bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
iceland trip! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=44279 |
Page 1 of 3 |
Author: | íbbi_ [ Mon 19. Apr 2010 01:49 ] |
Post subject: | iceland trip! |
það er mikið rætt um að röra hraðbrautir evrópu hér á þessum vef, 18 bláa um fornfræg stórveldi. að þeim förum ólöstuðum, þá búum við á ótrúlega fallegu landi, og mér persónulega finnst fátt skemmtilegra en að ferðast innanlands, hvort sem að það er hálendið á jeppa sumur sem vetur, eða á fólksbíl um malbikið, hvernig væri að koma upp smá þráð hérna þar sem við getum ausið úr skálum þekkingu okkar um fallega staði til að sækja heim, eldfjöll,fossa eða jafnvel yfirgefna bæi ég hef nú ekki ferðast mikið síðan ég fór að búa sjálfur, en tók suðurlandið á alpinuni 2008, og kíkti smá vestfjarðatúr sama ár, væri gjarnan til í að ferðast meira vestur, bjó þar fyrstu 20 árin flutti svo suður og hef bara farið þangað þetta eina skipti aftur, ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Mon 19. Apr 2010 01:57 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
Ef ég væri á leið að skoða eitthvað náttúruundur hér á landi, þá væru það án efa hraunfossar. ![]() Hef aldrei gerst svo frægur að koma þangað, en það sem ég hef séð á myndum þykir mér mjög súrrealískt - ótrúlega fallegur staður! Svo væri gaman að keyra Vestfirðina og fara um afskekkta slóða sem finna má út um allt land. |
Author: | sh4rk [ Mon 19. Apr 2010 03:02 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
Steini kommon ertu EKKI búinn að sjá Hraunfossa og Barnafossa ![]() ![]() ![]() ÞEtta er svona rúmlega klukkutíma akstur frá Reykjavík og ef að þú hefur farið í Húsafell þá keyriru þarna framhjá |
Author: | SteiniDJ [ Mon 19. Apr 2010 03:06 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
sh4rk wrote: Steini kommon ertu EKKI búinn að sjá Hraunfossa og Barnafossa ![]() ![]() ![]() ÞEtta er svona rúmlega klukkutíma akstur frá Reykjavík og ef að þú hefur farið í Húsafell þá keyriru þarna framhjá Neibb, ekki nema ég sé búinn að gleyma því! Þetta verður kannski á to-do listanum hjá manni í sumar, er vegurinn góður þarna? |
Author: | Kristjan PGT [ Mon 19. Apr 2010 03:12 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
eins góður og hann gerist...malbik alla leið |
Author: | íbbi_ [ Mon 19. Apr 2010 03:19 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
einnig finnst mér mjög gaman að labba upp að dynjanda (fjallfoss) í arnarfirði, fullt af fallegum litlum fossum á leiðini upp, skemmtileg gönguleið |
Author: | SteiniDJ [ Mon 19. Apr 2010 03:19 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
Nice, ekki síðra! |
Author: | -Hjalti- [ Mon 19. Apr 2010 03:22 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
Herðubreiðarlindir er rosalega sérstakur staður.. maður er búin að keyra í klukkutíma um eyðimörk og hraun svo allt í einu þá er á einum punkt allt svaka gróið og fallegt. Bara á íslandi haha ![]() ![]() Svartifoss við Skaftafell.. Smá labb en vel þess virði ![]() Dimmuborgir og Mývatnsveit ![]() Jökulsárgljúfur og skoða þá Álfakyrkjuna í leiðini ![]() ![]() og svo eiga Hraunfossar heima þarna líka og í raun bara öll Hvítársíða ![]() SteiniDJ wrote: Ef ég væri á leið að skoða eitthvað náttúruundur hér á landi, þá væru það án efa hraunfossar.
|
Author: | íbbi_ [ Mon 19. Apr 2010 04:54 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
flottar myndir.. djöfull væri ég til í gott ferðalag í sumar |
Author: | -Hjalti- [ Mon 19. Apr 2010 04:57 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
íbbi_ wrote: flottar myndir.. djöfull væri ég til í gott ferðalag í sumar klárt mál Íbbi ![]() |
Author: | íbbi_ [ Mon 19. Apr 2010 04:59 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
sé ekki fyrir mér miklar langferðir sonötuni minni með ungabarn ![]() |
Author: | JonHrafn [ Mon 19. Apr 2010 07:56 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
Ferðalög erlendis eru ofmetin. Ísland, best í heimi ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Mon 19. Apr 2010 08:08 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
JonHrafn wrote: Ferðalög erlendis eru ofmetin. Ísland, best í heimi ![]() True true true!! Landið réttsælis Snæfellsnes er algjör perla, Arnastapi og út eftir nesinu, frábær staður fyrir göngur. Síðan er Flatey í miklu uppáhaldi, held að öllum líði vel þar. Herðubreið er náttúrulega miðhálendið, fallegt svæði, Drekagil er alveg VIP, Askja og Víti. Dettifoss og Ásbyrgi eru mögnuð fyrirbæri, sér í lagi Ásbyrgi. Síðan eru náttúrulega Egilsstaðir og umhverfi. Aðeins lengra eru Austfirðirnir sem mér finnst magnaðir, verst að ég virðist alltaf hitta á rigningar þar. En toppurinn er Lónsöræfi, það er alveg magnað svæði, getur tekið rútu frá Stafafelli eða Höfn. Við tekur Skaftafell, Kirkjubæjarklaustur og síðan Þakgil, ekki má gleyma vegaslóðanum upp á Reynisfjall við Vík, meiriháttar að fara þarna upp á. Reynisdrangar og Dyrhólaey, síðan tekur við Fjallabak og allar þær Perlur, Hekla og Veiðivötn. Það er leikur einn að fara þangað þó svo þú sért ekki að veiða. Það væri hægt að skrifa margar bls. um Ísland, það verður amk. eini áfangastaður undirskrifaðs í sumar ![]() |
Author: | Jónas [ Mon 19. Apr 2010 08:29 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
Er sammála þessu - vantar góðan þráð hérna með upplýsingum. Einu ferðalögin sem maður fer innanlands eru uppí sumarbústað og tilbaka ![]() |
Author: | gunnar [ Mon 19. Apr 2010 08:34 ] |
Post subject: | Re: iceland trip! |
Ég stefni á að ferðast svolítið innanlands í sumar. Hef ekki verið mjög áhugasamur um að ferðast um Ísland nema að vetri til ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |