Page 1 of 2

Nokkuð nettur porshce Cayenne

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 01:16
by Moni

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 01:21
by Schulii
vantar ekki eitthvað framan á hann?? :roll:

veit það ekki mar.. ég er ekkert voða hrifinn af lookinu á þessum bílum

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 01:49
by rutur325i
flottur , ljósin fara aðeins í mig en það venst örugglega

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 08:56
by bebecar
Ég vissi ekki að það væri hægt að gera þennan bíl enn ljótari en hann er nú þegar :wink:

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 09:13
by bjahja
bebecar wrote:Ég vissi ekki að það væri hægt að gera þennan bíl enn ljótari en hann er nú þegar :wink:

Hehe, akkúrat það sem ég var að hugsa :lol:

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 09:24
by fart
finnst ykkur hann virkilega vera ljótur.. mér fannst hann ekki flottur fyrst, en það eru ansi oft svona bílar hérna fyrir utan hjá mér og ég verð eiginlega að segja að hann venst fjandi vel. Samt gæti ég ekki gert upp á milli Porsche, Range-Rover eða X5 ef ég ætti cashið. Ætli maður tæki ekki þann Breska.

*edit* Þessi á myndinni hérna fyrir ofan er ekki fallegur...... ógeðslegt ljósamix.

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 09:34
by bebecar
Range Rover er stórglæsilegur og með fallegustu innréttingu sem ég hef séð.

Ef ég mætti velja myndi ég samt taka Cayenne þó mér finnist hann ljótur - en sú ákvörðun yrði þá byggð á "performance" ef það skipti hinsvegar ekki máli þá tæki maður að sjálfsögðu RR - X5 er hinsvegar bara jepplingur á meðan hinir eru jeppar.

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 09:53
by Jss
bebecar wrote:Range Rover er stórglæsilegur og með fallegustu innréttingu sem ég hef séð.

Ef ég mætti velja myndi ég samt taka Cayenne þó mér finnist hann ljótur - en sú ákvörðun yrði þá byggð á "performance" ef það skipti hinsvegar ekki máli þá tæki maður að sjálfsögðu RR - X5 er hinsvegar bara jepplingur á meðan hinir eru jeppar.


Ég myndi fara varlega í að kalla X5 jeppling, hann er lúmskt duglegur, hefur komið vel út í þeim prófunum sem ég hef séð/lesið og þá m.a. í torfærum og var þá svipaður Landcruiser í þeim torfærum ef ég man rétt. Á blað með þessu "testi" einhvers staðar í blaðabunkanum heima. :S

Hjá mér yrði þetta spurning um Range Rover eða BMW X5, hugsa að ég myndi taka Range Rover-inn. :D

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 09:59
by bebecar
Grandlooser er líka lélegur í torfærum þó þetta sé vandaður bíll!

X5 telst ekki til jeppa af þeirri einföldu ástæðu að hann er ekki með hátt og lágt drif. Hann er drullu duglegur ég veit það vel en conceptið er hið sama og á Rav4. Cayenne er með lágt drif.

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 10:01
by Jss
bebecar wrote:Grandlooser er líka lélegur í torfærum þó þetta sé vandaður bíll!

X5 telst ekki til jeppa af þeirri einföldu ástæðu að hann er ekki með hátt og lágt drif. Hann er drullu duglegur ég veit það vel en conceptið er hið sama og á Rav4. Cayenne er með lágt drif.


Ok skil þá hugsun, þú hefur margt til þín máls, eins og yfirleitt

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 10:05
by bebecar
Það er bara engin skömm að því að vera með jeppling - mun skynsamlegra en að vera með LC90 á 38" sem aldrei fer út fyrir veg....

Þetta var lang skynsamlegasta leiðin hjá BMW - jeppar eru ekki eins mikill söluvarningur og jepplingar eru í evrópu og þar sem BMW setur aksturseiginleika á oddinn kom varla til greina að gera alvöru jeppa.

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 10:14
by Jss
Enda er bíllinn "critically acclaimed" fær lof úr öllum áttum. Minni bara á það sem ég sagði um daginn:

Jss wrote:Ég held ég geti leyft mér að segja að BMW X5 sé hinn fullkomni "borgarjeppi" en getur nú líka margt utanvega (hversu oft er maður annars utanvega á svona dýrum og fínum tækjum?)


Hér

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 10:42
by bebecar
Nákvæmlega - fæstir tíma þessum tækjum lengra en í sumarbústaðinn og á skíði.

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 12:42
by Jökull
bebecar wrote:Ég vissi ekki að það væri hægt að gera þennan bíl enn ljótari en hann er nú þegar :wink:


frammendinn lítur líka út eins og hvalur með opinn kjaftinn :)

PostPosted: Thu 18. Dec 2003 12:47
by Benzer
Þetta er ekki turbo bíll :(