bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=37613
Page 1 of 2

Author:  fart [ Thu 28. May 2009 14:18 ]
Post subject:  BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Sælir félagar.

Vinur minn lenti í þeirri óheppilegu reynslu að vélin fór hjá honum. Þetta er 120d 4ra ára keyrður 60.000km með fulla þjónustu.

Svo virðist sem það sé "þekkt" vandamál með ákveðnar árgerðir af þessum diesel mótorum, sem er reyndar búið að laga eftir 2006.

Í inntakinu er eitthvað sem líkist throttle butterfly og er kallað "swirl flaps". Tilgangur þeirra er að breyta afstöðu inntaksmanifoldsins líklega útaf eyðslu/afli.

http://www.pmwltd.co.uk/swirl_flaps.pdf ... _flaps.pdf

Það sem gerist, fyrirvaralaust, og án þess að menn geti brugðist við, er að þessi fiðrildi brotna af og detta inn í mótorinn. Fiðrildin sjálf eru úr plasti en stilkarnir sem þau standa á eru úr járni (imagine that). Í dag eru stilkarnir þykkari og brotna því ekki af, eða ættu ekki að gera það.

BMW veit af þessu vandamáli en hefur ekki séð ástæðu til þess að bregast við og innkalla þessi manifold. Félagi minn hefur fengið synjun frá BMW um bætur, en það er samt ekki fullreynt.

Ég skora því á þá sem eiga Diesel BMW's að rannsaka þetta mál, komast að því hvort að þeir eru með bíl sem er líklegur til að lenda í þessu, og hreinlega fjarlægja þessi fiðrildi, nú eða kaupa nýrri manifold.

Author:  ValliFudd [ Thu 28. May 2009 14:28 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Mig minnir að bróðir minn hafi talað um þetta varðandi sinn 320d.. Hvort hann skipti þessu út eða hreinlega fjarlægði man ég ekki.

Author:  Gunnar Þór [ Thu 28. May 2009 15:22 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Ég hef nú einmitt verið að lesa lýðnetið spjaldanna á milli um þetta swirlflaps dæmi - hef mikið verið að velta fyrir mér að láta rífa þetta úr hjá mér.

Einhver hérna sem hefur látið fjarlægja þetta?

Author:  Bjarki [ Thu 28. May 2009 16:59 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Þetta er hræðilegt, í Benz er þetta allt úr plasti og stundum fara spjöldin og þá bara hverfa þau og brenna út án frekari vandræða, slæmt en ekkert alslæmt.
Ég ætlaði að taka svona úr bíl en eftir að hafa skoðað einhver skynjaramál þá hætti ég við. Man ekki alveg hvað það var en það átti að koma villa á eitthvað.
Mér finnst að BMW ætti að framleiða upgrade'uð spjöld.
Það væri áhugavert að athuga hvort það hafi verið gert eða hvort spjöld úr nýrri bílum passi í gamlar soggreinar.

Author:  demi [ Thu 28. May 2009 17:01 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

eða hreinlega gá hvort það væri hægt að fá þetta úr plasti og ekki frá BMW heldur öðrum framleiðanda.

Author:  JonHrafn [ Thu 28. May 2009 18:15 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

:shock:

Author:  gunnar [ Thu 28. May 2009 18:52 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Nú er ég algjör "outsider" í þessum BMW dísel vélum. En er það bara ég eða finnst mér vera svolítið vesen í kringum þessa mótora?

Túrbínubilanir, alls konar skynjara og sótstíflur hér og þar ofl

Menn virðast vera í töluverðu basli með þessa bíla suma.

Ég alla vega fyrir mitt leyti er ekkert spenntur fyrir að eignast BMW dísel á næstunni :shock:

Author:  íbbi_ [ Thu 28. May 2009 19:20 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Enn ein vandræðasagan af bmw diesel

Author:  JonHrafn [ Thu 28. May 2009 19:27 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Og hvað, á maður að ná sér í topplyklasett og fara skrúfa og athuga statusinn á þessu drasli? 11/2004 320d keyrður 130þús.

Author:  jonthor [ Fri 29. May 2009 09:01 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Já, svipað vandamál en ekki næstum jafn alvarlegt er að allar vatnsdælur úr 323/328 vélunum eru úr plasti og fara alltaf á milli 100-150k. Gallinn er að ef þessu er leyft að brotna geta splaststykki fest inni í kælivegunum og blokkað kælinum.

Skita með svona hönnunarklúður, sérstaklega í svona svakalega nýjum bíl eins og 2,0d 2004.

Author:  JonHrafn [ Fri 29. May 2009 19:29 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Er ekki málið að setja bara gengjulím með þessum 2 skrúfum sem halda flappanum?

Author:  ///MR HUNG [ Fri 29. May 2009 19:33 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

jonthor wrote:
Já, svipað vandamál en ekki næstum jafn alvarlegt er að allar vatnsdælur úr 323/328 vélunum eru úr plasti og fara alltaf á milli 100-150k. Gallinn er að ef þessu er leyft að brotna geta splaststykki fest inni í kælivegunum og blokkað kælinum.

Skita með svona hönnunarklúður, sérstaklega í svona svakalega nýjum bíl eins og 2,0d 2004.
2004 er ekki svakalega nýr bíll. :lol:

Author:  ömmudriver [ Fri 29. May 2009 22:15 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Ég las nú um þetta í E46 Buyers guide grein í eitthverju BMW blaðinu fyrir tveim árum og þóttist nú hafa varað við þessu hérna inná við litlar undirtektir :roll:

En þetta er víst aðallega í litlu díselvélunum ef ég man rétt ekki stóru eins og 3l, en þar var einmitt sér grein um þetta vandamál með reynslusögu og þar var bíllinn í ábyrgð eða nýdottin úr ábyrgð og hann fékk ekkert bætt frá BMW :|

Author:  Alpina [ Fri 29. May 2009 22:50 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Þetta er allavega ljóta hönnunin

Author:  Bjarki [ Sat 30. May 2009 23:48 ]
Post subject:  Re: BMW dísel er drasl.. ef þú átt RANGA árgerð

Þetta er alveg í 3.0 líka, en misjafnt - stundum stundum ekki.
Mig minnir að þetta auki flatamálið undir togkúrfunni, eykur togið á lágum snúning ef mig brestur ekki minni.
En ekki góð tilfinning að vera með slíka tímasprengju í húddinu....
Það þyrfti að finna e-a solid lausn á þessu máli því það er mjög fljótlegt að rífa þessa blessuðu soggrein af.

SAMT BMW DIESEL ER DRASL.....það er mjög gaman að keyra þetta...þetta er ekki 540i og þetta er ekki M5 en þetta er samt 530d og það er eitthvað við þetta.
2.0 bílarnir eru líka skemmtilegir og 330d hlýtur að vera guðdómlegur. Sérstaklega á heimavelli...Autobahn. Svo má ekki gleyma eldsneytisverðinu :!:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/