bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=41112
Page 1 of 1

Author:  gunnar [ Wed 11. Nov 2009 14:47 ]
Post subject:  Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Ég og mattiorn erum að leysa raunhæft verkefni í Viðskiptalögfræði hér norðan heiða, og okkur datt í hug að pósta "scenarioinu" hér til að fá álit hjá mönnum sem hafa staðið í bílaviðskiptum og hafa reynslu í þessum málum.

Verkefnið hljóðar þannig í meginmáli (verkefnislýsing var tæp bls , legg það ekki á menn að lesa allt klabbið :lol: ) :

Quote:
Jón rekur bílasölu. Dag einn kemur ung stúlka, Stína til hans til að kaupa sína fyrstu bifreið.
Eftir stutt spjall Jóns við Stínu kemst hann að því að Stína erfði 10 kúlur frá ömmu sinni sem lést nýverið.

Jón eflist allur við þetta og nær að sannfæra stúlkuna um að hún verði að kaupa sér Range Rover Sport fyrir arfinn þar sem þeir séu svo ódýrir eftir hrunið.

Hann nefnir við hana að hann geti selt henni næstum nýjan Range Rover Sport sem verðmetinn er á 8kúlur en af því að hún sé svo sæt þá geti hún fengið hann á 4.
Hann segir þetta sé svo fáránlegt verð að hún geti jafnvel grætt á því að selja bílinn strax, enda sé bara einn eigandi af honum sem var gamall maður sem fór á hausinn í hruninu.
Stína skoðar bílinn og lýst vel á, ákveður að slá til án þess að hugsa sig mikið um.
Karl faðir hennar verður alveg snar þegar hann kemst að kaupunum, hann sér að bíllinn er 2007 árgerð og keyrður 150.000 mílur og tekur eftir stórri rispu á hlið bílsins.
Stelpan sagðist halda að þetta hafi verið "sportrönd" þar sem bíllinn á að vera sport-týpa, enda voru stórar rispur beggja vegna bílsins.
Pabbinn fer beint til bílasalann og heimtar að fá að skila bílnum, Jón tekur það ekki í mál og segir að bíllinn hafi selst í því ástandi sem hann var í.
Stúlkan hafi ekki viljað söluskoða bílinn sem væri staðlaður réttur hennar.

Þetta er nú frekar öfgafullt dæmi en engu að síður eigum við að koma fram með lagalegar tillögur fyrir alla aðila og því datt okkur í hug til gaman að leita til manna hér sem hafa mikla reynslu á sölu á dýrum bílum og hafa jafnvel unnið sem bílsalar.

Hvernig teljið þið að málið myndi lenda? Á stelpan einhvern möguleika á því að skila bílnum? :thup:

Author:  Thrullerinn [ Wed 11. Nov 2009 15:02 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Bílasali:
Kaupandi hefur skoðunarskyldu sem hún sinnti ekki, bílasalinn er því þannig lagað stikkfrír.

Hún:
Spurning hvort hægt sé að finna "leyndan" galla og láta kaupin ganga tilbaka.

Author:  gunnar [ Wed 11. Nov 2009 15:06 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Thrullerinn wrote:
Bílasali:
Kaupandi hefur skoðunarskyldu sem hún sinnti ekki, bílasalinn er því þannig lagað stikkfrír.

Hún:
Spurning hvort hægt sé að finna "leyndan" galla og láta kaupin ganga tilbaka.

Rispan né aksturinn á bílnum er hvorugt "leyndur" galli það sem það er augljóst ef bíllinn er rispaður og þú sérð km stöðuna í mælaborðinu. Einnig finnst okkur vega frekar þungt að hún fær bílinn á 4 milljónir og ef markaðsvirði er 8 að þá er það helmingsafsláttur. Flettum bílnum upp á bgs.is og fengum 6 milljónir miðað við akstur. En svo er auðvitað rispurnar á bílnum líka.

Author:  Thrullerinn [ Wed 11. Nov 2009 15:27 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

gunnar wrote:

Líka spurning hvort hún sé fjárráða.
Spurning hvort hægt sé að reka mál á hennar heimsku og kunnáttuleysi, einnig hvort hún andlegt áfall vegna fráfalls móður hennar hafi haft áhrif.

Author:  Zed III [ Wed 11. Nov 2009 15:35 ]

Svo er þetta stelpa. Ein sem ég þekki áttaði sig á því þegar hún var búinn að kaupa bílinn (í félagi við manninn sinn) og kominn heim að þetta var fjögurra dyra bíll (og eini bíllinn á heimilinu þ.a. þetta var bíll fyrir hana).

Author:  gunnar [ Wed 11. Nov 2009 15:39 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Já við höfum verið að horfa mikil til 31. gr um ógilda löggerninga

"Hafi nokkur maður notað sér bágindi annars manns, einfeldni hans, fákunnáttu eða léttuð eða það, að hann var honum háður, til þess að afla sér hagsmuna eða áskilja sér þá þannig að bersýnilegur mismunur sé á hagsmunum þessum og endurgjaldi því er fyrir þá kom eða skyldi koma, eða hagsumir þessir skyldu veittir án endurgjalds, skal gerningur sá, er þannig er til kominn, ógildur gagnvart þeim aðila er á val hallað með honum."

Author:  Leikmaður [ Wed 11. Nov 2009 16:13 ]

Gengur ekki!

Skoðið:
Reglugerð um upplýsingaskyldu í viðskiptum með notuð ökutæki - http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/We ... enDocument

Lög um lausafjárkaup - http://www.althingi.is/lagas/137/2000050.html

Author:  íbbi_ [ Wed 11. Nov 2009 16:30 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

það er stelpuni einni a'ð kenna a'ð hún hafi verið svona vitlaus, bílasalin getur ekki tekið ábyrgð á því,

en hún getur samt prufað leiðina sem flestir nota, að þetta sé bílasalanum að kenna og kalla hann aula, og blása +á staðreyndir eins og skoðanaskildu og flr

Author:  Spiderman [ Wed 11. Nov 2009 17:07 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Ég veit ekki hvort þetta er móment í þessu dæmi (hef ekki séð allar forsendurnar) en á bifreiðasala hvílir sú skylda að afla skriflegra upplýsinga um akstur frá seljanda. Þessar upplýsingar eiga að liggja fyrir við undirritun afsals. Þetta kemur fram í lögum um verslunaratvinnu og reglugerð sem á sér stoð í þeim lögum.

Ef bifreiðasali klikkar á þessu og jafnvel öðrum formskyldum sem á herðum hans hvíla, má hugsa sér að fræðilega geti kaupandi átt skaðabótakröfu á hendur bifreiðasalanum og geti þá sótt bætur eftir atvikum beint í starfsábyrgðartryggingu hans.

Author:  Viggóhelgi [ Wed 11. Nov 2009 17:22 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Samningaréttur frekar enn skaðabótarréttur ?

Author:  IngóJP [ Wed 11. Nov 2009 18:03 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Sé ekkert í þessu sem áskilur stúlkunni að skila bílnum hennar fáfræði. Þar sem enginn leyndur galli er og hvergi kemur fram að bílasalinn hafi talað um þessar rispur sem sportrendur

Author:  gunnar [ Wed 11. Nov 2009 19:36 ]
Post subject:  Re: Raunhæft verkefni í lögfræði - Bílasamningur

Ég þakka góð og áhugaverð svör piltar, við vorum einmitt frekar á því að stúlkan þyrfti bara að sjúga upp í nefið með þetta því þetta er í raun hennar feill.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/