Page 1 of 1

Car Kit ?

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 21:29
by 750IA_91
Munið þið eftir greininni sem kom í DV um Cobruna sem var smíðuð hér á landi? Bíllinn var smíðaður úr svokölluðu body kit, eina sem að vantar í raun í svoleiðis er vélin, og kanski einn eða tveir "óþarfa munaðar" hlutir .... allavega, mig langar ofboðslega mikið að kaupa mér svona kit, og smíða mér minn eiginn bíl .... getur einhver gefið mér upplýsingar um hvar á netinu hægt er að skoða, og panta svona kit?

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 21:57
by moog
Það vantar meira en vélina er það ekki??? Er ekki oftast notaður undirvagn af öðrum bíl, vél + gírkassi og drif??? Sá þátt um þetta á Discovery þar sem einhver hress gaur gerði svona kit-car Cobru og notaði Ford Sierru undirvagn og skellti V8 Ford vél + skiptingu í þetta og þetta var gullfallegur bíll hjá honum sem svínvirkaði.
Það eru fyrirtæki í Bretlandi og Bandaríkjunum sem er með svona Cobru kit. Annars getur það verið að hægt sé að fá þessi kit í mismunandi útfærslum. Allt frá því allra nauðsynlegasta upp í nánast "turn-key" útfærslu.

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 22:01
by Jss
moog wrote:Það vantar meira en vélina er það ekki??? Er ekki oftast notaður undirvagn af öðrum bíl, vél + gírkassi og drif??? Sá þátt um þetta á Discovery þar sem einhver hress gaur gerði svona kit-car Cobru og notaði Ford Sierru undirvagn og skellti V8 Ford vél + skiptingu í þetta og þetta var gullfallegur bíll hjá honum sem svínvirkaði.
Það eru fyrirtæki í Bretlandi og Bandaríkjunum sem er með svona Cobru kit. Annars getur það verið að hægt sé að fá þessi kit í mismunandi útfærslum. Allt frá því allra nauðsynlegasta upp í nánast "turn-key" útfærslu.


Held að það sé rétt hjá þér með grindina og það allt, hélt þetta nefnilega líka, man samt ekki eftir neinni síðu með svona kit bílum.

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 23:26
by Kristjan
Það er eitthvað fyrirtæki í afríku sem smíðar cobru skeljar fyrir ameríska markaðinn, þeir framleiða líka skeljarnar á Noble bílana.

PostPosted: Sun 25. Jan 2004 23:35
by O.Johnson
Snildar bílar. Samt full dýrir fyrir kit car
Allt innifalið :)
http://www.caterham.co.uk/

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 00:55
by Moni
ég held að bíllinn hér á landi sé bara skelin, það er bara 350cid chevy í henni, mig minnir að ég hafi heyrt það... svo líka skipting á vélina...

Re: Car Kit ?

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 01:50
by arnib
750IA_91 wrote:Munið þið eftir greininni sem kom í DV um Cobruna sem var smíðuð hér á landi? Bíllinn var smíðaður úr svokölluðu body kit?


Það er nú búið að koma fram hérna í þræðinum, en það hjálpar þér örugglega að finna þetta ef þú leitar að "kit car", ekki "body kit".

Body kit er notað fyrir útlitsbreytingar kit fyrir bíla, svo sem brettaútvíkkanir, húdd með ristum, sílsalista o.s.frv.

Kit car er notað um bíla sem þú kaupir í (mis-samsettum) bitum og "skrúfar" saman sjálfur.

Þú gætir fundið eitthvað um þetta hérna

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 07:06
by BMW 318I
http://www.aksportscars.com/
http://www.kitsnclassics.com/
http://www.banmoco.co.uk/
http://www.banmoco.co.uk/ kíkjið á mini rodster hér

Allt sem er hér fyrir ofan er aðeins lítið brot af þessari síður hér fyrir neðan
http://www.kit-cars.com/manlist.html

PostPosted: Mon 26. Jan 2004 18:00
by bjahja
moog wrote:Það vantar meira en vélina er það ekki??? Er ekki oftast notaður undirvagn af öðrum bíl, vél + gírkassi og drif??? Sá þátt um þetta á Discovery þar sem einhver hress gaur gerði svona kit-car Cobru og notaði Ford Sierru undirvagn og skellti V8 Ford vél + skiptingu í þetta og þetta var gullfallegur bíll hjá honum sem svínvirkaði.
Það eru fyrirtæki í Bretlandi og Bandaríkjunum sem er með svona Cobru kit. Annars getur það verið að hægt sé að fá þessi kit í mismunandi útfærslum. Allt frá því allra nauðsynlegasta upp í nánast "turn-key" útfærslu.

Mark Evans er snillingur :lol: :lol: