bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Taka fartölvu í gegn. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=42136 |
Page 1 of 1 |
Author: | JOGA [ Tue 05. Jan 2010 20:19 ] |
Post subject: | Taka fartölvu í gegn. |
Sælir piltar, Ég er með fartölvu sem þarf að taka í gegn. Hún er full af ryki og á það til að blue skreena af og til núna. Langar að prófa að færa af henni gögn, strauja og setja hana upp aftur. Einhver hér sem gæti rykhreinsað og gert þetta fyrir mig á góðum prís? Kv. Jón Garðar |
Author: | Einarsss [ Tue 05. Jan 2010 20:31 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
JOGA wrote: Sælir piltar, Ég er með fartölvu sem þarf að taka í gegn. Hún er full af ryki og á það til að blue skreena af og til núna. Langar að prófa að færa af henni gögn, strauja og setja hana upp aftur. Einhver hér sem gæti rykhreinsað og gert þetta fyrir mig á góðum prís? Kv. Jón Garðar farðu bara á næsta verkstæði og spurðu hvort þú megir ekki komast í háþrýstiloftið í örstutta stund ![]() Ég get annars straujað vélina og séð um að hreinsa rykið og afritað gögnin PM ef þú hefur áhuga |
Author: | ValliFudd [ Wed 06. Jan 2010 01:36 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
Ég græjaði svona 3ja ára gamla vél um jólin. Nýr diskur, nýtt stýrikerfi og fínerí. Enn frekar þreytt undir álagi. Reif plötuna af sem var yfir viftu, tók svo svona loftbrúsa, blés fram og til baka í gegnum rifflurnar þarna hjá viftunni og þar í kring, kom alveg þvííílíkt mikið af ryki. Eftir það, sá ég fyrst breytingu á vélinni. ALLT annað að nota hana undir álagi. Vissi ekki að þetta breytti svona rosalega miklu í hraða. |
Author: | Grétar G. [ Wed 06. Jan 2010 02:56 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
Rykhreinsun á lappann sett á to do listann hjá mér ! |
Author: | IngóJP [ Wed 06. Jan 2010 06:54 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
og stækka minnið ![]() |
Author: | JOGA [ Sun 10. Jan 2010 21:43 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
Sælir, Ég formattaði diskinn sjálfur og er búinn að rykhreinsa létt. Það virkaði ekki. Hún sem sagt á það til að drepa á sér og ég tek eftir því núna að það virðist hafa áhrif ef að tölvan er hreyfð. Hvað er næsta skref? Þarf að koma þessu dóti í gangið ef hægt er. Kv. Jón Garðar |
Author: | JOGA [ Sun 10. Jan 2010 23:36 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
Var að fikta. Virðist vera sem tölvan slökkvi á sér þegar að skjárinn er hreyfður. Prófaði að taka lyklaborðscoverið af og lyklaborðið úr. Ræsti vél og þá gat ég hreyft skjáinn fínt. Ef ég svo set lyklaborðið varlega í (eða bara læt það snerta) þá drepur hún á sér. Setti borðið aftur í og þá er nákvæmlega sama sagan. Drepur á sér þegar að skjár er hreyfður. Endilega tjáið ykkur gúrúar... |
Author: | HAMAR [ Mon 11. Jan 2010 01:41 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
Er þetta Acer tölva ? |
Author: | JOGA [ Mon 11. Jan 2010 08:05 ] |
Post subject: | Re: Taka fartölvu í gegn. |
Nei þetta er Toshiba Satellite M70-233. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |