Page 1 of 1

Mercedes Benz 280 SE 1975

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 12:24
by Aron

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 12:33
by fart
Ein spurning Aron, áttu bílinn?

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 12:41
by Aron
Fræðilega á ég hann ekki, sem sé ég er ekki skráður fyrir honum. Fóstur pabbi minn fékk þennann bíl nánast gefins og ég er eini einstaklingurinn í fjölskyldunni sem hef metnaðinn og áhugann sem þarf til þess að gera hann fínnann. Ég nota er að nota hann eins og er því að fóstur pabbi minn fékk Toyotuna mína lánaða :) vííí

Ég reikna fastlega með að ég eigi eftir að eiga hann fræðilega eftir sumarið.

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 13:00
by fart
Átti afi þinn hann ekki? (fósturafi).

Þú verður að lofa mér því að fara vel með hann! Ef mér skjátlast ekki með þennan bíl þá þekki ég hann svolítið. Sami eigandi í fjandi langan tíma.

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 13:09
by bebecar
Ferlega flottur bíll og besti liturinn á þetta boddí að mínu mati. Annars finnst mér þessir bílar alltaf flottastir að innan!

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 13:39
by Aron
fart wrote:Átti afi þinn hann ekki? (fósturafi).

Þú verður að lofa mér því að fara vel með hann! Ef mér skjátlast ekki með þennan bíl þá þekki ég hann svolítið. Sami eigandi í fjandi langan tíma.


Jú það er sami eigandi síðan hann var fluttur inn og þangað til núna, hann kom 1977 til landsins ef að mér skjátlast ekki.

Fóstur pabbi minn er já vinur fyrrverandi eiganda.

Ég lofa því ég fer vel með bílinn.

en bebe það er einmitt það sem þarf mest að gera við þennann bíl er að gera hann sætann að innan.

http://www.cardomain.com/id/aronjarlkongur

Eins og sést þarna á þessum myndum

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 13:47
by bebecar
Það er nú allt í lagi með mælaborðið er það ekki (geggjaðir mælar) en synd að sjá sætin og klæðninguna.

PS, en það er ekkert mál að fá notaða innréttingu í þetta...

PostPosted: Thu 15. Jan 2004 14:04
by Aron
Það er akkúrat það sem að er í gangi, mælaborðið er eins og nýtt sér ekki á því.

Málið er að bíllinn var blautur einhvern tímann og í þónokkurn tíma greinilega og mest af taujinu er morkið og svona.