bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Held að ég hafi aldrei......
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=38924
Page 1 of 10

Author:  bimmer [ Sat 01. Aug 2009 04:32 ]
Post subject:  Held að ég hafi aldrei......

..... verið jafn stoltur/glaður/montinn og í dag :wink:

Image

Image

Hún fæddist á miðvikudaginn, heilbrigð og spræk.

Author:  Stanky [ Sat 01. Aug 2009 04:45 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

bimmer wrote:
..... verið jafn stoltur/glaður/montinn og í dag :wink:

Image

Image

Hún fæddist á miðvikudaginn, heilbrigð og spræk.



Til hamingju með stúlkuna :):)

Author:  fart [ Sat 01. Aug 2009 05:33 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Innilega til hamingju Þórður, skilaðu góðri kveðju til konunar.

Það er ekki laust við að maður verði bara dálítið auðmjúkur svona í morgunsárið að sjá þetta því það rifjast upp sterkar tilfinningar. Eins og einhver myndi orða það "Engu líkt" að verða pabbi í fyrsta skipti, nú eða annað, eða þriðja :D Ótrúleg tilfinning.

Glæsileg stelpa!

Author:  arnibjorn [ Sat 01. Aug 2009 05:34 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Innilega til hamingju gamli :D

Árný litla lítur bara vel út!

Author:  gardara [ Sat 01. Aug 2009 06:12 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Til hamingju vinur!

Glæsileg stúlka!

Author:  Alpina [ Sat 01. Aug 2009 07:05 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

WELL DONE ............ :thup: :thup:

Author:  saemi [ Sat 01. Aug 2009 08:26 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Til hamingju aftur.

Þetta er mikið afrek :P

Voðalega sæt og fín, hárprúð eins og pabbi sinn. Líka voðalega slétt og fín, eins og hún hafi ekki staðið á haus lengi þarna í mallanum :)

Author:  SteiniDJ [ Sat 01. Aug 2009 08:29 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Til hamingju. :) Er þetta fyrsta barnið?

Author:  iar [ Sat 01. Aug 2009 08:47 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Innilega til hamingju!! :D :thup:

Author:  elli [ Sat 01. Aug 2009 09:23 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Congratz!
:!:

Þetta á ég alveg eftir. En það er búið að æfa mikið :oops:

Author:  demi [ Sat 01. Aug 2009 09:47 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Til hamingju, líklegast ólýsanleg tilfinning að verða faðir í fyrsta sinn :)

Author:  Zed III [ Sat 01. Aug 2009 09:55 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Frábært, til hamingju með þetta.

Author:  HAMAR [ Sat 01. Aug 2009 10:17 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Til hamingju með stelpuna :cheers:

Image

Author:  Einarsss [ Sat 01. Aug 2009 10:47 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Kannast við þessa tilfinningu ... besta tilfinning sem maður getur upplifað ever :) algjörlega óútskýranleg gleði og stolt

Innilega til hamingju :thup:

Author:  Alpina [ Sat 01. Aug 2009 11:18 ]
Post subject:  Re: Held að ég hafi aldrei......

Í framtíðinni þegar verður spurt um ,,, má ég fá bílinn lánaðann


Skvís til móður:

Má ég mamma lána bíl
mætti hann vera blár
skelfa vil ég stráka skríl
skrika vera klár

pabbi segir þú verður að passa
pen, þú mátta sko ekki krassa
spóla og spæla
spyrna og væla
klárlega að sýna smá klassa

Þórður til skvís:

Mökka skaltu megafeitt
mundu að standann flatann
leggjann , af leikni aka greitt
lunkinn eins og Zlatan (Ibramovich)

redline alltaf reka í gír
rjúka skal úr dekkjum
fara fram úr hvaða fýr
fúlir af þeim hrekkjum

Lögreglan til skvís : ÞÉR ERUÐ HÉR MEÐ HANDTEKINN :lol:

Page 1 of 10 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/