bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Íbúðir/hús til leigu (Edit: VANTAR Í BÚIÐ) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=41946 |
Page 1 of 2 |
Author: | JOGA [ Fri 25. Dec 2009 15:42 ] |
Post subject: | Íbúðir/hús til leigu (Edit: VANTAR Í BÚIÐ) |
Sælir kraftsbræður, Ég kom nýlega heim og hef haldið að mér höndum með að leigja húsnæði en vill nú fara að drífa í þessu. Langar að reyna að finna íbúð eða lítið raðhús á góðu verði. Auðvitað plús að hafa bílageymslu eða bílskúr. Helst í Selás eða Norðlingaholti en annað kemur til greina. 3herb +. Vitið þið um eitthvað? Vill reyna að borga eðlilega leigu. Finnst vera mikið um skrýtin leiguverð í gangi. S.s. allt of hátt. Sendið mér póst eða bjallið á 856 5330 ef þið vitið um eitthvað Kv. Jón Garðar Edit: Hvað finnst ykkur eðlilegt leiguverð í dag m.v. markaðinn. S.s. 3 herb íbúð ca. 90 fm og upp í t.d. lítið raðhús 140-150fm? |
Author: | Alpina [ Fri 25. Dec 2009 17:38 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
JOGA wrote: Sælir kraftsbræður, Ég kom nýlega heim og hef haldið að mér höndum með að leigja húsnæði en vill nú fara að drífa í þessu. Langar að reyna að finna íbúð eða lítið raðhús á góðu verði. Auðvitað plús að hafa bílageymslu eða bílskúr. Helst í Selás eða Norðlingaholti en annað kemur til greina. 3herb +. Vitið þið um eitthvað? Vill reyna að borga eðlilega leigu. Finnst vera mikið um skrýtin leiguverð í gangi. S.s. allt of hátt. Sendið mér póst eða bjallið á 856 5330 ef þið vitið um eitthvað Kv. Jón Garðar Edit: Hvað finnst ykkur eðlilegt leiguverð í dag m.v. markaðinn. S.s. 3 herb íbúð ca. 90 fm og upp í t.d. lítið raðhús 140-150fm? Raðhús hlýtur að vera lágmark 150.000 |
Author: | Jón Ragnar [ Fri 25. Dec 2009 18:43 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
Leigumarkaðurinn er algjör gúrka núna ![]() Ekkert bitastætt í boði á góðu verði Endar eflaust á því að ég leigi með 2 öðrum félögum mínum bara raðhús eða eitthvað ![]() |
Author: | Kristjan [ Fri 25. Dec 2009 19:58 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
Ertu kominn með vinnu? Hefurðu skoðað það að búa úti á landi? Reiknaði hvort það borgi sig að búa fyrir utan borgina og commuta þangað. |
Author: | íbbi_ [ Sat 26. Dec 2009 11:55 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
ég held að það geri það ekki, bjó í hveragerði þorran úr árinu og ók til vinnu, borgaði sig ekki 90fm íbúð í dag er líklegast 110k leigumarkaðurinn vyrjaði að skána eftir hrunið og í hruninu, ég náði mér í einbýli á djók verði í leigu þá, en svo í haust þegar ég var að leyta aftur þá voru verðin byrjuð að stíga upp aftur, mismunandi hvað menn segja, það eru jú 2-3þús íbúðir á vappi og heilu blokkirnar tómar, og bankarnir halda þessu utan markaðrins til að markaðurinn hrynji ekki, en svo er hinsvegar fólk að missa vinnuna og fólk að missa íbúðir/hús og flr og því dáldil vöntun á leigumarkaðinum ég sjálfur er í 4herb, með bílskúr og er að borga í kringum 1þús per ferm, |
Author: | Ingvarinn [ Sat 26. Dec 2009 12:28 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
Ég myndi halda að gangverð á leigu húsnæði í reykjavík sé frá 800-1200 kr á fermeter það er allavega það sem maður getur reyknað með fer eftir svo miklu svo sem staðsetningu og ástandi húsnæðis |
Author: | Tommi Camaro [ Sun 03. Jan 2010 19:00 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
er með eina íbúð í útleigu og það eru 54 fm(2herb) í blokk í foldahverfi í gravó , það var selgist um hann á 80 þús |
Author: | hjolli [ Sun 03. Jan 2010 19:41 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
hvar er best að leita sér að íbúð á netinu? djöfull er slæmt að vera að fara af hótel mömmu ![]() |
Author: | JOGA [ Wed 20. Jan 2010 01:07 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu (Edit: VANTAR Í BÚIÐ) |
Jæja. Við fundum loks eign sem við gátum sæst á. Mikið rugl í gangi á markaðnum. Ódýrar eignir eru til en oft erfitt að finna. Mikið af uppsprengdum verðum í gangi líka sem virðast ganga út samt sem er merkilegt miðað við að það eru einnig til mun ódýrari ef maður leitar. T.d. er Byr að leigja út á 1000kr fm sem er alveg ágætt fyrir íbúðir sem eru ekki mjög stórar. Við erum að taka á leigu núna Parhús, nýlega byggt ca. 180fm með innbyggðum bílskúr fyrir 140þús á mánuði. Svona til að gefa ykkur hugmynd. Gátum einnig fengið 180fm einbýli í Mosó með ca 40fm bílskúr á sama pening. Vantar núna slatta í búið. Ef einhver er með sófa, ísskáp, þvottavél, stofu/eldhús/borðstofu-borð, hillur og fleira endilega hafið samband í s. 856-5330 |
Author: | gardara [ Wed 20. Jan 2010 01:48 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
hjolli wrote: hvar er best að leita sér að íbúð á netinu? djöfull er slæmt að vera að fara af hótel mömmu ![]() http://kassagerdin.is |
Author: | srr [ Wed 20. Jan 2010 02:18 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu og leiguverð |
gardara wrote: hjolli wrote: hvar er best að leita sér að íbúð á netinu? djöfull er slæmt að vera að fara af hótel mömmu ![]() http://kassagerdin.is hehehehe ![]() |
Author: | Jss [ Wed 20. Jan 2010 09:41 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu (Edit: VANTAR Í BÚIÐ) |
JOGA wrote: Jæja. Við fundum loks eign sem við gátum sæst á. Mikið rugl í gangi á markaðnum. Ódýrar eignir eru til en oft erfitt að finna. Mikið af uppsprengdum verðum í gangi líka sem virðast ganga út samt sem er merkilegt miðað við að það eru einnig til mun ódýrari ef maður leitar. T.d. er Byr að leigja út á 1000kr fm sem er alveg ágætt fyrir íbúðir sem eru ekki mjög stórar. Við erum að taka á leigu núna Parhús, nýlega byggt ca. 180fm með innbyggðum bílskúr fyrir 140þús á mánuði. Svona til að gefa ykkur hugmynd. Gátum einnig fengið 180fm einbýli í Mosó með ca 40fm bílskúr á sama pening. Vantar núna slatta í búið. Ef einhver er með sófa, ísskáp, þvottavél, stofu/eldhús/borðstofu-borð, hillur og fleira endilega hafið samband í s. 856-5330 En svona fyrir forvitnissakir, hvar er þá parhúsið staðsett? Reykjavík? |
Author: | JOGA [ Wed 20. Jan 2010 11:12 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu (Edit: VANTAR Í BÚIÐ) |
Já staðsett á í Reykjavík. Ófrágengin lóð en snyrtilegt og fínt hús. |
Author: | Kristjan PGT [ Wed 20. Jan 2010 14:34 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu (Edit: VANTAR Í BÚIÐ) |
og fyrir enn frekari forvitnissakir...í hvaða póstnúmeri. Bara til að fá hugmynd um hvað er hægt að fá á leigumarkaðnum í dag ![]() |
Author: | gulli [ Wed 20. Jan 2010 15:50 ] |
Post subject: | Re: Íbúðir/hús til leigu (Edit: VANTAR Í BÚIÐ) |
Blessaðir veriði bara að flytja í Garðinn ![]() Er að leigja 115fm parhús með bílskúr,, reyndar alveg helv lítill,, og erum að leigja þetta á 103þús per mánuð með hita og rafmagni. Fyrir utan hvað það er alltaf svo gott veður í Garðinum ![]() ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |