bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 12. Jun 2025 09:16

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 32 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Thu 07. May 2009 12:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Ég setti þetta einnig inn á vaktin.is en langar einnig að spyrja hér þar sem ég veit að hér eru miklir viskubrunnar. ;)

Mig vantar smá ráðleggingar varðandi uppfærslu á alhliða heimilistölvu, borðtölvu, sem notuð er til allra mögulegra hluta, m.a. hljóðvinnslu, ritvinnslu, vefráps og svo framvegis, hún er ekki mikið notuð til leikjaspilunar en best samt sem áður gott að hafa möguleikann á því.

Þetta kemur til vegna þess að núverandi tölva er að gefa upp öndina, enda vél frá 2001, Fujitsu Siemens vél, hún fer ekki í gegnum POST, engin ljós á lyklaborði og ekkert kemur upp á skjá, bara ótal fjöldi bípa, líklegast skjákortið (AGP kort) þar sem þegar þetta gerðist fyrst þá var viftan á skjákortinu svo gott sem föst, hreinsaði hana upp og snerist hún þá og tölvan hrökk í gang en dugði aðeins í nokkur skipti, viftan hefur væntanlega verið svona um einhvern tíma. Finnst varla taka því að fara að leita að nýju skjákorti þar sem vélin er nú komin á aldur.

Ég er að velta fyrir mér hvort það borgi sig að nota tölvukassann á gömlu vélinni eður ei, hef verið að skoða aðeins kassatilboð sem og önnur uppfærslutilboð en geri mér ekki alveg nógu vel grein fyrir hvar bestu kaupin séu og hvort borgi sig að kaupa nýjan kassa þar sem þar fylgja yfirleitt DVD skrifarar og harðir diskar, en ég er með 2 nú þegar í gömlu vélinni sem ég get notað áfram. Þó set ég ekki fyrir mig þannig að það fylgi skrifari og harður diskur með tilboðunum. Alltaf hægt að nýta meira pláss. :D

Það sem ég tel að hægt væri að nýta úr gömlu vélinni:
Skjár
Lyklaborð og mús
Harðir diskar
DVD skrifari
Þráðlaust netkort

Líklegast ekki hægt að nýta en þó kannski möguleiki:
Jafnvel aflgjafa (ca. 3 ára gamall, 300 wött en þá líklegast of lítill)
1 GB DDR400 vinnsluminniskubbur rúmlega ársgamall

Þar sem tölvan er notuð í hljóðvinnslu er best að hún hafi 2 GB í vinnsluminni en það er nánast eina skilyrðið fyrir utan að reyna að fá sem mest fyrir peninginn. Veit ekki alveg nákvæmlega hvað þetta má kosta en er að hugsa að þetta fari helst ekki mikið yfir 50.000 kr. en eins og ég segi þá er betra að þetta kosti sem minnst, þó vil ég frekar kaupa aðeins dýrari pakka sem þá dugar lengur en þarf enga ofurvél.

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Last edited by Jss on Fri 29. May 2009 22:42, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 12:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Ég myndi kaupa nýjan harðan disk, þeir eru ekki það dýrir og með tímanum skemmast gömlu diskarnir.

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 12:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Farðu bara niður í Tölvutek og spjallaðu við Danna Djöful.

Hirtu skjáinn, dvd skrifarann, netkortið, músina og lyklaborðið - verslaðu rest nýtt.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 13:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
bimmer wrote:
Farðu bara niður í Tölvutek og spjallaðu við Danna Djöful.

Hirtu skjáinn, dvd skrifarann, netkortið, músina og lyklaborðið - verslaðu rest nýtt.


Sammála þessu.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 13:58 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Ekki fara beint í e-h ákveðna búð, sendu öllum þessu helstu póst (Tölvutek, Tölvutækni, Tölvuvirkni, Att, Kísildal) póst þar sem þú segir hvað þú vilt, til hvers og budget.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 15:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
bimmer wrote:
Farðu bara niður í Tölvutek og spjallaðu við Danna Djöful.

Hirtu skjáinn, dvd skrifarann, netkortið, músina og lyklaborðið - verslaðu rest nýtt.


Myndi nú kanna aðrar búðir áður en verslað er við Tölvutek, þegar ég verslaði mér íhluti í mína vél þá voru Tölvutek áberandi dýrari fannst mér heldur en att og tölvuvirkni.. Skoðaðu verðin allavega vel áður en þú kaupir..

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 15:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Jónas wrote:
Ekki fara beint í e-h ákveðna búð, sendu öllum þessu helstu póst (Tölvutek, Tölvutækni, Tölvuvirkni, Att, Kísildal) póst þar sem þú segir hvað þú vilt, til hvers og budget.


gunnar wrote:
bimmer wrote:
Farðu bara niður í Tölvutek og spjallaðu við Danna Djöful.

Hirtu skjáinn, dvd skrifarann, netkortið, músina og lyklaborðið - verslaðu rest nýtt.


Myndi nú kanna aðrar búðir áður en verslað er við Tölvutek, þegar ég verslaði mér íhluti í mína vél þá voru Tölvutek áberandi dýrari fannst mér heldur en att og tölvuvirkni.. Skoðaðu verðin allavega vel áður en þú kaupir..


Ég er einmitt að athuga þetta hjá sem flestum, er líka að reyna að finna út hvað "þarf" í tölvuna og hvað borgar sig að gera. Reyna að sleppa við flöskuhálsa og gera seinni tíma uppfærslur auðveldari og hagstæðari.

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 16:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
bimmer wrote:
Farðu bara niður í Tölvutek og spjallaðu við Danna Djöful.

Hirtu skjáinn, dvd skrifarann, netkortið, músina og lyklaborðið - verslaðu rest nýtt.


Sammála.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 16:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Jss wrote:
Ég er einmitt að athuga þetta hjá sem flestum, er líka að reyna að finna út hvað "þarf" í tölvuna og hvað borgar sig að gera. Reyna að sleppa við flöskuhálsa og gera seinni tíma uppfærslur auðveldari og hagstæðari.


Þetta eru góðar og gildar pælingar en staðreyndin er að þú munt í allra fæstum tilvikum "uppfæra" hana seinna,
það sem verður nýtt þá passar að öllum líkindum ekki => kaupir nýtt mb/cpu/ram/psu combo.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 16:45 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sun 03. Oct 2004 19:08
Posts: 645
Location: Akureyri
Eins og verðin eru núna þá held ég að þú fáir aldrei þokkalega tölvu fyrir 50þús. Bara verð á meðal örrgjörva er um 20-25k.
Væri frekar að fylgjast með "Til sölu" dálknum á vaktinni og reyna detta niður á góða notaða tölvu.


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 07. May 2009 19:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Freyr Gauti wrote:
Eins og verðin eru núna þá held ég að þú fáir aldrei þokkalega tölvu fyrir 50þús. Bara verð á meðal örrgjörva er um 20-25k.
Væri frekar að fylgjast með "Til sölu" dálknum á vaktinni og reyna detta niður á góða notaða tölvu.


Er einmitt að sjá það eftir að hafa skoðað þetta í dag en ég þakka öllum fyrir góð ráð.

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 08. May 2009 02:18 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Skjákort - PCI-E - NVIDIA - Sparkle Geforce 8400GS 512 MB DDR2
7.860


Harður Diskur - 3.5" - S-ATA2 - Samsung Spinpoint HD501LJ 500GB 7200

10.860


Minni - DDR2 Minni 1066 MHz - OCZ 4GB DDR2 4096MB 2x2048

9.860

Móðurborð - Intel - 775 - ASRock S775 4Coredual-VSTA

14.860


Örgjörvi - LGA775 - Intel Pentium E5200 2.5GHz Dual Core
12.860


Kassi - 500W JS - Gigabyte X6 turnkassi, svartur
14.860

71160 Krónur

Tölvuvirkni
2 ára ábyrgð og solid gaurar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 08. May 2009 08:15 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
E5200: 11.950 (@tt.is)
Gigabyte P43-ES3G: 15900 (Tölvutækni)
Supertalent 4gb DDR2 800: 6.950 (@tt.is)
Ace Core IV m/ 500w PSU: 10.950 (@tt.is)
500gb Samsung (SATA): 9.450 (@tt.is)
MSI ATI Radeo 4670 : 14.950 (@tt.is)

Samtals 70.150 - Setur þetta svo saman sjálfur, það er pís off keik

Edit: Betri vél en Icedev er með (fyrir utan minnið, en þú tekur ekki eftir 800 vs 1066)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 08. May 2009 09:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Það er nánast ekki hægt að kaupa tölvu í dag sem getur ekki gert allt sem þú þarft að gera. Þannig að ég myndi bara finna mér eitthvað solid fyrir lítinn pening. T.d. ekki kaupa of mikið diskpláss, betra að kaupa þegar þú þarft það. Ekki kaupa of mikið minni því að mjög líklega getur stýrikerfið ekki notað það allt. Ekki kaupa eitthvað mega súper motherfucking skjákort því að low budged GeForce 8xxx er bara helvíti nógu gott fyrir næstum allt.

Ég keypti mér vél um daginn og tók mega bestunarpakka á þetta, en gafst svo upp. Fór og keypti mér HP vél, setti í samband og í gang, breytti úr frönsku í ensku og var bara vel sáttur.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 08. May 2009 13:04 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
fart wrote:
Það er nánast ekki hægt að kaupa tölvu í dag sem getur ekki gert allt sem þú þarft að gera. Þannig að ég myndi bara finna mér eitthvað solid fyrir lítinn pening. T.d. ekki kaupa of mikið diskpláss, betra að kaupa þegar þú þarft það. Ekki kaupa of mikið minni því að mjög líklega getur stýrikerfið ekki notað það allt. Ekki kaupa eitthvað mega súper motherfucking skjákort því að low budged GeForce 8xxx er bara helvíti nógu gott fyrir næstum allt.

Ég keypti mér vél um daginn og tók mega bestunarpakka á þetta, en gafst svo upp. Fór og keypti mér HP vél, setti í samband og í gang, breytti úr frönsku í ensku og var bara vel sáttur.

32 bita stýrikerfin hljóta að detta uppfyrir fljótlega.. ég er búinn að vera að nota Win7 64bit í nokkra mánuði núna og er bara al sáttur, Sé loksins öll 4 gígin í ram en ekki bara 3,5 :D


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 32 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group