bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37629 |
Page 1 of 2 |
Author: | Mánisnær [ Fri 29. May 2009 02:20 ] |
Post subject: | Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Jæja strákar, ég er er að læra tækniteiknun eins og er og stefni á arkitektúr eftir það, en ég hef verið að hugsa um að fara í byggingatæknifræði fyrst og svo í arkitektúr, þar sem arkitektinn styttist mjög eftir að hafa lært byggingatæknifræðinginn. Eða er það kannski bara waist of time, hvað fynnst ykkur? Hvað myndir ÞÚ gera/læra? Og þið sem hafið kynnt ykkur þetta, hvert færuði til þess að læra ? Major off topic ég veit, en ég ákvað samt að spurja um þetta hér þar sem greindarvísitalan hérna er hærri hér en á þeim flestum sem ég veit um og ég veit að ég fæ greinargóð svör ![]() Kv. |
Author: | gardara [ Fri 29. May 2009 02:45 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Alpina wrote: John Rogers wrote: langar mega í arkitektinn ![]() Algert offramboð af slíku fólki |
Author: | Mánisnær [ Fri 29. May 2009 03:10 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Jájá ég var búinn að lesa þetta. |
Author: | IceDev [ Fri 29. May 2009 04:30 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Held að það væri persónulegra sniðugast að taka byggingartæknifræði upp á nánari atvinnumöguleika, aftur á móti er einnig nóg af þeim hér á landi sérstaklega í ljósi þess að offramboð af húsnæði er í raun og veru búið að gera þessa stétt "atvinnulausa" Sjálfur myndi ég taka byggingartæknifræði upp á starfsmöguleika og svo dúlla mér í arkítektanum sem hobbý/aukavinna Svo er náttúrulega spurning hvort að maður myndi læra þetta fag á annað borð ef maður hefði í hyggju að búa á Íslandi.... ![]() |
Author: | gstuning [ Fri 29. May 2009 09:27 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Held að það sé best að fara tala við námsráðgjafa eða prófessora í hverri grein fyrir sig. Þeir ættu að geta útlistað fyrir þér hvað það er sem fólk sem útskrifast fer í raun að gera. Og það er aldrei einlistað hvaða vinnu fólk fer í. Þetta er t,d ótrúlega flókið á næsta ári hjá mér. Get valið að stefna í ákveðnar áttir. Areodynamics Chassis engineering Advanced powertrain Advanced Material Science Computational Fluid Dynamics og svo framvegis. Það getur verið að það séu svona valmöguleikar í þínu námi sem valda þess að þú getur betur ákveðið sjálfur hvar þú endar þegar námið er lokið. |
Author: | Kristjan [ Fri 29. May 2009 12:41 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
væri ekki ráðlegast fyrir þig að fara í lurbodynamic compureversontation? |
Author: | gstuning [ Fri 29. May 2009 12:48 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Næsta árs verkefni sem líklega verður lag less turbo kerfi. gæti að koma manni inn hjá Holset, Borg Warner eða eitthvað svoleiðis. En ég vil ekki festa mig neitt ákveðið enn , enn tvö ár í masternum og þá kannski verður maður með breyttar áherslur. |
Author: | Baldur Th [ Fri 29. May 2009 13:19 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Ef þú tekur byggingarverkfræði þá er styttirðu einnig byggingatæknifræðinámið er þú hefur áhuga á því. Þetta er bara svo stórt svið sem um ræðir. Það er hægt að fara mjög margar leiðir frá tækniteiknun en Persónulega myndi ég stefna á verkfræðinámið og útfrá því ákveðna sérhæfingu. En það er ekki langt bil á milli þessara þriggja, (byggingaverkfræði-tæknigræði og arkitektúrs) Alltaf hægt að bæta við sig námi til að fá réttindi hvers og eins. Myndi tala við námsráðgjafa ef þú ert ekki ákveðinn hvert stefnir. Og getur út frá því miðað stefnu þína. Um að gera að reyna opna eins margar dyr og þú getur. Þeimur fleirri dyr sem þú opnar þeim mun fleirri möguleikar á mismunandi starfsháttum en ekki bara einhæfing. |
Author: | dabbiso0 [ Fri 29. May 2009 13:38 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Eg ætlaði að fara i Iðnaðarverkfræðina, en hætti við og sotti um i Tölvunarfræði i staðinn. Astæðan fyrir því var að eg er 100% kominn með vinnu ef að eg fer i það. Og hef haft brennandi ahuga a þvi i mörg ar. M.a tekið þatt i nokkrum forritunarkeppnum og unnið við að debugga hugbunað a þrounarstigi Siðan er bara að akveða hvort að maður tekur masterinn eður ei. Bara tvö ar i viðbot. |
Author: | bimmer [ Fri 29. May 2009 13:42 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Eitt sem ágætt er að hugsa til er að verkfræði opnar alveg ótrúlega margar dyr. Það þykir alveg eðlilegt að ráða verkfræðinga í hin ýmsu störf þó þau tengist ekki verkfræðinni beint. Þetta á miklu síður við aðrar námsgreinar. |
Author: | krullih [ Fri 29. May 2009 13:45 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Finnst alltaf hálf sorglegt þegar menn velja námið sitt útfrá atvinnu sem bíður / verður. Vil mennta mig í því sem ég hef áhuga fyrir og vill eyða næstu...10, 20, 30 árum í að vinna við. Og það verður ekki fyrir þessa vinnu sem manni var lofað, eða afþví að 'username' á kraftinum sagði manni frá ![]() Farðu eins og fram hefur komið til námsráðgjafa og skoðaðu allar stefnur, og taktu svo stefnu út frá dyrum OG áhuga. mbk Jonni sem ætlar í viðskiptafræði.... og ekki vegna atvinnumöguleika ![]() |
Author: | dabbiso0 [ Fri 29. May 2009 14:00 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
I þessum töluðu orðum Quote: Háskólinn hefur samþykkt umsókn þína um skólavist. Umsóknin tekur gildi við greiðslu skrásetningargjalds innan þeirra tímamarka sem fram koma á greiðsluseðli. Gleði Gleði ![]() |
Author: | krullih [ Fri 29. May 2009 14:21 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
dabbiso0 wrote: I þessum töluðu orðum Quote: Háskólinn hefur samþykkt umsókn þína um skólavist. Umsóknin tekur gildi við greiðslu skrásetningargjalds innan þeirra tímamarka sem fram koma á greiðsluseðli. Gleði Gleði ![]() Ekki amalegt að geta notað atvinnuleysisbæturnar í háskólagjöld! ![]() |
Author: | JonHrafn [ Fri 29. May 2009 15:03 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
Verkfræðin opnar þér án efa fleiri dyr en hin tvö fögin. Erfiðari en tæknifræðin, meiri stærðfræði og eðlisfræði. En í grunnin þá læra verkfræðingar að nota raungreinar svo sem stærðfræði, eðlisfræði ...... til að leysa vandamál, þess vegna vinna verkfræðingar út um allt :þ |
Author: | dabbiso0 [ Fri 29. May 2009 18:44 ] |
Post subject: | Re: Byggingaverkfræði, arkitektúr, byggingartæknifræði??? |
krullih wrote: dabbiso0 wrote: I þessum töluðu orðum Quote: Háskólinn hefur samþykkt umsókn þína um skólavist. Umsóknin tekur gildi við greiðslu skrásetningargjalds innan þeirra tímamarka sem fram koma á greiðsluseðli. Gleði Gleði ![]() Ekki amalegt að geta notað atvinnuleysisbæturnar í háskólagjöld! ![]() Jaja, finnt bara.. Hvi segiru svo? |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |