Page 1 of 2

Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 13:29
by arnibjorn
Hvernig gengur þetta upp?? 13 ára að keyra bíl sofandi :lol:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... _i_svefni/

Þrettán ára gömul stúlka tók bifreið traustataki í Húsafelli í nótt og ók henni til Keflavíkur. Svo virðist sem stúlkan hafi verið í fastasvefni er hún stal bifreiðinni en hún á vanda til að ganga um í svefni. Hafði hún skrifað skilaboð á vegg hjá bíleigendum með kveðju frá „næturröltaranum".

Að sögn eiganda bifreiðarinnar virðist sem stúlkan hafi gengið dágóðan spöl í svefni í Húsafelli, úr sumarbústað sem hún dvaldi í að húsi þar sem bíllyklarnir voru geymdir. Þar skrifaði hún kveðju til bíleigandans og tók lykla af Toyota Landcruiser bifreið hans og ók af stað.

Segir hann enga ástæðu til annars en að taka orð föður stúlkunnar trúanleg um næturgöngur hennar í svefni en engin verðmæti voru tekin og engar skemmdir unnar á heimili bíleigandans.

Lögreglan á Suðurnesjum vildi ekki tjá sig um málið við mbl.is en samkvæmt heimildum mbl.is var það athugull vegfarandi í Keflavík sem sá til sérkennilegs aksturslags bifreiðarinnar. Þegar betur var að gáð reyndist barn vera undir stýri.

Ekkert sér á bifreiðinni eftir næturævintýrið annað en að henni hafi greinilega ítrekað verið ekið utan í kantsteina á leiðinni frá Húsafelli í Keflavík.

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 13:44
by Einarsss
what tha hell :hmm:

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 13:58
by rockstone
Heyrði einu sinni frá einu atviki þar strákur og kærasta hans voru að horfa á mynd, svo sofnaði strákurinn, og kærastan lét við hann eins og hann væri seinn í vinnuna, hann sest inn í bíl og hún með honum, hann enþá sofandi! Semsagt gangandi í svefni. Hann keyrir alla leið að vinnunni sinna, þar sem hún vekur hann, hún skellli hlæjandi, og hann grautfúll yfir því að hún lét hann gera þetta. Þetta var um miðja nótt.:lol:

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 14:07
by SteiniDJ
Ég hef stútað kartöflum og skóm í svefni, en aldrei keyrt 170 km. :shock:

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 14:09
by arnibjorn
Við erum að tala um að stelpan hefur þurft að fara í gegnum göngin(nema hún hafi keyrt Hvalfjörðinn) og keyrt í gegnum alla Reykjavík til að komast til Keflavíkur.

Magnaður skítur!

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 14:12
by Hannsi
Ekki nóg með það þá náði 13 ára stelpan að rata alla þessa leið :o

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 14:15
by SteiniDJ
arnibjorn wrote:Við erum að tala um að stelpan hefur þurft að fara í gegnum göngin(nema hún hafi keyrt Hvalfjörðinn) og keyrt í gegnum alla Reykjavík til að komast til Keflavíkur.

Magnaður skítur!

Mmm, er ekki alveg að kaupa þetta.

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 14:17
by arnibjorn
SteiniDJ wrote:
arnibjorn wrote:Við erum að tala um að stelpan hefur þurft að fara í gegnum göngin(nema hún hafi keyrt Hvalfjörðinn) og keyrt í gegnum alla Reykjavík til að komast til Keflavíkur.

Magnaður skítur!

Mmm, er ekki alveg að kaupa þetta.

Nei nákvæmlega... það er alveg rosalega erfitt að trúa þessu :?

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 14:21
by SteiniDJ
arnibjorn wrote:
SteiniDJ wrote:
arnibjorn wrote:Við erum að tala um að stelpan hefur þurft að fara í gegnum göngin(nema hún hafi keyrt Hvalfjörðinn) og keyrt í gegnum alla Reykjavík til að komast til Keflavíkur.

Magnaður skítur!

Mmm, er ekki alveg að kaupa þetta.

Nei nákvæmlega... það er alveg rosalega erfitt að trúa þessu :?

Örugglega verið að rífast við foreldra sína útaf einhverju asnalegu sem bara unglingur gæti búið til. Stolist svo út um nóttina þegar hún átti að vera 'sofandi', stolið bíl og keyrt heim. Trúi þessu mikið frekar.

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 14:30

Já einmitt eitthvað svona sem að mér datt í hug. Kalla hana samt góða að hafa komist alla þessa leið, hvort sem að hún var sofandi eða vakandi.

Dóttir bróðir míns er 13 ára og ég er ekki að sjá hana fyrir mér keyra bíl svona langa leið! :shock:

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 16:15
by UnnarÓ

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 16:24
by IngóJP
Núna eigum við eftir að sjá nokkrar fyrirsagnir í blöðum... Rændi sjoppu sofandi, Rændi banka sofandi, Ók ölvaður sofandi... Nýja afsökunin fyrir öllu ég get útskýrt þetta ég var sofandi ég vissi ekki að ég væri að halda framhjá þér með systir þinni..... Ég var sofandi

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 16:50
by SteiniDJ
Bara óvart, öll nóttin.

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 20:26
by burger
trúi þessu 0% ekki séns að hún hafi komist í gegnum rvk án þess að valda stórslysi þegar hún keyrir sofandi ! getur engann veginn skynjað aðra bíl og ljós og aðra eins hluti en þetta er bara ég, engann veginn að trúa þessu :)

Re: Ef að þetta er ekki grín þá er þetta magnað!!

PostPosted: Wed 22. Jul 2009 21:45
by hjolli
SteiniDJ wrote:Bara óvart, öll nóttin.

HAHahahah ég elska þettaaa!!