Page 1 of 1

tryggingamál og tjón

PostPosted: Sun 06. Sep 2009 13:19
by Zed III
daginn,

er að spá í einu varðandi tryggingamál og tjón.

Var að keyra heim úr Keflavík í gær og lenti í smá atviki. Önnur akreinin var nánast stopp og ég lít í spegil og sé nokkuð langt í bíl hinni akreininni. Ég skipti um akrein og nokkrum sek seinna sé ég bílinn sem var á akreininni kominn út fyrir veg og upp að hliðinni á mér. Hann segist hafa verið á 110 og ekki náð að hægja á sér. Bílarnir nudduðust aðeins saman en minn skemmdist mjög lítið, nokkrar smárispur en reyndar skemd á báðar felgurnar (sem ég ætlaði mér að polýhúða). Bíll félagans, sem var mjög kurteis og vinalegur, skemdist nokuð meira.

Ég er að spá í tryggingamál. Ég er ekki 100% á því að vera í rétti, þó mér finnist ég eiga að vera það þar sem ég er kominn alveg út á akreinina og búinn að keira beint í smá tíma, plús hann segist hafa farið of hratt. Á ég að fara með þetta í tryggingarnar og sækja þetta eins og ég sé í rétti eða gera eitthvað annað (mitt tjón er ekki mikið).

Við gerðum ekki skýrslu en ætlum að gera slíka á eftir. Minn er ekki í kaskó hans er í kaskó.

Re: tryggingamál og tjón

PostPosted: Sun 06. Sep 2009 13:24
by ömmudriver
Ooog afhverju er bíllinn þinn ekki í kaskó?

Re: tryggingamál og tjón

PostPosted: Sun 06. Sep 2009 13:28
by Zed III
Oiii, ekkert svona ungi maður.

Þetta er annars WIP, er búinn að vara að taka til í tryggingamálum og þetta er á listanum. Fyrst vildi elísabet ekki tryggja mig (bíllinn of kraftmikill) , svo hijackaði TM þessu frá þeim og ég þurfti með herkjum að koma þessu inní Vörð frá þeim. Næsta stopp átti að vera að klára kaskóið (þetta er góður reminder).

Tek fram að ég hef ekið tjónlaust í 15 ár.

Re: tryggingamál og tjón

PostPosted: Sun 06. Sep 2009 18:44
by Tommi Camaro
3 sec reglan , gildir , ef þu hefur verið á akreininn í lengri tíma en það þá ertu í rétti annars er það deilanlegt
p.s.
bara dílar við hann tekur 50% í kaskóinu hans,hann skrifar skýsluna bara þanning að þú sért í rétti og hann órétti,

Re: tryggingamál og tjón

PostPosted: Sun 06. Sep 2009 19:13
by Zed III
Cheers Tommi, er vel viss að ég sé búinn að vera meira en 3 sek á akreininni.

þegar þú segir tekur 50% í kaskóinu, meinaru að ég borgi 50% af sjálfsábyrgðinni hjá honum ?

Re: tryggingamál og tjón

PostPosted: Sun 06. Sep 2009 22:25
by gstuning
Zed III wrote:Cheers Tommi, er vel viss að ég sé búinn að vera meira en 3 sek á akreininni.

þegar þú segir tekur 50% í kaskóinu, meinaru að ég borgi 50% af sjálfsábyrgðinni hjá honum ?


Bingó

Re: tryggingamál og tjón

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 06:25
by IngóJP
Var löggimann ekki kallaður á staðinn?

Re: tryggingamál og tjón

PostPosted: Mon 07. Sep 2009 06:50
by Zed III
IngóJP wrote:Var löggimann ekki kallaður á staðinn?


nope, varla ástæða til. Lítið tjón og engin meiddur.