Jæja, ég er búinn að vera að eiga við skrýtið vandamál að etja á nýlega Toshiba lappanum mínum. Hann felst í því að internettengingin dettur út ef ég er að flytja mikið af gögnum á milli staða á vélinni.
Einfaldasta leiðin til að ná þessu fram er að tengja 2 usb diska við vélina og flytja á milli. Ég er með Reliability & performance monitorinn (C:\Windows\System32\perfmon.exe) í gangi og þegar Disk hlutinn á honum spikear uppí 100% þá dettur nettengingin út
Það skiptir engu hvaða USB port ég er að nota.
Þekkir e-r hér eða hefur reynslu af svipuðu vandamáli? Gæti verið e-r sameiginlegur böss sem local gagnaflutningar hafa forgang á umfram þráðlausa netið?
Fáránlegt rugl
