bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=43868 |
Page 1 of 1 |
Author: | BjarkiHS [ Sat 27. Mar 2010 16:30 ] |
Post subject: | Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Í kjölfar ótrúlegs magns af OT í þráðum um bíla meðlima og í söluþráðum, langar mig að vita hvort ekki væri hægt að hafa þann möguleika fyrir þráðarhöfund að einfaldega delete-a óvelkomnum svörum ? (ég veit að það er hægt að senda mail á stjórnanda og biðja um tiltekt, en gæti það ekki spara vinnu og rifrildi ef menn gerðu þetta bara sjálfir ) |
Author: | gstuning [ Sat 27. Mar 2010 16:47 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Menn eiga ekki þræðina sem þeir stofna til. Þannig að ég sé ekki afhverju þeir ættu að hafa eitthvað vald í því að taka til í þeim. Krafturinn er ókeypis í notkun enn haldið uppi af admins. Þess vegna sé ég ekki að þeir sem eru að fá þetta frítt ættu að hafa eitthvað um það að segja hvað er látið sitja á kraftinum. Annars kemur svona OT bylgja annarslagið og menn jafna sig svo. |
Author: | ValliFudd [ Sat 27. Mar 2010 17:19 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Kannski þeir sem eru mest í þessu eigi skilið smá tiltal.. |
Author: | ///MR HUNG [ Sat 27. Mar 2010 18:26 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
gstuning wrote: Menn eiga ekki þræðina sem þeir stofna til. Þannig að ég sé ekki afhverju þeir ættu að hafa eitthvað vald í því að taka til í þeim. Krafturinn er ókeypis í notkun enn haldið uppi af admins. Þess vegna sé ég ekki að þeir sem eru að fá þetta frítt ættu að hafa eitthvað um það að segja hvað er látið sitja á kraftinum. Annars kemur svona OT bylgja annarslagið og menn jafna sig svo. En hvað með þá sem borga? Það væri fínn fítus. |
Author: | gstuning [ Sat 27. Mar 2010 18:33 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Þeir eru ekki að borga aðgang að spjallinu. Bara meðlima hlutanum. |
Author: | ///MR HUNG [ Sat 27. Mar 2010 18:37 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Veit það enn á mörgum erlendum spjöllum þá fylgja allskonar fítusar með borgun svona gjalda eins og þú væntanlega veist. |
Author: | gstuning [ Sat 27. Mar 2010 18:40 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Ég myndi aldrei borga fyrir að spjall og mér finnst þetta sjálfum ekki vera neitt vandamál. Frekar auðvelt að leiða þetta hjá sér. |
Author: | Jón Ragnar [ Sat 27. Mar 2010 18:40 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Nota bara FOE fídusinn |
Author: | ///MR HUNG [ Sat 27. Mar 2010 18:54 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
gstuning wrote: Ég myndi aldrei borga fyrir að spjall og mér finnst þetta sjálfum ekki vera neitt vandamál. Frekar auðvelt að leiða þetta hjá sér. Var nú bara að meina að það væri þá innifalið í meðlimagjaldinu en mér gæti ekki verið meira sama um því þetta pirrar mig ekkert. |
Author: | SteiniDJ [ Sat 27. Mar 2010 22:34 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
///MR HUNG wrote: gstuning wrote: Ég myndi aldrei borga fyrir að spjall og mér finnst þetta sjálfum ekki vera neitt vandamál. Frekar auðvelt að leiða þetta hjá sér. Var nú bara að meina að það væri þá innifalið í meðlimagjaldinu en mér gæti ekki verið meira sama um því þetta pirrar mig ekkert. En þá væri þetta ekki valmöguleiki, þetta væri þá þarna svo lengi sem einn spjallverji er meðlimur að kraftinum. |
Author: | Einarsss [ Sat 27. Mar 2010 22:38 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
John Rogers wrote: Nota bara FOE fídusinn foe fídusinn er samt svo böggaður .. jújú maður sér ekkert hvað viðkomandi skrifar en .. það kemur altaf eins og það sé nýtt innlegg í þræðinum, svo klikkar maður á og verður fyrir vonbrigðum ![]() |
Author: | urban [ Sat 27. Mar 2010 22:44 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Einarsss wrote: John Rogers wrote: Nota bara FOE fídusinn foe fídusinn er samt svo böggaður .. jújú maður sér ekkert hvað viðkomandi skrifar en .. það kemur altaf eins og það sé nýtt innlegg í þræðinum, svo klikkar maður á og verður fyrir vonbrigðum ![]() þar að auki þá sérð þú það bara ekki. aðrir sjá það, þar að leiðandi heldur off topicið áfram, auk þess sem að umræðan meikar ekkert sens |
Author: | HPH [ Sun 28. Mar 2010 01:41 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Ég held að þetta geti orðið mjög tvístrað. Annað er jú mjög gott og heldur bulli í lágmarki og hitt er það td. ef einhver óheiðarlegur sé að selja bíl og er að leyna galla eða selja svikinn hlut eins og selja kanski bíl með læstudrifi, svo er það kanski ekki læst heldur soðið eða eitthvað svoleiðis, síðan segir einhver frá þessu sem veit af þessu soðnadrifi þá eyðir sá sem stofnaði þráðinn út því kommenti til að fela það rétta. |
Author: | SteiniDJ [ Mon 29. Mar 2010 12:06 ] |
Post subject: | Re: Möguleiki á að eyða út óvelkomnum póstum ? |
Væri hægt að setja upp +/- fítus við hvert svar, þar sem hver svar sem færi undir x stig myndi einfaldlega hverfa (en hver sem er gæti skoðað svarið að vild, hann yrði bara að velja það)? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |