bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37769 |
Page 1 of 2 |
Author: | Viggóhelgi [ Thu 04. Jun 2009 10:50 ] |
Post subject: | Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Quote: www.mbl.is Eiganda bíls kastað út og bílnum rænt Senda frétt Senda frétt ![]() Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk á þriðja tímanum í nótt tilkynningu um að bíl hefði verið rænt á Kársnesbraut í Kópavogi. Samkvæmt tilkynningunni höfðu menn tekið eiganda bílsins með valdi út úr bílnum og ekið á brott. Um er að ræða svartan BMW 325, árgerð 1994. Lögreglan segir ekki ljóst hvort bíleigandinn þekkti mennina, sem rændu bílnum en málið verði rannsakað í dag. Þá var bláum Skoda Fabia bíl stolið af bílastæði við Dalsmára í Kópavog undir miðnætti í gærkvöldi. Hafði þjófurinn fyrst brotist inn í búningsklefa í íþróttahúsinu Fífunni og stolið þaðan lyklum að bílnum. einhver af spjallinu ? |
Author: | gardara [ Thu 04. Jun 2009 10:52 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
![]() ![]() ![]() |
Author: | Viggóhelgi [ Thu 04. Jun 2009 10:59 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Grand theft auto Reykjavík City |
Author: | SteiniDJ [ Thu 04. Jun 2009 11:51 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Veit ekki með ykkur, en ég læsi alltaf bílnum mínum þegar ég er á ferðinni.. Það hefur borgað sig hingað til. |
Author: | íbbi_ [ Thu 04. Jun 2009 12:00 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
einnig var sama fíflið og barði aldraðan úrsmið um daginn tekinn fyrir innbrot þar sem hann braust inn og réðst á heimilisfólkið.. félagi minn kom að einum að rífa gps-tækið úr bílnum sínum.. það væri ekki að ósekju að taka upp gálga hengingar á torginu old school style |
Author: | SteiniDJ [ Thu 04. Jun 2009 12:54 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
The shocking truth! Svo þeir voru bara að 'sækja' bílinn sinn? Mjög gruggugt mál.. |
Author: | Grétar G. [ Thu 04. Jun 2009 13:23 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Það er nú eitthvað mikið þarna á bakvið held ég... |
Author: | Kristjan [ Thu 04. Jun 2009 13:52 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable. |
Author: | SteiniDJ [ Thu 04. Jun 2009 13:55 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Kristjan wrote: Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable. Sammála, þó að þetta hafi verið svolítið á gráu svæði. |
Author: | xripton [ Thu 04. Jun 2009 14:38 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Tók lögin í eigin hendur Tekið af mbl.is Quote: „Þeir snertu ekki strákinn," segir tvítugur karlmaður, sem lét vini sína endurheimta bifreið sem 16 ára piltur hafði keypt af honum. Eigandi bílsins segist ítrekað hafa reynt að láta kaupin ganga til baka eftir að í ljós kom að kaupandinn hafi hvorki haft aldur til að eiga slíkan bíl né aka honum. Fram kom á mbl.is í morgun að kært hafi verið til lögreglu að BMW-bíl hafi verið stolið í Kópavogi í nótt, eigandanum hent út úr bílnum og bíllinn síðan tekinn traustataki. Sagði lögregla að málið yrði rannsakað sem bílrán. Maður, sem segist vera skráður eigandi bílsins, segir aðra sögu af málsatvikum. Hann sagðist hafa uppgötvað að pilturinn hafði ekki aldur til að eiga bíl þegar hann ætlaði að skrá eigendaskiptin fyrir nokkrum mánuðum. Ekki tókst honum að hafa upp kaupandanum í kjölfarið og segir að þegar rukkanir fóru að berast fyrir hinum ýmsu gjöldum og sektum, sem hlóðust upp á bílinn í hans nafni, hafi vinir hans boðist til að mæla sér mót við handhafa bílsins og endurheimta hann. „Hefur ekki upp á sig að tala við lögregluna" En datt þeim ekki í hug að láta lögregluna annast málið? „Ég hef talað við lögregluna í svona máli og þeir gera ekki neitt ef maður tilkynnir bíl stolinn. Það var stolið bíl af félaga mínum og hann er ekki fundinn enn. Ég vissi að það myndi ekki hafa neitt upp á sig," sagði bíleigandinn, sem vildi ekki að nafn hans kæmi fram. Óttast hann ekki að drengurinn reyni sömu aðferð við að ná bílnum aftur? „Nei, bíllinn er á góðum stað, hann finnur hann ekki," sagði maðurinn og bætti við, að hann hygðist selja bílinn aftur ef hann fengi ekki þessar skuldir borgaðar. „Svona gera menn ekki" Málið er rannsakað sem rán hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Við erum með 17 ára dreng og föður hans hér í yfirheyrslu vegna þessa máls," sagði Gylfi Sigurðsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð 3 á höfuðborgarsvæðinu. Var ólögmætt að endurheimta bílinn með þessum hætti? „Já, það eru einhverjar deilur þarna í gangi og ljóst er að svona gera menn ekki, það má ekki hirða af fólki það sem þeir hafa selt," sagði Gylfi. Persónulega finnst mér þetta rétt ef hann er ekki búin að skipta um eigenda og er að fá á sig sektir ofl |
Author: | Vargur [ Thu 04. Jun 2009 23:33 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Kristjan wrote: Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable. Það er nú vanalegt að seljandinn sjái um eigendaskiptinn enda er það hans hagur að þau fari sem fyrst í gegn. Gaurinn hefur varla geta látið einhverjar sektir falla viljandi á fyrri eiganda, það geta bara verið stöðumælasektir og myndavélasektir og þær fara náttúrulega á skráðann eiganda og hans er feillinn að hafa ekki græjað eigendaskiptin. |
Author: | ///M [ Fri 05. Jun 2009 00:07 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Vargur wrote: Kristjan wrote: Ef þetta er rétt með að drengurinn hefur verið að láta sektir og annað falla á fyrri eiganda þá finnst mér þetta nú alveg justifiable. Það er nú vanalegt að seljandinn sjái um eigendaskiptinn enda er það hans hagur að þau fari sem fyrst í gegn. Gaurinn hefur varla geta látið einhverjar sektir falla viljandi á fyrri eiganda, það geta bara verið stöðumælasektir og myndavélasektir og þær fara náttúrulega á skráðann eiganda og hans er feillinn að hafa ekki græjað eigendaskiptin. Hann segist hafa reynt að gera eigandaskipti en það ekki gengið þar sem kaupandi hafði ekki aldur. Og eftir það hafi hann ekki getað náð í "kaupandann"... ![]() |
Author: | DABBI SIG [ Fri 05. Jun 2009 00:19 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
///M wrote: Hann segist hafa reynt að gera eigandaskipti en það ekki gengið þar sem kaupandi hafði ekki aldur. Og eftir það hafi hann ekki getað náð í "kaupandann"... ![]() En hvað... náði hann síðan mjög auðveldlega í "kaupandann" þegar hann ætlaði að endurheimta bílinn? |
Author: | ///M [ Fri 05. Jun 2009 00:30 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
DABBI SIG wrote: ///M wrote: Hann segist hafa reynt að gera eigandaskipti en það ekki gengið þar sem kaupandi hafði ekki aldur. Og eftir það hafi hann ekki getað náð í "kaupandann"... ![]() En hvað... náði hann síðan mjög auðveldlega í "kaupandann" þegar hann ætlaði að endurheimta bílinn? Það stendur ekkert um það í fréttinni |
Author: | gulli [ Fri 05. Jun 2009 00:47 ] |
Post subject: | Re: Ansans vitleysa alltaf í Borg óttans. |
Það er ábyggilega eitthvað meira þarna á bakvið sem kemur ekki framm varðandi þessi kaup... EN >>> ef það veit einhver hver þessi eigandi er, þá er alveg spurning að pósta því... gæti verið áhugaverðurbíll!!!!! |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |