bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Tölvunördar https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=41188 |
Page 1 of 3 |
Author: | Knud [ Sun 15. Nov 2009 18:28 ] |
Post subject: | Tölvunördar |
Komið þið sælir Ég lendi í smá basli reglulega með tölvuna mína. Ef ég spila tölvuleiki (helst þó leikir í flottari kantinum) í henni þá á hún það til að frjósa eftir c.a 30mín - 2 tíma. Ekkert blue screen eða neitt, myndin bara föst og verð að restarta. Er með windows xp service pack 2, nóg vinnsluminni þetta eru samt leikir sem vélin mín stendur alveg undir lágmarkskröfum fyrir keyrslu og oft gott betur. Hafið þið nokkrar hugmyndir um hvað gæti orsakað þetta |
Author: | slapi [ Sun 15. Nov 2009 18:36 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Er ekki spurning um að skoða hitann á örgjörvanum hjá þér undir öllu þessu álagi ? |
Author: | Jónas Þór [ Sun 15. Nov 2009 18:40 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
mjög líklega einhver kæling, hjá mér var viftan á skjákortinu ónýtt og tölvan fraus alltaf eftir 10-20 min í leikjum. |
Author: | Knud [ Sun 15. Nov 2009 18:42 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
ok er þetta bara spurning um að þreifa á draslinu þegar hún frýs?? |
Author: | Arnarf [ Sun 15. Nov 2009 18:48 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Knud wrote: ok er þetta bara spurning um að þreifa á draslinu þegar hún frýs?? speedfan og fleiri forrit geta séð hitan á flest öllu dótinu í tölvunni þinni Gott að byrja þar |
Author: | SteiniDJ [ Sun 15. Nov 2009 19:00 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Passa líka bara að allar viftur fái gott pláss tli að blása og að það sé ekki búið að loka fyrir þær (með t.d. skrifborði). Getur síðan opnað kassan og séð hvort þetta sé stútfullt af ryki eða ekki, blása svo bara úr henni ef svo er. |
Author: | ValliFudd [ Sun 15. Nov 2009 19:09 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Mjög algeng sjón er að sjá þetta svona undir viftum.. ![]() Sammála strákunum, opna hana og skoða kæliplötur og viftur.. |
Author: | Knud [ Sun 15. Nov 2009 19:35 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Ég tek og hreinsa rykið reglulega innan úr henni. var að því núna og það var ekkert hættulega mikið inn í henni. einnig sótti ég speedfan og komst að því að temp nr3 var of hátt sem er að ég held hitinn á skjákortinu viftan er að snúast c.a 1200 rpm og hitinn er 82°c núna þekki ég ekki hvað viftan á að snúast, en mig grunar að þetta hitastig sé of hátt |
Author: | doddi1 [ Sun 15. Nov 2009 19:41 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
ég var að lenda í nákvæmlega sama dæmi núna eftir að hafa keypt Cod MW2... ég opnaði bara kassann og sneri borðviftunni inn í hann, hef ekki lent í þessu síðan. |
Author: | SteiniDJ [ Sun 15. Nov 2009 21:47 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Var að keyra Crysis í hæstu stillingum og þá fór kortið mitt að rokka í 110° +. ![]() |
Author: | Knud [ Sun 15. Nov 2009 21:53 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
já en þegar þetta hitinn er í 85°c á kortinu , er það eðlilegt eða ætti maður að huga að fjárfesta í nýrri viftu þetta er ati-radeon 4800 ef það skiptir einhverju máli |
Author: | SteiniDJ [ Sun 15. Nov 2009 22:24 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
85° Idle eða í vinnslu? |
Author: | Einarsss [ Sun 15. Nov 2009 22:27 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
var að lenda í svipuðum pakka ... hreinsaði rykið og allt í góðu ![]() nú get ég haldið áfram að spila COD MW II, Dragon Age: Orgins og Torchlight |
Author: | Kristjan [ Sun 15. Nov 2009 22:28 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Ryk er algjör dauði þegar kemur að fartölvum, maður þarf helst að hreinsa þær á nokkra mánaða fresti ef maður er að nota þær upp í rúmi t.d. |
Author: | SteiniDJ [ Sun 15. Nov 2009 22:30 ] |
Post subject: | Re: Tölvunördar |
Dragon Age er rosalegur. Er alveg að vera búinn með hann, en þetta er leikur sem maður getur alveg spilað aftur og aftur. ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |