Page 1 of 2

VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 19:46
by srr
Sælir,

Konan mín keyrir um á 2005 árgerð af VW Golf 1.6

Fyrir nokkrum mánuðum kom ljós í mælaborðið hjá henni sem sagði "Airbag fault".
Bíllinn hefur ekki lent í nokkurs konar tjóni á meðan hún hefur átt hann, síðan 2007.
Ekkert sem hefur komið upp á síðan sem gæti verið eðlileg skýring á Airbag ljósinu.
Ég hugsaði ekkert meira út í það en að það þyrfti bara að resetta ljósið á næsta VW verkstæði.

Svo núna í dag þegar hún kveikir á bílnum, þá eru komin tvö ný ljós.
Annað er "Exhaust system fault" og hitt er "Electronic stabilisation Programme (ESP)"

Þetta ESP hefur komið stundum í hálku ef bíllinn missir grip, en núna í dag var engin hálka og ekki neitt.

Er einhver með hugmynd hvað þetta Exhaust system fault gæti verið og mögulega
af hverju ESP ljósið er að koma á, við kyrrstöðu?

Er þetta eitthvað sem næsti Heklu dealer þyrfti að gera eða er eitthvað sem ég get gert?

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 19:56
by Kwóti
ef ég væri þú myndi ég kíkja á Bilson verkstæði í múlunum. hafa reynst mér vel

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 20:24
by gunnar
VW rafmagn - Gotta love it :argh: :lol:

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 20:49
by Hreiðar
Takið eftir því þegar þið keyrið framhjá Golf, það er alltaf eitthvað ljós sem virkar ekki. :lol: Systir mín á svona bíl og það er alltaf að koma upp einhver ljós, skrítið :?

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 21:24
by Jón Ragnar
Hreiðar wrote:Takið eftir því þegar þið keyrið framhjá Golf, það er alltaf eitthvað ljós sem virkar ekki. :lol: Systir mín á svona bíl og það er alltaf að koma upp einhver ljós, skrítið :?



Kærastan mín átti MK4 alveg heillengi og ALDREI var ljósavesen á honum nema auðvitað þegar perur springa bara af elli

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 21:38
by Hreiðar
John Rogers wrote:
Hreiðar wrote:Takið eftir því þegar þið keyrið framhjá Golf, það er alltaf eitthvað ljós sem virkar ekki. :lol: Systir mín á svona bíl og það er alltaf að koma upp einhver ljós, skrítið :?



Kærastan mín átti MK4 alveg heillengi og ALDREI var ljósavesen á honum nema auðvitað þegar perur springa bara af elli


Það hlýtur að vera gott eintak :D Ég hef nefnilega aldrei heyrt eitthvað jákvætt um MK4.

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 21:59
by Jón Ragnar
Örugglega einn mest solid bíll sem ég hef "átt" :)

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 23:31
by Aron540
bara stinga honum í samband og láta lesa hann,, grunar að þetta sé ekkert merkilegt, hef heirt um nokkur svipuð tilvik :)

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Mon 26. Oct 2009 23:38
by Sezar
John Rogers wrote:
Hreiðar wrote:Takið eftir því þegar þið keyrið framhjá Golf, það er alltaf eitthvað ljós sem virkar ekki. :lol: Systir mín á svona bíl og það er alltaf að koma upp einhver ljós, skrítið :?



Kærastan mín átti MK4 alveg heillengi og ALDREI var ljósavesen á honum nema auðvitað þegar perur springa bara af elli



Þá hljóta warning perurnar í mælaborðinu á honum hafa verið sprungnar úr elli,,,ef það logaði ekkert. :mrgreen:

Þvílíkir rusl bílar sem eldast illa :thdown:

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 11:24
by Jón Ragnar
Sezar wrote:
John Rogers wrote:
Hreiðar wrote:Takið eftir því þegar þið keyrið framhjá Golf, það er alltaf eitthvað ljós sem virkar ekki. :lol: Systir mín á svona bíl og það er alltaf að koma upp einhver ljós, skrítið :?



Kærastan mín átti MK4 alveg heillengi og ALDREI var ljósavesen á honum nema auðvitað þegar perur springa bara af elli



Þá hljóta warning perurnar í mælaborðinu á honum hafa verið sprungnar úr elli,,,ef það logaði ekkert. :mrgreen:

Þvílíkir rusl bílar sem eldast illa :thdown:


cry me a river :argh: :lol:
VW er fínt

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 11:29
by ValliFudd
Ég keypti nýjan Golf árið 2000... Eftir 20-30 ábyrgðarviðgerðir á 2 árum seldi ég hann.. Ætlaði klárlega ekki að eiga hann eftir að hann dytti úr ábyrgð :lol:

En annars var þetta sem þú nefnir aldrei bilað í mínum. Það var einhver EGR ventill (dó 2x á miklubraut, frábært) og einhverjir skynjarar og dótarí sem var alltaf að klikka hjá mér. Tölvu og stórum hluta rafkerfis skipt út, var hjá þeim í 2-3 vikur í það skiptið..

Vonandi er þetta betra eintak en mitt var :)

Ví döb kaupi ég ekki aftur, nema hann sé eldri, MK1 eða MK2 :)

En þetta var way off topic.. Sorry.. En sá engar svona villur hjá mér, reyndar MK4 bíll..

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 11:40
by srr
Er mér óhætt að prufa resetta ECU tölvuna með að taka mínus pól af og draina rest af rafmagni af ?

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 12:06
by jeppakall
OT: félagi minn tók einu sinni gellu á deit á flottan veitingastað og þegar þau löbbuðu útí bíl í massa rigningu þá ákvað golfinn mk5 að opna alla glugga í bílnum í staðin fyrir að setja bílinn í gang...eftir þetta dó bíllinn alveg og gellan illa sátt rennblaut!

nota bene eftir þessa sögu mun ég ALDREI kaupa mér VW!

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 12:08
by srr
En er ekki alveg óhætt að resetta ecu á svona nýlegum bíl?

Re: VW Golf mk5 - vantar ráðleggingar

PostPosted: Tue 27. Oct 2009 12:24
by Stefan325i
Mjög ólíklegt að villuboðin fari úr tölvuni, þarf að lesa af bílnum og láta reseta þetta.