bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=44998 |
Page 1 of 6 |
Author: | oddur11 [ Thu 27. May 2010 02:01 ] |
Post subject: | ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
getur einhver komið með góða ástæðu eða rök fyrir þvi að kjósa ekki Bestaflokkinn? |
Author: | T-bone [ Thu 27. May 2010 05:35 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Það eru engar! ![]() ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 27. May 2010 08:02 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
þetta er flokkur sem fær eingöngu fylgi út af því að hann er fullur af frægu fólki.. ef ég væri að reyna að vera svona sniðugur fengi ég ekkert fylgi.. og Einar Örn Benediktsson er í 2. sæti.. ég myndi aldrei kjósa hann.. og brandarinn gæti orðið dálítið þreyttur ef við þurfum að hlusta á hann í 4 ár |
Author: | SteiniDJ [ Thu 27. May 2010 08:29 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Aron Fridrik wrote: þetta er flokkur sem fær eingöngu fylgi út af því að hann er fullur af frægu fólki.. ef ég væri að reyna að vera svona sniðugur fengi ég ekkert fylgi.. og Einar Örn Benediktsson er í 2. sæti.. ég myndi aldrei kjósa hann.. og brandarinn gæti orðið dálítið þreyttur ef við þurfum að hlusta á hann í 4 ár Ég túlka þetta þannig að þeir séu að fá svona mikið fylgi útaf því hversu þreytt fólk er orðið hefðbundinni borgarpólitík. Verður skrautlegt, jafnvel skemmtilegt, að sjá hvernig þeir ætla að koma að málunum eftir kosningar. |
Author: | Bjarkih [ Thu 27. May 2010 08:32 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Aron Fridrik wrote: þetta er flokkur sem fær eingöngu fylgi út af því að hann er fullur af frægu fólki.. ef ég væri að reyna að vera svona sniðugur fengi ég ekkert fylgi.. og Einar Örn Benediktsson er í 2. sæti.. ég myndi aldrei kjósa hann.. og brandarinn gæti orðið dálítið þreyttur ef við þurfum að hlusta á hann í 4 ár finnst þér ekki frekar þreytt að borga feitann reikning fyrir öll hin klúðrin sem voru ekki einu sinni fyndin, eins og t.d. OR? Það er ekki eins og það sé eitthvað um raunhæfa valkosti. |
Author: | ///MR HUNG [ Thu 27. May 2010 08:51 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Aron Fridrik wrote: þetta er flokkur sem fær eingöngu fylgi út af því að hann er fullur af frægu fólki.. ef ég væri að reyna að vera svona sniðugur fengi ég ekkert fylgi.. og Einar Örn Benediktsson er í 2. sæti.. ég myndi aldrei kjósa hann.. og brandarinn gæti orðið dálítið þreyttur ef við þurfum að hlusta á hann í 4 ár Þú jafn hress og gamla fólkið sem fattar þetta ekki ![]() |
Author: | Jónas [ Thu 27. May 2010 08:53 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Ég get ekki séð hvernig flokkur fullur af listamannapakki getur verið verri en þetta pakk sem situr núna. Eru allir búnir að gleyma bullinu sem var í gangi í fyrra(?) varðandi borgarstjórastólinn!?!?!?!? Það var eins og atriði úr lélegri grínmynd |
Author: | Einarsss [ Thu 27. May 2010 08:55 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Að mínu mati þegar maður kýs besta flokkinn þá er maður að gefa gömlu flokkunum fingurinn og gefa til kynna að maður vill breytingu. |
Author: | HPH [ Thu 27. May 2010 09:02 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Besti flokkurinn er EKKI djók það mikill misskilningur alvaran er löngu tekinn við. Ef þú vilt halda þessum helvítis fjórflokk en þá þá ekki kjósa Besta flokkinn. Hanna Birna hagar sér þarna eins og einhver drottning, Dagur B. Er þarna eins og einhver prins sem vill fá völdinn og gerir ekkert annað en að væla út í sjálfstæðisflokkinn, Sóley Tómasdóttir hún hatar alla kallmenn bókstaflega hatar allt með typpi og er bara Heimsk (nb. Hugsið um börnin, tæknina sem er mesta lágkúra sem despret ráðherrar nota sem er það allra lægsta aðferð sem til er). Framsókn við búum ekki í sveit. ég er sammála einarisss |
Author: | fart [ Thu 27. May 2010 09:22 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Það má vera að innanum hóp af óhæfu liði sem hefur hingað til verið kosið í allskonar stöður leynist menn sem geta eitthvað. Ég þekki allavega einn til tvo úr þeim hópi sem eru vel frambærilegir. En .. Ég leyfi mér t.d. að efast um að Jón Gnarr sé eitthvað verri en t.d. Ólafur F Magnússon (fyrrum borgarstjóri) og fleir fyrrum borgarstjórar. |
Author: | ValliFudd [ Thu 27. May 2010 09:33 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Þetta fólk er ekkert að fara að "klúðra" borginni. Frambjóðendur Besta flokksins á börn í leikskólum, grunnskólum, menntaskólum og á foreldra og ömmur og afa. Það er ekki verið að fara að gefa skít í neitt, vonandi kemst flokkur til valda í Reykjavík sem er ekki EINGÖNGU að hugsa um eigið rassgat heldur hugsa um borgina.. Það væri gaman svona til tilbreytingar... |
Author: | Bjarkih [ Thu 27. May 2010 09:39 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Horfið á þetta: http://www.pressan.is/pressupennar/LesaSolvaTryggvason/jon-gnarr-gerir-krofu-um-borgarstjorastolinn Jón Gnar ownaði þetta. |
Author: | arnibjorn [ Thu 27. May 2010 10:42 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Ef að besti flokkurinn væri ekki til staðar þá hefði ég ekki nennt að fara kjósa. Mitt atkvæði hefði ekki skipt neinu máli af því að það skiptir engu máli hver er í þessari borgarstjórn, tekst öllum að fokka þessu upp. Ég ætla hinsvegar að kjósa bestaflokkinn, bara af því að Jón Gnarr er snillingur ![]() |
Author: | Jónas [ Thu 27. May 2010 11:03 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Bjarkih wrote: Horfið á þetta: http://www.pressan.is/pressupennar/LesaSolvaTryggvason/jon-gnarr-gerir-krofu-um-borgarstjorastolinn Jón Gnar ownaði þetta. Gaf mér tíma og hlustaði á þetta, hann er góður. Ólafur er hinsvegar greinilega eitthvað vanheill á geði |
Author: | Einarsss [ Thu 27. May 2010 11:05 ] |
Post subject: | Re: ástæður fyrir að kjósa ekki Bestaflokkinn?? |
Jónas wrote: Bjarkih wrote: Horfið á þetta: http://www.pressan.is/pressupennar/LesaSolvaTryggvason/jon-gnarr-gerir-krofu-um-borgarstjorastolinn Jón Gnar ownaði þetta. Gaf mér tíma og hlustaði á þetta, hann er góður. Ólafur er hinsvegar greinilega eitthvað vanheill á geði var líka að horfa á þetta ![]() |
Page 1 of 6 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |