bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37884
Page 1 of 2

Author:  gunnar [ Tue 09. Jun 2009 16:43 ]
Post subject:  Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Langar aðeins að leita ráða hjá ykkur,

Er að skipuleggja steggjun og mig vantar nokkrar góðar hugmyndir. Núna hafa margir ykkur eflaust farið í steggjun, hvað var gert ?

Einnig langaði mig að athuga, er einhver hér inni með tengsl inn í paintball samfélagið? Langar að draga hópinn í paintball en við finnum ekki nógu sanngjarnt verð að okkar mati á manninn.

Endilega komið með eitthvað sniðugt ef ykkur dettur eitthvað í hug :thup:

Author:  gstuning [ Tue 09. Jun 2009 16:45 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Paintball og bjór er alveg geðveikt gott combo :)

:thup:

Author:  Zed III [ Tue 09. Jun 2009 16:47 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

er ekki að verða seinasti séns að skella sér á Goldfinger, eða er búið að loka ?

Bjór,
Paintball
Bjór,
Grillkjöt,
Bjór,
Naked girls,
Bjór
efc.

Rendar gaman líka ef það er aðgangur að bát að skella félaganum í búning og draga hann á slöngu.

Author:  Grétar G. [ Tue 09. Jun 2009 18:42 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Mjög skemmtileg stemming að fara í stúdíó.. létum bróðir minn syngja lag til konunnar sinnar þar sem við settum nafn hennar í staðinn fyrir Nína í samnefndulagi. Tók einnig Liverpool lagið og fleiri.

Svo vill ég líka benda á að M16 getur betur átt við í ólíkum hópi frekar en paintball. :)

Author:  Alpina [ Tue 09. Jun 2009 18:55 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Hvar kemst fólk í PAINTBALL á Rvik svæðinu

Author:  Aron Andrew [ Tue 09. Jun 2009 19:09 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Alpina wrote:
Hvar kemst fólk í PAINTBALL á Rvik svæðinu



Í skemmtigarðinum í Gufunesi

Author:  Alpina [ Tue 09. Jun 2009 19:17 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Andrew,, virkar þetta ..

þeas er þetta dýrt,,

GAMAN :P :P

Author:  Aron Andrew [ Tue 09. Jun 2009 19:19 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Alpina wrote:
Andrew,, virkar þetta ..

þeas er þetta dýrt,,

GAMAN :P :P


Þetta er bilað gaman!





Ef vinnan borgar :oops: :lol:

Author:  srr [ Tue 09. Jun 2009 19:25 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

gstuning wrote:
Paintball og bjór er alveg geðveikt gott combo :)

:thup:

Það var ekki í steggjuninni hjá mér, heldur miklu betra :thup:

Author:  Axel Jóhann [ Tue 09. Jun 2009 19:26 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Þetta er bilað gaman, en svoldið dýrt

Author:  Zed III [ Tue 09. Jun 2009 19:48 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

gleymdi reyndar einu sem hefur legið vel við, að leigja listflugvél til að hrista upp í maganum á félaganum

Author:  Jón Ragnar [ Tue 09. Jun 2009 20:06 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

M16 er öfga skemmtilegt

Author:  Stefan325i [ Tue 09. Jun 2009 20:48 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Ég fór í 3 stegjanir í fyrra og þeman var svona þokkalega svipuð í öllum þerra.

Paintball- Adrenalingarðurinn-Bjór-matur-bjór-áfengi-láta sveininn líta ílla út- asnaleg föt-djamm og góð skemmtun.

Ég skoðaði listflug fékk númer hja einhverjum nagla en það var frekar dýrt.

Ég hefði bætt inn í þetta nokkrir hringir með einhverjum öflugum á akstursbtautinni en í fyrra þá mátti ekki vera með farþega :roll:

Author:  Geirinn [ Tue 09. Jun 2009 22:18 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

Listflug - Björn Thoroddsen - 25k og mæta með SD memory card.... sýna svo í veislunni myndskeiðið þar sem dreng er að skíta á sig úr hræðslu :)

Klikkar ekki!

P.S. Munið bara að steggjun er ekki fyndin fyrir þá sem eru ekki að taka þátt a.k.a. fólk í Kringlunni etc... :)

Author:  Viggóhelgi [ Wed 10. Jun 2009 07:36 ]
Post subject:  Re: Steggjun - Paintball og aðrar hugmyndir

  • Listflug
  • paintball
  • jet-ski - setja hann á belg og kasta honum til
  • Adrenalín garðurinn.
  • fá geir ólafs til að syngja new york new york með honum - taka það upp
  • Klæða hann asnalega og láta líta illa út
  • strípi act á stað eða fá skutlu heim.
  • Láta hann fynna fyrir íþróttar áhugamálinu sínu... t.d. ef að hann er fótbolta áhugamaður eða spilari láta hann vera að asnast með bolta allan daginn - ef að hann skokkar mikið, láta hann skokka -

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/