Page 1 of 1

Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 19:17
by KjartaanTuurbo
Góðan.

Jæja, nú er ég ekki sáttur. Ég var að vinna hjá Fosshótel. þann 18 september varð ég alveg FÁRVEIKUR og tók mér frí, þann 21.september var ég greindur með þessa svokölluðu svínaflensu, þannig ég var að taka mér viku frí frá vinnu vegna "smithættu".
Þann 22.september er ég rekinn fyrir að hafa ekki mætt í vinnu í 4 daga þó að hótelstjórinn vissi full vel hvað væri í gangi hjá mér!
Mér finnst þetta gruggugt þar sem ég hélt að það væri ólöglegt að reka starfsmann fyrir veikindi?

Svona eins og nokkrir vita þá er ég að eignast barn núna 25.okt, vegna þess er ég atvinnulaus og það gengur ekki! Ætti fyrir tækið ekki að borga mér þessa mánuði sem ég skrifaði undir samning fyrir ?
Er það löglegt að borga mér 128 þúsund krónur fyrir 273 vinnu tíma, bæði í dagvinnu, yfirvinnu OG næturvinnu!

Mig sárvantar hjálp við að fá að vita rétt minn .

MBK.
Kjartan Steinar Jónsson!

Re: Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 19:18
by gardara
Er ekki best að byrja á því að tala við stéttarfélagið þitt?

Re: Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 19:20
by KjartaanTuurbo
gardara wrote:Er ekki best að byrja á því að tala við stéttarfélagið þitt?


ég fæ jafn mikið útúr þeim og rassgatinu á svíni!

Re: Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 19:40
by JonFreyr
Attitude kemur manni langa leið, stéttarfélagið þitt vill ekki að félagsmönnum sé riðið í rassgatið. Þeir vilja heldur ekki láta úthúða sig á netinu. Byrjaðu hjá stéttarfélaginu, þeirra verkefni er að standa vörð um réttindi sinna félagsmanna/kvenna.
Þar geturðu einnig fengið upplýsingar um lágmarkslaun innan "geirans".

Ég finn til með þér en þú verður að beisla pirringinn og nota hann til að stýra þessu máli í réttan farveg.

Re: Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 20:11
by KjartaanTuurbo
þá skoða ég það :) takk :)

Re: Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 20:12
by bimmer
Áttu vottorð frá lækni varðandi svínaflensuna?
Ef þú ert með það þá skaltu fara með afrit af því til Eflingar.

Re: Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 20:13
by Alpina
Vóó..

menn fara ekki langt með svona yfirlýsingum

Re: Er einhver llögfræðimenntaður hér ?

PostPosted: Fri 09. Oct 2009 20:39
by Kristjan
ég myndi byrja á því að eyða út þessum skrifum, eða endurorða þetta, græðir ekkert á því ef einhver sér þetta sem getur hjálpað þér... svo ættirðu að tala við stéttarfélagið þitt.