bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=39696 |
Page 1 of 5 |
Author: | Zed III [ Tue 08. Sep 2009 09:35 ] |
Post subject: | Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
daginn, Ég er með hp fartölvu sem virkar fínt þar til ég opna of mörg forrit eða glugga. Þá hægist alveg hrikalega á henni og oftar en ekki þarf ég að reboota henni "brute force" þar sem frostið fer ekki úr henni nema við endurræsingu. Er margt sem kemur til greina ? Mig grunar RAM-ið en er ekki viss hvernig ég testa það. |
Author: | Brútus [ Tue 08. Sep 2009 10:09 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Þarna eru tools fyrir HP: http://h10025.www1.hp.com/ewfrf/wc/fast ... =c00849402 Þú gætir keyrt þau og séð hvaða niðurstöður þú færð. Hefur þú látið rykhreinsa vélina ? , ertu með hana á þekjandi fleti , svosem rúmi eða sæng , þar sem hún hitnar mikið ? |
Author: | Zed III [ Tue 08. Sep 2009 10:16 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
takk fyrir þetta, verð að skoða þessi tól í kvöld. Mér finnst vélin hafa hitnað mikið í gegnum tíðina, hún átti það til að standa á sófabrúninni, en hún hagar sér eins núna þegar hún er á borðinu. Ég hef reyndar ekki látið rykhreinsa vélina. |
Author: | Kristjan [ Tue 08. Sep 2009 11:13 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Byrjaðu á því að láta rykhreinsa hana. |
Author: | Benz [ Tue 08. Sep 2009 11:25 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Hvaða týpu af HP ertu með? Sumar gerðir af HP haga sér furðulegar en aðrar ![]() Er með fjórðu kynslóðina af HP fartölvu í vinnunni og á eina prívat heima svo að ég þekki aðeins orðið til þessa gripa. |
Author: | Einarsss [ Tue 08. Sep 2009 11:34 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Hvað ertu með mikið minni og hvaða stýrikerfi? Þetta lýsir sér alveg eins og þú sért farinn að fylla minnið og þá neyðist tölvan til að skrifa á diskinn sem veldur því að tölvan verður mega hægvirk og talandi ekki um ef að diskurinn er að fylla og ó defraggaður. Svo gæti líka verið að eitthvað forrit sem þú ert með sé illa skrifað og sé að valdaminnisleka(bætir við sig meira og meira minni í notkun) |
Author: | Zed III [ Tue 08. Sep 2009 12:28 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
dv9000 og vista (home edition held ég) Spekkið er nokkuð gott en ég er ekki alveg með það í kollinum. Spurning með minnið eins og einarsss nefnir |
Author: | Svezel [ Tue 08. Sep 2009 12:33 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Formata og skipta um OS, Vista er algjört ógeð |
Author: | gstuning [ Tue 08. Sep 2009 12:34 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Windows 7 right now!! Vista var alveg að drepa vélina hjá mér þegar nokkur forrit voru opin, Algerlega allt annað með W7 |
Author: | bimmer [ Tue 08. Sep 2009 12:42 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Sammála - clean Win7 install. |
Author: | Zed III [ Tue 08. Sep 2009 12:48 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
það er þá taskið fyrir kvöldið, sótti meira að segja Win7 í gær og smellti á disk þ.a. maður er good to go. |
Author: | gardara [ Tue 08. Sep 2009 13:08 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
einarsss wrote: Hvað ertu með mikið minni og hvaða stýrikerfi? Þetta lýsir sér alveg eins og þú sért farinn að fylla minnið og þá neyðist tölvan til að skrifa á diskinn sem veldur því að tölvan verður mega hægvirk og talandi ekki um ef að diskurinn er að fylla og ó defraggaður. Svo gæti líka verið að eitthvað forrit sem þú ert með sé illa skrifað og sé að valdaminnisleka(bætir við sig meira og meira minni í notkun) lífið er svo gott með filesystem sem maður þarf ekki að vera að defragga ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Tue 08. Sep 2009 13:52 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Ég var að henda inn Ubuntu á lappann í gær, dual boota það m. XP til hliðar. Mjög þægilegt í alla daglega notkun, en þarf samt að skipta yfir í Windows f. glósuforrit og þannig. |
Author: | dabbiso0 [ Tue 08. Sep 2009 15:25 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
gstuning wrote: Windows 7 right now!! Vista var alveg að drepa vélina hjá mér þegar nokkur forrit voru opin, Algerlega allt annað með W7 Win7 er klárlega málið, drivera vesen er líka úr sögunni með því, mega fast og mega gott dæmi hér á ferð. Ég er meira að segja kominn með registered útgáfu ![]() |
Author: | gunnar [ Tue 08. Sep 2009 15:28 ] |
Post subject: | Re: Tölvu vesen - Vélin á til að hægja verulega á sér |
Eina leiðinlega við Windows 7 er að það er að éta upp cpu hjá mér í lappanum. scvhost og ekm.exe og dwm.exe að hakka í cpu hjá mér. |
Page 1 of 5 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |