bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=40592 |
Page 1 of 4 |
Author: | bimmer [ Sun 18. Oct 2009 01:53 ] |
Post subject: | Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Bara í lagi: http://www.ultimasports.co.uk/ultimabeatsschumacherfxx Djöfull skal ég eignast svona tæki einn daginn..... |
Author: | ömmudriver [ Sun 18. Oct 2009 02:35 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
In car video'ið minnir mig bara á Go Kart ![]() |
Author: | Maggi B [ Sun 18. Oct 2009 02:50 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
ömmudriver wrote: In car video'ið minnir mig bara á Go Kart ![]() ég hef aldrei séð go kart sem fer svona hratt. þetta er allveg ótrúlegt tæki |
Author: | fart [ Sun 18. Oct 2009 05:46 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Djöfull myndi ég samt frekar vera til í að eiga FXX nú eða "bara" Enzo þrátt fyrir að þeir séu hægari yfirferðar, og geta rekið þannig bíl. Ultiman er fyrir mér dálítið eins og folaldakjöt.. með nægu kryddi er þetta "næstum eins og nautakjöt" en samt ekki. Þessi Ultima er alveg mökkljótur (reyndar aukaatriði) en lítur virkilega út fyrir að kosta frá GBP 30.000. En þetta mokast s.s. áfram. Með því er ég ekki að segja að Enso eða FXX looki vel, reyndar myndi ég helst vilja eiga Maserati MC12 af þeim ítölsku. Annað sem er áhugavert, eða væri áhugavert er alvöru crash test. Ég hef það einhvernvegin á tilfinningunni að bleiki búðingurinn við stýrið (t.d. ég) færi betur út úr því í koltrefjaumgjörðinni frá Ítalíu en breska bílskúrsbúrinu, en það er samt kanski besides the point að ég er ekki milljón punda virði að mati trygginafélagsins míns. Come to think of it, þá myndi ég líklega bara vera sáttur við trackaða Z06 eða GT40 replicu ef maður myndi ætla í þannig pakka, því að ég trúi ekki að budget Ultima sé alveg æði, maður þarf líklega að eyða duglega til að vera sáttur með svona kit. Svo er annað. Buy an FXX today for GPB 1million... líklega rúmlega það virði í framtíðinni. Kaupir Ultima og þú eyðir tíma í skúrnum við að búa til eitthvað sem verður þér verðmætara en FXX þó svo að þú fáir það ekki til baka. Svo er það náttúrulega smekksatriði hvort að menn fíla bassan úr V8 eða tenórinn í ítölsku súperV12. Þetta atriði var mikið rökrætt á SPA24hour.. Ég flaggaði í hálfa þegar MC12(RACE) fór framhjá með svo miklum látum að fyllingarnar í jöxlunum vildu úr, en félagi minn byrjaði að flissa eins og smástelpa þegar BassaCorvettan (Z06RACE) öskraði á hann. Prefrensið verður seint útskýrt. |
Author: | bebecar [ Sun 18. Oct 2009 10:06 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
ÉG hló þegar ég las samlíkinguna með folaldakjötinu ![]() Ég skil vel Ultima conceptið og mér finnst hann reyndar ekkert ljótur... en fyrir mína parta ætti þetta fyrst og fremst að snúast um sem flesta hringi við sem minnstan rekstrarkostnað og því væri bara einhver flottur Caterham alveg nógu gott fyrir mig... Maður kemst samt ekki hjá því að leiða hugan að því hvernig maður færi út úr krassi á slíkum bíl. GT40 replicu hugmyndin sameinar svo sitt lítið af hverju, í það minnsta vantar ekkert á kúlið og fílinginn þar... |
Author: | fart [ Sun 18. Oct 2009 14:09 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Caterham crash ![]() En ég fann ekkert um öryggi þessara bíla. |
Author: | Alpina [ Sun 18. Oct 2009 18:03 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Það eina sem skyggir á þetta er að,, TOP-GEAR ((Stig )) verður að vera undir stýri til að staðfesta þetta,, fyrir almenningi, og TV áhorfendum.. það er eitthvað í gangi hjá þeim ,, að vilja ekki taka þennann bíl í þáttinn Sveinn,,,,,, Ultíma ljótur bíll ![]() ![]() |
Author: | bimmer [ Sun 18. Oct 2009 19:07 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Mér finnst Ultiman looka alveg brilljant - enda fílaði ég Group C bílana, Porsche 962 etc. í tætlur. Verðið sem þeir gefa oft upp sem lágmarksverð fyrir Ultimu, 30.000 pund er ekki raunhæft, flestir eru sammála um að Ultima með gott spec er á bilinu 50.000 - 60.000 pund. Varðandi öryggið í þessum bílum þá kaupa milljón pund af CF og R&D örugglega meiri vernd. Ég hef hins vegar verið að fylgjast með þessu Ultima dæmi í nokkurn tíma og menn hafa verið að klessa þessa bíla og þeir hafa ekki komið neitt illa út úr því, grindin er sterk. |
Author: | Alpina [ Sun 18. Oct 2009 19:40 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
bimmer wrote: Mér finnst Ultiman looka alveg brilljant - enda fílaði ég Group C bílana, Porsche 962 etc. í tætlur. Verðið sem þeir gefa oft upp sem lágmarksverð fyrir Ultimu, 30.000 pund er ekki raunhæft, flestir eru sammála um að Ultima með gott spec er á bilinu 50.000 - 60.000 pund. Varðandi öryggið í þessum bílum þá kaupa milljón pund af CF og R&D örugglega meiri vernd. Ég hef hins vegar verið að fylgjast með þessu Ultima dæmi í nokkurn tíma og menn hafa verið að klessa þessa bíla og þeir hafa ekki komið neitt illa út úr því, grindin er sterk. ULTIMA er magnað apparat.. það þarf ekkert að rengja það á einn eða neinn hátt |
Author: | Arnar [ Sun 18. Oct 2009 20:19 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Þetta er rosalegt þegar það er komnar tvær bínur á þetta í viðbót. http://www.youtube.com/watch?v=hnpEG8dGkQY&feature=channel |
Author: | fart [ Sun 18. Oct 2009 20:21 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Alpina wrote: bimmer wrote: Mér finnst Ultiman looka alveg brilljant - enda fílaði ég Group C bílana, Porsche 962 etc. í tætlur. Verðið sem þeir gefa oft upp sem lágmarksverð fyrir Ultimu, 30.000 pund er ekki raunhæft, flestir eru sammála um að Ultima með gott spec er á bilinu 50.000 - 60.000 pund. Varðandi öryggið í þessum bílum þá kaupa milljón pund af CF og R&D örugglega meiri vernd. Ég hef hins vegar verið að fylgjast með þessu Ultima dæmi í nokkurn tíma og menn hafa verið að klessa þessa bíla og þeir hafa ekki komið neitt illa út úr því, grindin er sterk. ULTIMA er magnað apparat.. það þarf ekkert að rengja það á einn eða neinn hátt Enda enginn að því, nema kanski hvað öryggi varðar og svo build quality þar sem að sá sem sér um samsetninguna líklega ekki jafn fær og þeir sem vinna við þetta dags daglega undir ströngu quality eftirliti. En ég fíla líka gömlu racerana, 962 osfrv. Og ég myndi ekki spá í útlitið ef ég væri að kaupa performance, enda finnst mér hypercars yfirleitt ljótir. Ef maður keypti fyrir útlitið færi ég alltaf í Alfa 8C ![]() |
Author: | gstuning [ Sun 18. Oct 2009 20:27 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Er bílinn ekki grind sem dót er boltað á? Ef svo þá er grindin eina sem er hluti af árekstrar vörninni og "boddý" er bara plast sem splundrast og hefur ekki neina vörn. Og þá hefur það engin áhrif á vörnina hver setur þetta samann. |
Author: | fart [ Sun 18. Oct 2009 20:32 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
gstuning wrote: Er bílinn ekki grind sem dót er boltað á? Ef svo þá er grindin eina sem er hluti af árekstrar vörninni og "boddý" er bara plast sem splundrast og hefur ekki neina vörn. Og þá hefur það engin áhrif á vörnina hver setur þetta samann. En það hefur áhrif á build quality hvort að ég set bílinn saman eða einhver sem gerir ekki annað en að setja saman bíla ![]() |
Author: | gstuning [ Sun 18. Oct 2009 20:44 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Ef þú gerir það vitlaust, þá fer hann nú ekki í gegnum skoðun hvað þá að komast þangað, sérstaklega af því að þetta er kit bíll og fer í gegnum spes skoðun, allaveganna í englandi. Ég er ekki að sjá hvað það er hluti af build quality og hefur áhrif á öryggið. Þar sem að grindin í bílnum er hreinlega bara veltibúr . |
Author: | bimmer [ Sun 18. Oct 2009 21:18 ] |
Post subject: | Re: Ultima slær Schumacher/FXX við á Top Gear brautinni |
Grindin kemur í heilu lagi þannig að það skiptir engu máli hver setur bílinn saman varðandi styrkinn á henni. ![]() |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |