bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=43672
Page 1 of 1

Author:  Bílabúð Benna [ Thu 18. Mar 2010 16:55 ]
Post subject:  Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Image

Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Næstkomandi laugardag mun Bílabúð Benna frumsýna Porsche 911 Sport Classic. Þessi bíll er framleiddur í aðeins 250 eintökum en okkur tókst að fá einn slíkan í sýningarsal okkar á Vagnhöfða. Þessi bíll er sérsniðinn fyrir dygga aðdáendur Porsche þar sem endurvakin eru þekkt hönnunaratriði úr sögu Porsche. Ekkert var til sparað í tækniþáttum en bíllinn er í grunninn hlaðinn búnaði, svo sem keramikbremsum, “ducktail” afturvæng, læstu afturdrifi, 19” svartmáluðum Fuchs felgum og leðurklæddri innréttingu.


Image

Porsche 911 Sport Classic verður til sýnis í Porsche salnum Vagnhöfða 23, laugardaginn 20. mars. Opnunartími er frá kl. 12 – 16.

Author:  Kristjan [ Thu 18. Mar 2010 21:41 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Ekkert smá fallegur, er hann til sölu? :D

Author:  Alpina [ Thu 18. Mar 2010 22:32 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

tek einn :thup:

Author:  Bartek [ Thu 18. Mar 2010 22:35 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Eg skoðadi hann idag og það er luxus lykt i honnum...
:thup:

Author:  arnibjorn [ Thu 18. Mar 2010 22:47 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Bartek wrote:
Eg skoðadi hann idag og það er luxus lykt i honnum...
:thup:

Tókstu handbremsubeygju?

Author:  miura [ Thu 18. Mar 2010 22:53 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Skoðaði þennan áðan og þetta er allveg gríðarlega fallegur bíll, sérstaklega þar sem það hefur lýtið nýtt sést í nokkurn tíma.
Felgurnr allveg að gera sig og nettur RS fílingur. En það er eitt sem fer rosalega í taugarnar á mér sem ég tók einnig eftir þegar Panamera var frumsýndur og það er að að þeir sverta ekki dekkin á bílunum sem þeir eru að frumsýna, sker rosalega í augun :shock:

Author:  Thrullerinn [ Fri 19. Mar 2010 00:17 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Verður gaman að sjá þennan !

Author:  Maggi B [ Fri 19. Mar 2010 02:04 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

miura wrote:
Skoðaði þennan áðan og þetta er allveg gríðarlega fallegur bíll, sérstaklega þar sem það hefur lýtið nýtt sést í nokkurn tíma.
Felgurnr allveg að gera sig og nettur RS fílingur. En það er eitt sem fer rosalega í taugarnar á mér sem ég tók einnig eftir þegar Panamera var frumsýndur og það er að að þeir sverta ekki dekkin á bílunum sem þeir eru að frumsýna, sker rosalega í augun :shock:


Þeir vilja ekki nota gel á dekkin því að þau verða víst lélegri við það. og þetta eru svo high performance bílar að þeir þurfa allt performance úr dekkjunum.

þetta var allavega sagt í höllinni 2004

Author:  Alpina [ Sat 20. Mar 2010 11:52 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Þetta er vægast sagt STUNNING græja 8) 8)

spurning um litinn

ef ég væri kaupandi myndi ég filma bílinn

Author:  bimmer [ Sat 20. Mar 2010 12:07 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Alpina wrote:
Þetta er vægast sagt STUNNING græja 8) 8)

spurning um litinn

ef ég væri kaupandi myndi ég filma bílinn


Það er ekki OEM. Þessi bíll verður að vera OEM.

Author:  Bartek [ Sat 20. Mar 2010 12:09 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

arnibjorn wrote:
Bartek wrote:
Eg skoðadi hann idag og það er luxus lykt i honnum...
:thup:

Tókstu handbremsubeygju?



ekki svo gott :lol:

Author:  Alpina [ Sat 20. Mar 2010 23:12 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

bimmer wrote:
Alpina wrote:
Þetta er vægast sagt STUNNING græja 8) 8)

spurning um litinn

ef ég væri kaupandi myndi ég filma bílinn


Það er ekki OEM. Þessi bíll verður að vera OEM.



Right .. þetta innlegg var frá oem löggunni :lol: :lol:

Author:  Hreiðar [ Sun 21. Mar 2010 19:48 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Mjög flottur á þessum myndum, en spoilerinn er eitthva að trufla mig. Kemur hann vel út í alvöru?

Author:  Kristjan PGT [ Sun 21. Mar 2010 21:09 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

Þetta er "gömul" hönnun :)

Image

Author:  Kristjan [ Sun 21. Mar 2010 21:55 ]
Post subject:  Re: Frumsýning á Porsche 911 Sport Classic

170.000 euro

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/