bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Best að fara í skoðun?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37665
Page 1 of 2

Author:  Hreiðar [ Sat 30. May 2009 20:23 ]
Post subject:  Best að fara í skoðun?

Sælir, nú kemur að því að bíllinn minn þarf að fá skoðun, ég er bara að spá hvar er best að skoða hann? Ég er svo voðalega vitlaus með allt svona...
Eru einhverjir vægari en aðrir? :lol:

Author:  gunnar [ Sat 30. May 2009 20:37 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Hef iðulega farið í Aðalskoðun í Hfj, hafa reynst mér vel í gegnum tíðina að minnsta kosti.

Mæli ekki með frumherja upp á höfða.

Author:  Jónas [ Sat 30. May 2009 20:39 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Þú vilt hafa bílinn í lagi og ferð því á stöð þar sem að bílinn er skoðaður,, virkilega góðir og vandvirkir menn í skeifunni.

Author:  gardara [ Sat 30. May 2009 20:41 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Ef þú villt bara skoðunarmiða þá er það garðabærinn

Author:  sh4rk [ Sat 30. May 2009 20:45 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Þeir uppí höfða eru fínir en ekki niðrí Klettagörðum þeir virðast ekki nenna skoða og setja bara grænan

Author:  Einsii [ Sat 30. May 2009 21:35 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Hreizi wrote:
Sælir, nú kemur að því að bíllinn minn þarf að fá skoðun, ég er bara að spá hvar er best að skoða hann? Ég er svo voðalega vitlaus með allt svona...
Eru einhverjir vægari en aðrir? :lol:

Ertu með dökkar rúður eða eitthvað þannig sem þú vilt að þeir horfi framhjá, eða ertu nískur og er alveg sama á meðan hjólabúnaður er að liðast í sundur svo lengi sem þú færð nýjann miða á hverju ári?

Author:  Hreiðar [ Sat 30. May 2009 22:05 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Einsii wrote:
Hreizi wrote:
Sælir, nú kemur að því að bíllinn minn þarf að fá skoðun, ég er bara að spá hvar er best að skoða hann? Ég er svo voðalega vitlaus með allt svona...
Eru einhverjir vægari en aðrir? :lol:

Ertu með dökkar rúður eða eitthvað þannig sem þú vilt að þeir horfi framhjá, eða ertu nískur og er alveg sama á meðan hjólabúnaður er að liðast í sundur svo lengi sem þú færð nýjann miða á hverju ári?


Hvorugt, málið er bara að pústið er smá laust undir og eitt númeraljósið er farið, ég er samt að fara að fá sendingu af því bara á næstunni. ;) Svo er Mazi að græja fyrir mig dökk afturljós, eða smá smókuð, þannig bara að gá hvort maður ætti þá að bíða að henda þeim á og fara með hann í skoðun á appelsínugulu ljósunum, held að það sé sniðugast, en annars er hjólabúnaðurinn minn í 100% lagi og glænýir klossar komnir allan hringinn (í gær), þannig ég er sáttur, bara hef aldrei farið með bíl í skoðun. :oops:

Author:  Hreiðar [ Sat 30. May 2009 22:06 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Jónas wrote:
Þú vilt hafa bílinn í lagi og ferð því á stöð þar sem að bílinn er skoðaður,, virkilega góðir og vandvirkir menn í skeifunni.


Ertu að meina Aðalskoðun í skeifunni? Spá í að fara þangað :)

Author:  IngóJP [ Sun 31. May 2009 01:47 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Ég fer alltaf með mína bíla í klettagarða alltaf solid þar 8)

Kannski útaf bróðir hans pabba skoðar fyrir mig

Author:  Geirinn [ Sun 31. May 2009 01:49 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

"Hvar get ég komist upp með það að vera með bilaða hluti?"

Author:  sh4rk [ Sun 31. May 2009 02:02 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Ég mæli ekki með þeim í Klettagörðum eftir að þeir skoðuðu E23 bílinn hjá mér eða skoðuðu henn ekki límdu bara grænan á hann nánst strax og sögðu að pústið væri ónýtt sem var ekki, hafði látið þá í bjb smíða árinu áður þannig að það var í fínu lagi

Author:  eiddz [ Sun 31. May 2009 04:29 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

gardara wrote:
Ef þú villt bara skoðunarmiða þá er það garðabærinn


Ég hef alltaf farið þangað og það er bara fínt þar.. ! ef það er eitthvað dýrt að láta laga eithvað þá segir hann manni frá því en setur ekki athugasemd og svoleiðis.. hann sagði td. við mig að það þyrfti að skipta um púst hjá mér en sagði svo við mig að það væri svo dýrt og hann strikaði það bara út á skoðunablaðinu..

Author:  Zed III [ Tue 02. Jun 2009 19:32 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

sh4rk wrote:
Ég mæli ekki með þeim í Klettagörðum eftir að þeir skoðuðu E23 bílinn hjá mér eða skoðuðu henn ekki límdu bara grænan á hann nánst strax og sögðu að pústið væri ónýtt sem var ekki, hafði látið þá í bjb smíða árinu áður þannig að það var í fínu lagi


Þeir eru óendanlega súrir þarna. Ég fékk næstum því endurskoðun því þokuljósatengið fyrir kerruna var ekki tip topp, allt annað virkaði flott.

Author:  slapi [ Tue 02. Jun 2009 20:11 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

Zed III wrote:
sh4rk wrote:
Ég mæli ekki með þeim í Klettagörðum eftir að þeir skoðuðu E23 bílinn hjá mér eða skoðuðu henn ekki límdu bara grænan á hann nánst strax og sögðu að pústið væri ónýtt sem var ekki, hafði látið þá í bjb smíða árinu áður þannig að það var í fínu lagi


Þeir eru óendanlega súrir þarna. Ég fékk næstum því endurskoðun því þokuljósatengið fyrir kerruna var ekki tip topp, allt annað virkaði flott.


Það er ekkert þeirra að ákveða hvort þú færð endurskoðun eða ekki.
Ef þú skoðar skoðunarvottorðið vel sérðu þetta "punktakerfi" sem að er farið eftir.


Ef að er sett útá eitthvað eiga menn ekki að vera að röfla yfir því að skoðunarmaðurinn hafi verið harður á þeim.

Mín persónulega skoðun er sú að sú aðalskoðun sem er hérna er enganveginn nægilega hörð og finnst mér vanta uppá eftirlit með þessum skoðunarstöðum eins og voru úta seltjarnanesi þar sem var bara einn dúddi sem enginn fylgdist með.

Á mínum stutta ferli í bílaviðgerðum hefur maður séð stóran skara af bílum sem eru mjög nýlega komnir úr skoðun sem vægast sagt teljast stórhættulegir. Ónýtir bremsudiskar , bremsuleysi , spindlar , stýrisendar , styrkleikamissir , höggdeyfar. Allt hlutir sem þurfa að vera í lagi. Eitt Skipti var ég kominn með viðgerðarkostnað á svona basic hlutir , bremsur , styrkleikamissir , dempara osfrv uppá 250þús og bíllinn hafði tveimur mánuðum áður runnið athugasemdalaust í gegnum skoðun.

Ég er ekki að segja að við þurfum að ganga eins langt og TUV kerfið er með þýskaland þó virkilega megum við taka þá að hluta til fyrirmyndar.

Til að undirstrika þessa vitleysu sem hefur gengið á í þessum málum á Íslandi breyttu þeir síðastliðin áramót skoðunarreglum það er að nýjir bílar þurfa ekki að koma í skoðun fyrr en að fjórum árum liðnum og síðan tvö ár og síðan aftur tvö ár.
Maður sér það í bílaviðgerðum í dag að nýjir bílar í dag eru ekki eins og nýjir bílar fyrir 10 árum efnisvalið í jafnvel dýrustu bílum er orðið lélegra og bitnar það verulega á slithlutum svosem spindlum og fóðringum í undirvagni.
Því getur það talist fáravitleysa að bíll ,,,,, eftir 8 ár hafi einugis tvisvar gengið til aðalskoðunar.


Ísland lengi lifi

Author:  Astijons [ Tue 02. Jun 2009 21:22 ]
Post subject:  Re: Best að fara í skoðun?

ég mun ekki kjósa þig þegar þú ferð í framboð...
:lol:

ég fer samt ekkert með bilinn minn í skoðunn ... of dýrt þarf að borga eitthverja sekt og blabla... ég hendi honum bara þegar löggann segir eitthvað...

þetta nýja kerfi hjá þeim var allgjört fail finnst mér...


smá off topic...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/