Page 1 of 1

Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 22:42
by elli
Sælir,

vitið þið hvað kostar að reka bíl í þýskalandi.
    Tryggingar
    Bifreiðagjöld
    ...etc

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 22:48
by Alpina
Ef þú ert með ... t.d. M70 BMW ,, á heils árs nr, þá eru gjöldin HEAVY sökum mengunargjalda osfrv,, + tryggingar einnig eflaust

((þetta er dæmi )))

diesel er góður pakki í alla staði

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 22:54
by elli
Alpina wrote:Ef þú ert með ... t.d. M70 BMW ,, á heils árs nr, þá eru gjöldin HEAVY sökum mengunargjalda osfrv,, + tryggingar einnig eflaust

((þetta er dæmi )))

diesel er góður pakki í alla staði

Nei eins og staðan er í dag með krónuna þá get ég tæpast rönnað M70 þarna úti :argh:

Er að skoða íbúðir úti fyrir haustið. Þær sem eru aðeins út úr eru auðvitað mikið ódýrari og þá var ég bara svona að velta fyrir mér hve mikið kostaði að reka bíl þarna.
Það er auðvitað skemtilegast að vera með innenstadt íbúð en þær kosta töluvert meira.
Annars er það nú meira bara draumórar að ætla sér að reka bíl þarna úti.... maður hefur lítið við hann að gera, maður á að vera að gera annað en að rúnta :wink:

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 23:09
by JOGA
En getur þú ekki tekið þennan 750i bíl sem þú ert með í undirskriftinni með út?
Mjög ódýrt að tryggja hér heima miðað við erlendis í augnablikinu vegna gengis. Ættir að geta verið með bílinn úti í dágóða stund án vandræða?

Eða kaupa einhvern ódýrari og nettari bíl hér heima til að taka með.

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 23:13
by elli
JOGA wrote:En getur þú ekki tekið þennan 750i bíl sem þú ert með í undirskriftinni með út?
Mjög ódýrt að tryggja hér heima miðað við erlendis í augnablikinu vegna gengis. Ættir að geta verið með bílinn úti í dágóða stund án vandræða?

Eða kaupa einhvern ódýrari og nettari bíl hér heima til að taka með.

Reyndar góður punktur... ég hafði velt því fyrir mér.
Það væri auðvitað eina vitið að taka með sér einhv. ódýrari út.... => sem eyðir minna :oops:

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 00:05
by JOGA
Finna bara einhvern grannan station, fylla hann af dótinu ykkar og spara þannig líka flutning á því. Svo bara með norrænu út.
Eitthvað sem er ekki of spennandi svo að þú getir nú einbeitt þér að náminu :thup:

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 00:52
by Jónas
Væri til í að fá þessar upplýsingar líka..

Segjum bara fyrir... t.d. 318i E36?

Hvernig er þetta á Bretlandseyjunum?

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 02:04
by zazou
Alpina wrote:Ef þú ert með ... t.d. M70 BMW ,, á heils árs nr, þá eru gjöldin HEAVY sökum mengunargjalda osfrv,, + tryggingar einnig eflaust

((þetta er dæmi )))

diesel er góður pakki í alla staði

Veistu hve langt aftur nær þessi mengunarskattanazismi? Þá á ég við hvort eftir að x aldri sé náð þá sé bara flatt gjald á alla bíla.

Re: Rekstrarkostnaður á ein Auto in Deutschland

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 16:52
by JOGA
Bretland er ágætt.
Ég fékk fluttan bónusinn frá VÍS heima og fékk fínt verð á tryggingu hér úti. Það hjálpar reyndar að ég er í Edinborg en ekki t.d. London þar sem tryggingar eru dýrari.

Trygging fer annars líka eftir tryggingarflokki bílsins. Minn er t.d. í flokki 16 en E36 M3 (3.2) er t.d. í flokki 20 og er mun dýrari í tryggingu. Ef þú færð ekki bónusinn fluttan geta tryggingar aftur á móti verið mjög dýrar. Líka gott að hafa í huga að mörg tryggingafélög eru mjög erfið varðandi breytingar á bílum. Ef það er á óskalistanum þá þarf að skoða það við val á tryggingafélagi.

Borgar bifreiðagjöld sem er ca. 180pund fyrir árið á eldri bílum. Ef bílinn er yngri en 2002 minnir mig þá borgar þú meira ef bílinn mengar mikið. T.d. eru flestir nýlegir M bílar með mjög háan svona skatt.

Svo er líka ágætt að muna að í flestum borgum getur maður þurft að borga aukalega fyrir bílastæði.