Gjörðu svo vel Haffi minn, síðan fer spólan bara í póst í fyrramálið
Nissan sýndi WLBT fréttum síðasta þriðjudag nýja tækið sitt sem hannað til að verja bílastæðið þeirra fyrir hagléli. Það er nokkurs konar byssa sem sendir sem skýtur hljóðbylgjum 50.000 fet upp í loft og kemur í veg fyrir að haglél myndist.
Það eru fleirri en 400 svoleiðis tæki í notkun í heiminum, og þetta er það níunda sem er sett upp í BNA. Þau eru gerð í Kanada og eru sérstkalega gerð til þess að verja uppskerur. Það virkar með því að nota eigin radar til þess að skynja þær aðstæður sem eru líklegar til að mynda hagl.
Tækið fer sjálfkrafa í gang ef innbyggða veður radar kerfið skynjar að aðstæður eru líklegar til að mynda hagl. Það skýtur á 5,5 sekúndu millibili, myndar um leið hljóð sem við vitum að heyrist að minsta kosti í fimm mílna fjarlægð frá Nissan stöðinni nálægt Canton. Það byrjar þá að senda hljóðbylgjur upp í skýin á hverri fimm komma fimmtu sekúndu.
Hljóðið við upptökin er um það bil 120 decibel, eða það sama og fellibyljar viðvörunar sírena myndar. Starfsmenn eru að setja upp girðingar í kringum tvær af vélunum í 140 akra bílastæðinu hjá Nissan og fyllir girðingarnar með heyi til að reyna að minnka hljóðið
Eric Rademacher er umhverfis verkfræðingur hjá Nissan sem er sérfræðingur um Hagl minnkunar kerfið.
"Haglél eru mynduð og byrja með smá rykkorni uppi í skýjunum," útskýrir hann. "Það er mikil hreyfing í gangi, og það sem við gerum er að af-jóna þá hreyfingu sem er í skýjunum og halda ryk sameindunum frá því að safna í sig raka frá skýjunum í staðinn fyrir að bregðast við því og mynda það sem við þekkjum sem haglél."
Ef þú heyrir einhverntíman í þessu kerfi fara í gang í Madison Sýslu nálægt Nissan, þá er kominn tími til þess að þú komir sjálfum þér og farartæki þínu í skjól fyrir hagli.
Nissan vonar að það muni spara hagl viðgerðir á bílum fyrir miljónir dollara. Þeir segja ekki hvað það kostar, en viðurkenna að þeir viti ekki alveg hvort það virki fyrr en það kemur haglél yfir stöðinni. Hljóðið myndast við að kveikja í sama efni og er notað við logsuðu.
Þetta er fyrsta svona tækið sem er notað af bíla framleiðanda. Maðurinn sem setti það upp keypti Nissan Pathfinder Armada, sem er búinn til í stöðinni.