bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

HP fartölva hleður batteríið ekki
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=40651
Page 1 of 1

Author:  Einari [ Tue 20. Oct 2009 18:46 ]
Post subject:  HP fartölva hleður batteríið ekki

Sælir

Er hérna með HP fartölvu með windows vista ultimate og hún hleður ekki batteríið þegar hún er í sambandi. Ef maður fer með músina yfir batteríis táknið neðst í hægra horninu stendur að það sé tómt, tölvan sé í sambandi en ekki að hlaða það. Er einhversstaðar hægt að slökkva á hleðslunni og hvar er það þá gert???

kv. Einar

Author:  JonHrafn [ Tue 20. Oct 2009 19:36 ]
Post subject:  Re: HP fartölva hleður batteríið ekki

Ónýt rafhlaða?

Author:  ///MR HUNG [ Tue 20. Oct 2009 19:40 ]
Post subject:  Re: HP fartölva hleður batteríið ekki

Þegar mín HP hættir að hlaða þá tek ég hleðslutækið úr sambandi og pluga því svo aftur inn og allir verða sáttir.

Author:  Einari [ Tue 20. Oct 2009 20:09 ]
Post subject:  Re: HP fartölva hleður batteríið ekki

já, málið er bara að batteríið er alveg tómt, þannig að það slokknar á tölvunni alveg um leið og ég tek hana úr sambandi :x

Author:  Djofullinn [ Tue 20. Oct 2009 20:19 ]
Post subject:  Re: HP fartölva hleður batteríið ekki

Einari wrote:
já, málið er bara að batteríið er alveg tómt, þannig að það slokknar á tölvunni alveg um leið og ég tek hana úr sambandi :x

Búinn að prófa að taka rafhlöðuna úr og setja hana aftur í? Ekki hafa tölvuna í sambandi við rafmagn á meðan

Author:  Einari [ Tue 20. Oct 2009 20:45 ]
Post subject:  Re: HP fartölva hleður batteríið ekki

jább, virkar ekki :(

Author:  ///MR HUNG [ Tue 20. Oct 2009 22:04 ]
Post subject:  Re: HP fartölva hleður batteríið ekki

Einari wrote:
já, málið er bara að batteríið er alveg tómt, þannig að það slokknar á tölvunni alveg um leið og ég tek hana úr sambandi :x

Gamla Hp hjá mér lét svoleiðis þegar batterýið var ónýtt.

Ebay fyrir klink og svínvirkaði eftir það.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/