Page 1 of 2

Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 21:38
by Geysir
Jæja nú er ég búinn að fá nóg á drulluhalanum sem að leggur alltaf vörubílsdruslunni sinni hérna í götuna og því langar mig að spyrja ykkur hvort eitthvert ykkar viti hvar lögin standa á svona löguðu?

Þannig er að ég bý í þröngri götu í Hafnarfirði þar sem ekki er mikið um stæði en samt sem áður að þá leggur þessi mannómynd ávallt vörubílnum sínum hérna í götuna, og það mæti nota stæðin sem þessi bíll tekur sem tvö stæði fyrir venjulegan fólksbíl.

Er eitthvað sem maður getur gert?

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 21:41
by Alpina
Geysir wrote:
Er eitthvað sem maður getur gert?


Hringja í tugta og spyrja þá út í þetta

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 21:46
by Geysir
Alpina wrote:
Geysir wrote:
Er eitthvað sem maður getur gert?


Hringja í tugta og spyrja þá út í þetta



Planið að gera það á morgun.
Langaði bara að kanna hvort eitthver hefði lent í þessu.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 21:50
by Árni S.
er þessi bíll merktur einhverju fyritæki?

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 22:12
by Einarsss
held að það sé nánast öruggt að þessi bílar megi ekki leggja í venjulega stæði í íbúðarhverfi.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 22:44
by Raggi M5
Flutningabílar/vörubílar mega EKKI leggja inní íbúðarhverfum. Ekki nema í eigin innkeyrslu sem slíkar bílar komast mjög sjaldan fyrir í

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Thu 06. Aug 2009 23:39
by ///MR HUNG
Þetta er bannað en hvaða gata er þetta?

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 00:05
by Vargur
Vissulega bannað en það held ég að sé aðallega vegna ónæðis sem fólk getur orðið fyrir þegar þessir bílar eru gangsettir td snemma morguns.
Ég skil reyndar ekki þetta hatur á vörubílum, af hverju á fólksbíll að vera eitthvað rétthærri en vörubíll og af hverju er ökumaðurinn drulluhali ?
Menn meiga ekki gleyma því hvað þessir bílar gera fyrir okkur. það væri td gaman að sjá mannskapinn keyra efnið upp úr og í sökkla á nýbyggingum með leigukerru frá Shell.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 00:08
by Geysir
Árni S. wrote:er þessi bíll merktur einhverju fyritæki?

Já hann er merktur fyrirtæki, Sendibílastöðin HF stendur stórum stöfum á hliðinni.


///MR HUNG wrote:Þetta er bannað en hvaða gata er þetta?

Þetta er Hverfisgatan hérna í Hafnarfirði.


Og já ég vil taka það fram að allt sem ég skrifaði hér fyrr í þræðinum um manninn var skrifað í mikilli reiði og því óþarfi að hlaupa til handa og fóta ef eitthver kannast við götuna og manninn sem keyrir þennann bíl.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 00:18
by Geysir
Vargur wrote:Vissulega bannað en það held ég að sé aðallega vegna ónæðis sem fólk getur orðið fyrir þegar þessir bílar eru gangsettir td snemma morguns.
Ég skil reyndar ekki þetta hatur á vörubílum, af hverju á fólksbíll að vera eitthvað rétthærri en vörubíll og af hverju er ökumaðurinn drulluhali ?
Menn meiga ekki gleyma því hvað þessir bílar gera fyrir okkur. það væri td gaman að sjá mannskapinn keyra efnið upp úr og í sökkla á nýbyggingum með leigukerru frá Shell.



Svarið þitt var ekki komið inn hérna þegar ég skrifaði svarið mitt.
En eins og ég sagði fyrr, þá var þetta skrifað áðan þegar ég var illa fyrir kallaður og ekki sá besti í skapinu og voru skrif mín undir þeim áhrifum.

Það er alveg rétt að þetta eru mikil þarfa tæki og ég styð vörubílstjóra heilshugar en þetta tiltekna tilvik er einstaklega hvimleitt enda varla hægt að opna hér glugga þegar gripurinn er gangsettur á morgnanna ásamt því að það er ekki mikið um stæði hér akkúrat í götunni og hef ég alloft lent í því að þurfa legga talsvert neðar í götunni sökum þess hve lítið er um stæði.

Og ég veit af því að fleira fólk hér í götunni er langt frá því að vera sátt með þetta. Sérstaklega fólkið í íbúðinni sem hann leggur yfirleitt sem næst því það getur einfaldlega ekki haft opna glugga sökum díselstyppu sem leggst inn í íbúðina á morgnanna.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 00:58
by gtturbo
Hann má ekki leggja svona bíl í íbúðargötu og meira segja má ekki leggja stórum t.d. 350 Ford þar heldur (þar sem hann er skráður vörubifreið). Hringja bara í lögregluna og hún sektar hann fyrir að leggja þarna ef hann gerir það aftur.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 01:27
by ///MR HUNG
Vargur wrote:Vissulega bannað en það held ég að sé aðallega vegna ónæðis sem fólk getur orðið fyrir þegar þessir bílar eru gangsettir td snemma morguns.
Ég skil reyndar ekki þetta hatur á vörubílum, af hverju á fólksbíll að vera eitthvað rétthærri en vörubíll og af hverju er ökumaðurinn drulluhali ?
Menn meiga ekki gleyma því hvað þessir bílar gera fyrir okkur. það væri td gaman að sjá mannskapinn keyra efnið upp úr og í sökkla á nýbyggingum með leigukerru frá Shell.
Hvað ertu að rugla?

Maður vill ekki hafa þessa bíla í íbúðagötum í fyrstalagi vegna þess að ég kæri mig ekki um að börnin mín séu í hættu á að vera flött út af svona hlúnk.

0g auðvitað fylgja þessu læti líka og þessir menn geta alveg labbað nokkra metra fyrst þeir þurfa að koma á þessu heim.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 07:34
by fart
Er það ekki gamla 3500kg+ reglan. Allt yfir þarf að leggja annarstaðar, minnir að það standi í lögunum. Að vísu sýnist mér það þýða að það sé bara hip og cool að leggja þessu leggja þessu í íbúðarhverfi því það að brjóta lög er inn á Íslandi.

Það lagði einn svona alltaf fyrir utan blokk sem ég bjó í og það pirraði mig aðeins. Aðallega var það þrennt.

1. hann gat ekki lagt í venjulegt stæði og lagði því utaná stæðin sem þrengdi innkeyrsluna allt of mikið og blokkaði útsýni fyrir þá sem voru að keyra út úr stæðum.

2. þegar þetta var sett í gang á snemma morguns kom þykkt dieselský yfir bílastæðið sem var oft ok, enda ósjaldan rok á Íslandi, en á fallegum sumardegi, að ekki sé talaðum fallegum vetrardegi með stillu og frosti var þetta óbærilegt.

3. Krakkar léku sér mikið við bílinn, undir honum og ofaná, sem er stórhættulegt.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 07:38
by ///MR HUNG
Ég mun aldrei gleyma því þegar öskubíllinn bakkaði yfir barnið í setbergi um árið :?

Eftir það vill ég ekki sjá þetta í íbúðarhverfum.

Re: Má leggja vörubíl í hvaða stæði/götu sem er?

PostPosted: Fri 07. Aug 2009 08:00
by fart
///MR HUNG wrote:Ég mun aldrei gleyma því þegar öskubíllinn bakkaði yfir barnið í setbergi um árið :?

Eftir það vill ég ekki sjá þetta í íbúðarhverfum.


Nei, ekki ég heldur, kannaðist við ökumanninn og þetta gerðist í næstu götu við mig. Skelfilegt.