða jafnvel símanúmerið í undirskrift ef þeir þora.




Dagar sem eru fráteknir eru:

- 16 -20 Júní
- 30 júní - 4 júlí
- 29 júlí - 2 ágúst.

Author:  doddi1 [ Tue 08. Jun 2010 00:03 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak um bíladaga og í suma

hvernig er verðmiðinn? ;) fyrir eina helgi

Author:  hjolli [ Tue 08. Jun 2010 01:38 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak um bíladaga og í suma

eg skal leigja þetta yfir bíladaga...
er reyndar bara 20, en ég myndi bara nota þetta til að fara að sofa og í sturtu :l
reyki ekki :thup:

Author:  jon mar [ Tue 08. Jun 2010 15:10 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak um bíladaga og í suma

íbúðin er bara mögulega leigð út nú þegar, ansi fljótt að ské allt á internetinu yfir þessa helgi :lol:

Author:  jon mar [ Thu 10. Jun 2010 00:12 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak um bíladaga og í suma

Búið að taka frá dagana 2-5 ágúst.

Ekki er enn búið að staðfesta bíladaga alveg 100% en það er í pípunum.

Author:  jon mar [ Thu 10. Jun 2010 14:12 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak um bíladaga og í suma

bíladagar er fráteknir

Author:  jon mar [ Sun 20. Jun 2010 17:42 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

upp, nóg laust í sumar.

Author:  Hlynur___ [ Mon 21. Jun 2010 01:29 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak um bíladaga og í suma

doddi1 wrote:
hvernig er verðmiðinn? ;) fyrir eina helgi

Author:  jon mar [ Thu 24. Jun 2010 01:00 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

upp

Author:  jon mar [ Sun 27. Jun 2010 12:50 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

á ekkert að skella sér norður í sumar eða? 8)

Author:  jon mar [ Sun 04. Jul 2010 14:48 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

Dagar sem eru fráteknir:

- 29 júlí - 2 ágúst.

Alveg kjörið að skella sér norður í núna í Júlí, nú eða Ágúst. Bara vera í bandi og festa sér daga.

Author:  jon mar [ Sun 11. Jul 2010 22:34 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

upp

Author:  jon mar [ Sun 18. Jul 2010 21:58 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

upp

Author:  JBV [ Wed 21. Jul 2010 12:25 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

Get mælt með þessari íbúð sem Jón er að bjóða til útleigu á Akureyri. Ég tók hana á leigu í 4 daga í kring um mánaðarmótin s.l. og var mjög ánægður með dvöl mína og fjölskyldu minnar í húsinu. Þarna er allt það hellsta til staðar. Þrjú mjög fín herbergi með þægilegum rúmum. Stofan er notaleg með stórum mjúkum leðurhornsófa og 29" TV. Einnig var til staðar góð internet-tenging. Ágætis eldhús (fullbúið utan uppþvottavélar) með borði og stólum fyrir 6 manns. Baðið var ágæt með sturtu og baði.

Þó húsið sé komið til ára sinna og innréttingar á baði og eldhúsi séu ekki í anda 2007 - þá er þetta hús og innviði þess snyrtilegt og notalegt. Staðsetningin er frábær, því einungis er 10 mínútna gangur niður í miðbæ og 5 mín. í sund.

Image

Author:  jon mar [ Fri 23. Jul 2010 15:21 ]
Post subject:  Re: Fyrir þá er vilja leigja íbúð á Ak í sumar.

:thup:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/