bebecar wrote:Range Rover er stórglæsilegur og með fallegustu innréttingu sem ég hef séð.
Ef ég mætti velja myndi ég samt taka Cayenne þó mér finnist hann ljótur - en sú ákvörðun yrði þá byggð á "performance" ef það skipti hinsvegar ekki máli þá tæki maður að sjálfsögðu RR - X5 er hinsvegar bara jepplingur á meðan hinir eru jeppar.
Ég myndi fara varlega í að kalla X5 jeppling, hann er lúmskt duglegur, hefur komið vel út í þeim prófunum sem ég hef séð/lesið og þá m.a. í torfærum og var þá svipaður Landcruiser í þeim torfærum ef ég man rétt. Á blað með þessu "testi" einhvers staðar í blaðabunkanum heima. :S
Hjá mér yrði þetta spurning um Range Rover eða BMW X5, hugsa að ég myndi taka Range Rover-inn.
