bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
OT: Toyota Corolla 94. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37632 |
Page 1 of 1 |
Author: | Stanky [ Fri 29. May 2009 11:10 ] |
Post subject: | OT: Toyota Corolla 94. |
Sælir. Vildi aðeins pósta einni spurningu - margir hérna inni sem eru með gríðarlega visku varðandi bilanagreiningar. En svo er málið með vexti að ég er með Toyota Corollu 94 árgerð. Þegar ég er að keyra í 1, 2 eða 3 gír og er kominn í ca 2500 snúninga, þá, en ekki alltaf, byrjar bíllinn að hökta og hristast alveg á fullu. Þ.e. hann höktir svona eins og hann sé að kokast. Svo stundum, en ekki alltaf, er ég að keyra og bíllinn virðist fáránlega máttlaus á milli 2000-3000snúninga, en um leið og hann fer í svona 3200-3500snúninga þá virkar hann sem eðlilegur. Við erum að tala um það mikið máttleysi að hann nær ekki einusinni að hraða sér. Hvað gæti valdið þessu dóti? Þetta er alveg verulega pirrandi. |
Author: | arnibjorn [ Fri 29. May 2009 11:14 ] |
Post subject: | Re: OT: Toyota Corolla 94. |
Það er ekki nóg að setja OT fyrir framan subject til að þetta eigi heima í Quote: Tæknilegar umræður Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW. En vonandi að menn geti hjálpað þér þó svo að þetta sé í OT ![]() |
Author: | Stanky [ Fri 29. May 2009 11:15 ] |
Post subject: | Re: OT: Toyota Corolla 94. |
arnibjorn wrote: Það er ekki nóg að setja OT fyrir framan subject til að þetta eigi heima í Quote: Tæknilegar umræður Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW. En vonandi að menn geti hjálpað þér þó svo að þetta sé í OT ![]() Þessvegna merkti ég þetta OT.... En það má alveg eyða þessu ef þetta fer fyrir brjóstið á fólki. |
Author: | arnibjorn [ Fri 29. May 2009 11:22 ] |
Post subject: | Re: OT: Toyota Corolla 94. |
Stanky wrote: arnibjorn wrote: Það er ekki nóg að setja OT fyrir framan subject til að þetta eigi heima í Quote: Tæknilegar umræður Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW. En vonandi að menn geti hjálpað þér þó svo að þetta sé í OT ![]() Þessvegna merkti ég þetta OT.... En það má alveg eyða þessu ef þetta fer fyrir brjóstið á fólki. Nei ég færði þetta bara á réttan stað. Af hverju ætti ég að eyða þessu ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Fri 29. May 2009 11:23 ] |
Post subject: | Re: OT: Toyota Corolla 94. |
Kveikjan? Kertaþræðir? |
Author: | finnbogi [ Fri 29. May 2009 11:33 ] |
Post subject: | Re: OT: Toyota Corolla 94. |
Thrullerinn wrote: Kveikjan? Kertaþræðir? góður punktur jafnvel kerti blaut eða léleg |
Author: | TótiGunn [ Fri 29. May 2009 16:53 ] |
Post subject: | Re: OT: Toyota Corolla 94. |
Sama vandamál var hjá mér fyrir stuttu, tók svo eftir því að einn kertaþráðurinn var ekki í sambandi ![]() annars gæti þetta verið drulla í bensíntanki eða eitthvað álíka. |
Author: | sindrib [ Fri 29. May 2009 20:36 ] |
Post subject: | Re: OT: Toyota Corolla 94. |
gæti verið að innvolsið úr hvarfakútnum hafi losnað, getur tjekkað á því með því að berja í hann og ef það heyrast skruðningar þá er hann ónýtur ef ekki þá er þetta eitthvað annað |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |